Forvarnir og geðrækt hjá ungmennum á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnið var hluti af framfylgd sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2020 – 2024 og fellur undir meginflokkinn „Velferð og samfélag“ og meginmarkmið „Auka heilsueflingu og forvarnir”
Markmið er að auka samráð, miðlun reynslu og þekkingu á sviði málaflokksins. Eins að koma á fót samstarfsvettvang til að efla og auka samstarf á sviði forvarna og geðræktar hjá ungmennum á höfuðborgarsvæðinu, sem fengi einnig það verkefni að skoða kosti þess að sveitarfélögin vinni að samræmdri stefnu um geðrækt ungmenna.
Um er að ræða framhald á vinnu vinnuhóps verkefnisins „Forvarnir og geðrækt hjá ungmennum á höfuðborgarsvæðinu“ sem var áhersluverkefni sóknaráætlunar 2022. Hópurinn var skipaður fulltrúum sveitarfélaganna og var ætlað að efla og auka samstarf á sviði forvarna og geðræktar hjá ungmennum (16-25 ára). Í samantektarskýrslu um vinnu hópsins, dags. desember 2022 voru settar fram tillögur að næstu skrefum og var verkefnið sett fram í takt við þær tillögur. Hópurinn mun áfram vinna að kortlagningu þeirra úrræða, þ.e. varðandi frítíma, ráðgjöf, stuðning og félagsþjónustu sem stendur börnum og ungmennum til boða og leggja til samræmd viðmið um framboð slíkrar þjónustu. Þá mun hópurinn vinna að því að koma upp eftirliti og eftirfylgni með afdrifum barna eftir útskrift úr grunnskóla og stuðla að samfellu í þjónustu milli skólastiga. Hópurinn mun jafnframt móta tillögur að þjónustu með það að markmiði að fyrirbyggja skólaforðun, brottfall úr námi, íþróttum og atvinnu.
Ráðinn var ráðgjafi frá North Consulting til að:
- Greina tölfræðiupplýsinar um afdrif barna að loknum grunnskóla.
- Vinna með hópnum að drögum að samræmdum viðmiðum og áætlunum sveitarfélaganna um þjónustu til að draga úr skólaforðun og brottfalli úr námi, íþróttum og atvinnu.
- Vinna að þróun verkefna fyrir börn og ungmenni á sviði forvarna og geðræktar.
Ávinningur samfélagsins af því að grípa þennan hóp áður en kemur til brottfalls úr námi eða atvinnu og samfara virkniskerðingu er ótvíræður og verður seint ofmetinn.
Skýrsla ráðgjafa var kláruð í mars 2025 og er hér fyrir neðanþ
SSH og NORTH Consulting undirrituðu þann 7. júní 2024 samning um verkefnastjórnun á verkefninu Forvarnir og geðrækt ungmenna á höfuðborgarsvæðinu.

María Kristín Gylfadóttir verkefnastjóri NORTH Consulting, Amanda K. Ólafsdóttir formaður vinnuhóps um forvarnir og geðrækt ungmenna á höfuðborgarsvæðinu
og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.