Fara í efni

Vímuefnavandi - ráðgjöf til foreldra unglinga

Markmið verkefnisins er að bjóða uppá endurgjaldslausa ráðgjöf fyrir foreldra sem eiga börn í
vímuefnavanda.

Verkefnið er skilgreint sem eitt áhersluverkefni sóknaráætlunar fyrir árið 2026 og tengist meginflokki hennar, "Velferð og samfélag". 

Neysla unglinga á vímuefnum virðist vera að aukast og hefur í opinberri umræðu verið kallað eftir frekari úrræðum. Að styðja við úrræði af þessu tagi miðar að snemmtækri íhlutun og þeim farsældarverkefnum sem unnið er af á vettvangi sveitarfélaganna og opinberra aðila. Verkefnið gengur út á að finna og semja við aðila sem býður upp á þjónustu er varðar ráðgjöf, meðferð og fræðsl og er lokaafurð þess bætt ráðgjöf fyrir foreldra sem eiga börn með vímuefnavanda.