Hvítá - Hvítá
Hvítá - Hvíta - Framhaldsverkefni
Um er að ræða framhaldsverkefni. Markmið þess er að móta grundvöll fyrir auknu samstarfi sveitarfélaganna innan Hvítá-Hvítá svæðisins, að vinna rannsókn á vinnu- og skólasókn til og frá höfuðborgarsvæðinu, og að greina umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er skilgreint sem eitt áhersluverkefni sóknaráætlunar fyrir árið 2026.
Þróun byggðar á suðvesturhorni landsins hefur breyst hratt á undanförnum árum samhliða mikilli fólksfjölgun á svæðinu, dreifðara búsetumynstri og aukins flæðis fólks milli sveitarfélaga. Svæðið nær frá Hvítá á Vesturlandi til Hvítár á Suðurlandi.
Til þess að mæta framtíðaráskorunum byggðaþróunar og fólksfjölgunar er mikilvægt að horfa á Hvítá-Hvítá svæðið, en árið 2024 bjuggum um 80% landsmanna. Í fyrirliggjandi skýrslu, sem unnin var sem áhersluverkefni 2024, voru könnuð áhrif af áframhaldandi óbreyttum vexti þéttbýliskjarna innan Hvítár-Hvítár svæðisins á þróun höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050. Við vinnslu verkefnisins kom í ljós skortur á gögnum varðandi þau málefni sem snerta svæðið. Niðurstöður leiddu m.a. í ljós að mikilvægt væri að bæta opinbera tölfræði og upplýsingar og rannsóknir á vinnu- og skólasókn. Þá er einnig grundvöllur til að skoða forsendur bættra almenningssamgangna og samspil við ferðamáta innan höfuðborgarsvæðisins.
Verkefninu nú er ætlað að móta grundvöll fyrir auknu samstarfi sveitarfélaganna og landshlutasamtakanna innan Hvítá-Hvítá svæðisins og hefja það með tveimur verkefnum. Annars vegar að vinna rannsókn á vinnu- og skólasókn til og frá höfuðborgarsvæðinu til landshlutanna í kring, og hins vegar að greina umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu til að nota sem grunn að forsendum bættra almenningssamgangna og samspil við ferðamáta innan höfuðborgarsvæðisins.
Gert er ráð fyrir að lokaafurð verkefnisins séu gögn um atvinnu- og skólasókn milli svæða á Hvítá-Hvítá svæðinu, sem og greining á umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu. Lok verkefnis er áætlað við upphaf 2027.
2024
Þróun Hvítá til Hvítá svæðisins (SV hornið)
Verkefnið var eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2024.
Markmið með verkefninu var að greina framtíðarbyggðaþróun þéttbýlis umhverfis höfuðborgarsvæðið og móta mismunandi sviðsmyndir til ársins 2050.
Þéttbýliskjarnar á SV-horninu hafa stækkað ört undanfarna áratugi. Ljóst er að svæðið er að þróast hratt í að verða eitt samtengt og jafnvel heildstætt atvinnu-, þjónustu- og búsetusvæði sem glímir við sameiginlegar áskoranir og á fjölmörg sameiginleg tækifæri. Afleiðingar þessa eru margvíslegar og hafa ekki verið greindar m.t.t. álags á höfuðborgarsvæðið og áhrifa þess á t.a.m. innviði, lýðfræði, húsnæðismarkað, atvinnulíf, gæði bæjarrýma og umhverfismál.
Vöxtur og þróun svæðisins kallar á skipulega heildarhugsun um inniviði og margvíslega þjónustu sem hægt er að leysa á fleiri einn hátt. Hvernig til tekst mun hafa grundvallarþýðingu fyrir samkeppnishæfni svæðisins og landsins alls, lífskjör, lífsgæði, umhverfi og efnahag.
Verkefnið er tvískipt. Í fyrri hluta verkefnisins var unnin greining á því hver áhrif áframhaldandi óbreyttur vöxtur þéttbýliskjarna utan höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050 geti haft á höfuðborgarsvæðið.
Skoðað var hver áhrifin geti orðið með tilliti til:
- Atvinnumála og samkeppnishæfni
- Ferðatíma allra ferðamáta og umferðarmagn
- Gæði og ásýnd bæjarrýma
- Húsnæðis og lýðfræði
- Lífsgæði íbúa höfuðborgarsvæðisins
- Mengunar, svifryks og hávaða
- Öryggi gangandi og hjólandi
Í seinni hluta verkefnisins (gert er ráð fyrir að það verði unnið sem sjálfstætt verkefni í framhaldi af fyrri hluta) verður velt upp hugsanlegum sviðsmyndum, sem verða bornar saman, þ.á.m. núllkosti sem sýni óbreytta þéttbýlisþróun, fólksfjölgun og ferðavenjur, samanborið við sviðsmyndir sem sýni þéttbýlisþróun til ársins 2050 án þess að auka álag á höfuðborgarsvæðið.
Verkefnastjóri frá Nordic Office of Architecture var ráðinn til að vinna greiningu á fyrri hluta verkefnisins á því hver áhrif áframhaldandi óbreytts vaxtar þéttbýliskjarna utan höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050 geti haft á höfuðborgarsvæðið og er lokaskýrsla verkefnisins frá apríl 2025 hér fyrir neðan.

Við undirritun samnings 18. júní 2024. Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH, Halldóra Vífilsdóttir framkvæmdastjóri Nordic á Íslandi og Jóhanna Helgadóttir fagstjóri skipulagsmála hjá Nordic á Íslandi
