Fara í efni

Markaðssetning höfuðborgarsvæðisins

Verkefnið var skilgreint sem áhersluverkefni sóknaráætlunar árið 2017. 

Markmið verkefnisins var að kynna fyrir erlendum frumkvöðlum, fyrirtækjum, sérfræðingum stúdentum og öðrum hagsmunaðilum, höfuðborgarsvæðið sem vænlegan staðarvalkost, uppsprettu nýsköpunar og sjálfbærni og góðan stað til að búa á.

Byggður var upp vettvangur sem er til þess ætlaður að vekja áhuga erlendra aðila á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess var leitast við að  tryggja að á hverjum tíma séu til staðar réttar og áreiðanlegar upplýsingar um höfuðborgarsvæðið, þjónustu sveitarfélaganna, menntun, fyrirtækjamenningu, stoðkerfi avinnulífsins, lífsgæði, hagstærðir, innviði, lóðaframboð og aðra þá þætti sem skipta máli við staðarvalsákvörðun erlendra aðila.