Fara í efni

Veikindafjarvera - samstillt átak

Markmiðið með átakinu er að aðgerðir skili sér í mælanlegri fækkun fjarvista og þar af leiðandi bættri heilsu, aukinni vellíðan hjá starfsfólki sveitarfélaganna, lægri heildarkostnaði og bættri nýtingu fjármagns hjá sveitarfélögunum sjálfum.

Verkefnið er skilgreint sem eitt áhersluverkefni sóknaráætlunar fyrir árið 2026.

Samkvæmt nýlegum opinberum tölum er veikindahlutfall starfsfólks sveitarfélaga um um 3% hærra en á almennum vinnumarkaði. Miðað við heildarlaunagreiðslur sveitarfélaganna innan SSH voru 180 milljarðar árið 2024. Ef hægt væri að lækka veikindahlutfall á meðal sveitarfélaga um 3% þýddi það bætta nýtingu launakostnaðar um 5,4 milljarða, miðað við heildarlaunagreiðslur sveitarfélaga innan SSH árið 2024. 

Eigi mælanlegur árangur að nást má gera má ráð fyrir að samstillt átak standi yfir um nokkurt skeið. Samstarf milli sveitarfélaga gæti skilað sér í samstilltari og skýrari áherslum í mannaauðsmálum og gæti skilað sér í bættu skipulagi og verklagi til lengri tíma. Þessi vinna gæti skilað ánægðara starfsfólki og bættri nýtingu mannauðs og þar með sparað fjármagn í afleysingar og bætt nýtingu fjármagns. Höfuðborgarsvæðið er einn vinnumarkaður og slík samstilling skapar fyrirsjáanleika við flutning á milli vinnustaða.

Verkefnið nú gengur út á að sveitarfélögin stilli saman ýmsar skilgreiningar tengdar fjarveru vegna veikinda og hvernig veikindahlutfall er mælt.

Lokaafurð verkefnisins er skýrsla sem dregur fram m.a. sameiginlegar aðferðir til þess að ná fram markmiðum verkefnisins.