Fara í efni

Gildandi svæðisskipulag

Gildandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins nefnist Höfuðborgarsvæðið 2040 sem samþykkt var í júní 2015 og er sameiginleg stefna sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kjósarhrepps, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar um náið samstarf, skipulagsmál og hagkvæman vöxt svæðisins næstu 25 árin, enda er höfuðborgarsvæðið eitt búsetusvæði, einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir og náttúru.

Hryggjarstykkið í stefnunni er, nýtt hágæða almenningssamgöngukerfi sem tengir kjarna sveitarfélaganna og flytur farþega með skjótum og öruggum hætti um höfuðborgarsvæðið.

Svæðisskipulag

Höfuðborgarsvæðið 2040
Gildandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til 2040

Leiðarljósin