Fara í efni

Sorpa bs.

Í stofnsamningi SORPU bs. kemur fram að tilgangur byggðasamlagsins er að annast meðhöndlun úrgangs sbr. lög nr. 55/2003 fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru stofnaðilar að því.

Verkefni byggðasamlagsins eru m.a. eftirfarandi:

  • Að útvega og starfrækja urðunarstað fyrir sorp.
  • Bygging og rekstur móttökustöðva.
  • Flutningur á sorpi frá móttökustöðvum.
  • Framleiðsla og sala á eldsneyti og orku úr sorpi eftir því sem hagkvæmt þykir.
  • Vinnsla og sala á efnum úr sorpi til endurnýtingar eftir því sem hagkvæmt þykir.
  • Samstarf og viðskipti við fyrirtæki er starfa á sviði endurvinnslu úrgangsefna eftir því sem hagkvæmt þykir.
  • Að fylgjast með tækniþróun á sviði sorpeyðingar og endurvinnslu. Að sjá um eyðingu hættulegra úrgangsefna.
  • Að þróa nýjar aðferðir til þess að vinna verðmæti úr úrgangsefnum.
  • Að sinna kynningu á verkefnum SORPU bs. og gildi umhverfissjónarmiða við meðhöndlun sorps.
  • Gera svæðisáætlanir sbr. lagakröfur hverju sinni.
  • Önnur verkefni sem aðildarfélögin fela byggðasamlaginu sérstaklega.

Stjórn Sorpu bs.

Aldís Stefánsdóttir

Mosfellsbær

Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Reykjavík

Guðfinnur Sigurvinsson

Garðabær

Orri Vignir Hlöðversson

Kópavogur

Svana Helen Björnsdóttir

Seltjarnarnes

Valdimar Víðisson

Hafnarfjörður