Fara í efni

Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Markmið verkefnisins er að greina og móta sameiginlegar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu vegna álagsdreifingar umferðar um svæðið. Aðgerðirnar voru m.a. mótaðar með því að rýna eldri tillögur, stefnur og aðgerðir, og standa að samráði við fulltrúa menntastofnanna og vinnustaða.

Verkefnið er hluti af sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2024.

Lagðar eru til yfir 20 aðgerðir sem miða að því að dreifa álagi í umferð á höfuðborgarsvæðinu sem hægt er að innleiða innan næstu tveggja ára. Aðgerðirnar gera ráð fyrir samstarfi og samhæfingu ríkis, sveitarfélaga, opinberra stofnana, menntastofnana, Strætó bs., Vegagerðarinnar og vinnustaða á almennum markaði.

Aðgerðirnar eru eftirfarandi:

    • Fleytitíð – hliðra opnunartímum skóla og stofnanna

    • Framhalds- og háskólar
      o Útfæra framhalds- og háskólakort í strætó með skráningargjöldum
      o Skoða gjaldtöku
      o Fræðsla um hjólanotkun í skólum
      o Bæta hjólainnviði við skóla
      o Hvetja nemendur til að vera samferða
      o Standa að samráði við nemendur
      o Afla reglulegra gagna um ferðavenjur nemenda

 

    • Vinnustaðir
      o Endurskoða samgöngusamninga
      o Draga úr umferð með fjarvinnu
      o Hvetja starfsmenn að vera samferða
      o Auðvelda vinnustöðum að bjóða upp á fjölbreytta samgöngustyrki
      o Afla betri gagna um ferðavenjur og innleiða samgönguáætlanir
      o Skoða gjaldtöku við opinberar stofnanir. Greina og upplýsa um kostnað bílastæða
      o Stuðla að aðgengilegum samvinnurýmum utan höfuðborgarsvæðisins

    • Aðrar aðgerðir
      o Stuðla að aðgengi að deilibílum og -hjólum
      o Hvetja eða verðlauna vinnustaði og skóla sem sýna árangur
      o Skoða leiðir til að flýta fyrir forgangi strætó
      o Skoða hraðleiðir strætó
      o Stuðla að bættri stýringu bílastæða hjá sveitarfélögum
      o Bæta umferðarstýringu á stofnvegum
      o Bæta vinnuaðstöðu í landsbyggðarvögnum


Ekki er um tæmandi lista aðgerða að ræða, en þessar aðgerðir miða þó allar að því að dreifa álagi umferðar betur sem stuðlar að því minni töfum og bættu umferðarflæði m.a. með því að auka hlutdeild vistvænna ferðamáta.