Fara í efni

Sóknaráætlun

Hinn 17. febrúar 2025 samþykkti stjórn SSH sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2025–2029.

Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat höfuðborgarsvæðisins, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum.

Verkefnið er hluti af sóknaráætlun landshluta, en tekur jafnframt mið af þeirri stefnu og framtíðarsýn sem kemur fram í Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015–2040.

Hluti af framfylgd sóknaráætlunar er að vinna að ákveðnum áhersluverkefnum fyrir hvert ár yfir tímabílið. Áhersluverkefni eru samþykkt af stjórn SSH og stýrt af SSH í samstarfi við sérstaka ráðgjafa og/eða verkefnastjóra. 

Fréttir af sóknaráætlunarverkefnum

Fréttir
05. nóvember 2026

Fýsileiki samræmdra merkinga útivistarsvæða

SSH hafa falið Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins að kanna fýsileika þess að samræma merkingar útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu.

Fréttir
06. október 2026

„Grá svæði“ í velferðarþjónustu hafa áhrif á fólk og fjárhag sveitarfélaga

Skýrslan Samspil og virkni velferðarþjónustu var nýverið kynnt á fundi sveitarstjórnarfólks og þingmanna. Hún fjallar um „grá svæði” og óskýra verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga við veitingu velferðarþjónustu og afleiðingar af því.

Fréttir
29. september 2026

Grá svæði í velferðarþjónustu kosta sveitarfélög milljarða

Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins árið 2025 var „Samspil og virkni velferðarþjónustu í víðum skilningi“ en markmið þess var að skerpa á áskorunum ríkis og sveitarfélaga í velferðarmálum og greina hvar óvissa ríkir um verkaskiptingu og kostnað.

Fréttir
28. ágúst 2026

Samningur um aukinn stuðning við foreldra

SSH og Foreldrahús hafa gengið frá samningi um ráðgjöf og stuðning við foreldra barna og unglinga sem eru byrjuð að sýna áhættuhegðun tengda vímuefnaneyslu.

 

Skýrslur Byggðastofnunnar
Sóknaráætlanir landshluta

Ársskýrslur og ársreikningar SSH
Í ársskýrslum stjórnar SSH er sérstaklega gerð grein fyrir áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins og annar fróðleiðleikur í kaflanum um sóknaráætlun og í ársreikningum SSH er sérstaklega gerð grein fyrir fjármálum og verkefnakostnaði áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins.

Útgefið efni

Helstu skýrslur, Ársskýrslur stjórnar
13.11.2026

Ársskýrsla 2026

Frá síðasta aðalfundi SSH, sem haldinn var 14. nóvember 2025, hafa SSH unnið að margvíslegum verkefnum.

Helstu skýrslur, Ársskýrslur stjórnar
12.11.2025

Ársskýrsla 2025

Á seinni hluta ársins 2024 og fram yfir mitt ár 2025 hefur SSH unnið að mörgum verkefnum

Helstu skýrslur, Ársskýrslur stjórnar

Ársskýrsla 2024

Ársskýrsla SSH 2024 Á seinni hluta ársins 2023 og fram yfir mitt ár 2024 hefur SSH unnið að mörgum verkefnum

Umhverfismál
01.11.2024

Loftslagsstefna höfuðborgarsvæðisins

Umhverfismál
01.01.2021

Kolefnisspor höfuðborgarsvæðisins

Útreikningur á losun árið 2022

Umhverfismál

Innleiðing loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins

Ráðgjöf og tillögur að aðgerðum sveitarfélaga til að draga úr losun til ársins 2035

Samgöngur og skipulag
16.07.2026

Innviðagreining á höfuðborgarsvæðinu

Skýrslan Innviðagreining á höfuðborgarsvæðinu sýnir aðgengi íbúa að þjónustuinnviðum á höfuðborgarsvæðinu. Til þjónustuinnviða teljast t.a.m. skólar, verslanir, sundlaugar, heilbrigðisþjónusta, græn svæði og fleira. Markmið greiningarinnar er að varpa ljósi á dreifingu innviða á höfuðborgarsvæðinu, aðgengi íbúa að þeim og hvernig aðgengi tengist lýðfræðilegri samsetningu og gerð byggðarinnar.

Helstu skýrslur, Samgöngur og skipulag
09.03.2026

Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Markmið verkefnisins er að greina og móta sameiginlegar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu vegna álagsdreifingar umferðar um svæðið. Aðgerðirnar voru m.a. mótaðar með því að rýna eldri tillögur, stefnur og aðgerðir, og standa að samráði við fulltrúa menntastofnanna og vinnustaða.

Helstu skýrslur
01.04.2025

Hvítá - Hvítá

Verkefnastjóri frá Nordic Office of Architecture var ráðinn til að vinna greiningu á því hver áhrif áframhaldandi óbreytts vaxtar þéttbýliskjarna utan höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050 geti haft á höfuðborgarsvæðið og er lokaskýrsla verkefnisins frá apríl 2025.

Helstu skýrslur, Velferð
20.05.2026

Starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur

Í þessari skýrslu sem unnin var fyrir SSH eru settar fram tillögur til úrbóta í skólastarfi með áherslu á að draga úr álagi meðal starfsfólks í grunnskólum. Gerð skýrslunnar er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025-2029 undir málefnasviðinu Velferð og samfélag.

Helstu skýrslur, Velferð
13.05.2026

Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu

Undanfarin ár hefur orðið aukin ásókn í sérúrræði innan skólakerfisins á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða börn með fjölbreyttar og oft umfangsmiklar þjónustuþarfir, hvort sem þær eru vegna fötlunar, veikinda, hegðunarvanda eða annarra samsettra þátta. Þrátt fyrir þá megináherslu að börn sæki nám í sínum heimaskóla hefur reynslan sýnt að ekki er alltaf unnt að mæta þörfum allra barna innan þess ramma.

Helstu skýrslur, Afþreying
01.04.2025

Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun

Um er að ræða verkefni sem er hluti af framfylgd sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2024 undir meginflokknum velferð og samfélag og er ætlað styðja við aukna útivist og hreyfingu íbúa.

Skólar og menntun í fremstu röð - Skýrslur frá 2012-2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Skýrslur frá 2012-2014

Eldri skýrslur

Skólar og menntun í fremstu röð - Sameiginleg könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara -Ágúst 2012

Við gerð kjarasamnings í maí 2011 sammæltust Samband íslenskra sveitarfélaga og Félag grunnskólakennara (FG) í bókun 2 um að halda áfram vinnu á grundvelli sameiginlegrar framtíðarsýnar í skólamálum til ársins 2020. Framtíðarsýnin var unnin skv. sameiginlegum samningsmarkmiðum og markmiðum í kjarasamningi aðila frá 2008. Vinnan leiddi af sér könnun sem var lögð fyrir alla kennara á netfangalista Félags grunnskólakennara dagana 20. janúar til 6. febrúar 2012 og bárust svör frá 2.616 kennurum.

Eldri skýrslur

Skólar og menntun í fremstu röð – Samantekt

Tilgangur verkefna í þessum flokki var að skilgreina og nýta möguleg sóknarfæri til að efla og samþætta skólastarf á öllum skólastigum með það að markmiði að skólastarf á höfuðborgarsvæðinu sé til fyrirmyndar.

Eldri skýrslur
01.04.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Árangur og einkenni grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu í alþjóðlegu samhengi -Apríl 2014

Skýrslan var gefin út af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2014 og unnin af Almar M. Halldórssyni og Kristjáni K. Stefánssyni fyrir verkefnið „Skólar og menntun í fremstu röð“ í tengslum við Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins.

Eldri skýrslur
01.03.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Þjóðfélagslegur kostnaður af brotthvarfi úr námi á framhaldsskólastigi -Mars 2014

Þessi skýrsla var hluti af verkefninu „Samvinna skólastiga frá leikskóla að háskóla” í verkefnaflokknum Skólar og menntun í fremstu röð en verkefnið var hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013.

Eldri skýrslur
01.03.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Gæði skólastarfs í alþjóðlegum samanburði - Framtíðarsýn og aðgerðaáætlun verkefnastjórnar -Mars 2014

„Gæði skólastarfs í alþjóðlegum samanburði“ var hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013 sem var fjármagnað m.a. af ríkissjóði samkvæmt sérstökum samningi þar um.

Eldri skýrslur
01.01.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Árangur, líðan og væntingar nemenda í innlendum og erlendum samanburði - Rannsóknir og greining -Mars 2014

„Árangur, líðan og væntingar nemenda í innlendum og erlendum samanburði“ var hluti af verkefninu Gæði skólastarfs í alþjóðlegum samanburði í verkefnaflokknum Skólar og menntun í fremstu röð. Verkefnið var hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013 sem var fjármögnuð m.a. af ríkissjóði samkvæmt sérstökum samningi þar um.

Eldri skýrslur
01.03.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Samvinna skólastiga frá leikskóla að háskóla

„Samvinna skólastiga frá leikskóla að háskóla“ var hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013 sem var fjármagnað m.a. af ríkissjóði samkvæmt sérstökum samningi þar um.

Eldri skýrslur
01.03.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Mat á yfirfærslu framhaldsskóla frá ríki til sveitarfélaga

Þessi skýrsla var hluti af verkefninu: Samvinna skólastiga frá leikskóla að háskóla í verkefnaflokknum Skólar og menntun í fremstu röð en verkefnið var hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013. Áætlunin var fjármögnuð m.a. af ríkissjóði, samkvæmt sérstökum samningi þar um.

Eldri skýrslur
01.03.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Höfuðborgarsvæðið sem háskólaborg

„Höfuðborgarsvæðið sem háskólaborg“ var hluti af verkefnaflokknum Skólar og menntun í fremstu röð, sem fellur undir Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013. Markmið verkefnisins var að skapa aðlaðandi vettvang fyrir háskólanám í augum innlendra og erlendra námsmanna.

Eldri skýrslur
01.05.2014

Skólar og menntun í fremstu röð - Símenntun á vinnumarkaði

„Símenntun á vinnumarkaði“ er hluti af verkefnaflokknum Skólar og menntun í fremstu röð. Hann er hluti af Sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2013 sem er fjármögnuð m.a. af ríkissjóði samkvæmt sérstökum samningi þar um.