Fara í efni

Innkaupavefur - forkönnun

Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að greina fýsileika á stofnun innkaupavef til að ná fram hagkvæmni í innkaupum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar að vinna í gegnum samráðsvettvang sveitarfélaganna að greiningu og sameiginlegum innkaupum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Verkefnið er skilgreint sem eitt áhersluverkefni sóknaráætlunar fyrir árið 2026.

Verkefnið byggir á fyrri vinnu um innkaupamál sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi af sér samráðsvettvang um innkaupamál á höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi reynslu af undirbúningi verkefnisins er það umfangsmikið og flókið, en talið víst að það geti skilað miklu hagræði fyrir sveitarfélögin.

Væntur árangur verkefnisins eru hagkvæmari innkaup sveitarfélaganna og ábati af stafrænum ferlum og
lausnum.