Farsældarverkefni
Fyrir liggur viðaukasamningur SSH og mennta- og barnamálaráðuneytisins við samning um sóknaráætlun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2026 og fellur undir meginflokk sóknaráætlunar „ Velferð og Samfélag“. Eftir því sem verkefninu hefur fleytt fram hafa komið upp þarfir fyrir verkefni sem tengjast fyrrgreindum samningi um farsæld barna.
- Sameiginleg upplýsingagátt: Fyrst færi fram greining á því hvar best væri að hýsa slíka gátt og hvernig tryggja mætti virkni og gæði til framtíðar. Áhersla yrði lögð á að sameina á einum stað öll úrræði aðila farsældarráðs auk úrræða sem félagasamtök á svæðinu bjóða upp á; þjónusta, fræðsla, ráðgjöf og stuðning, þannig að upplýsingar séu sem aðgengilegastar. Áhersla yrði lögðá öfluga leitarvél og allt efni flokkað eftir því hver leitar, aldri barns, staðsetningu og tegund stuðningsþarfar. Þá væri vinna lögð í að kynna gáttina/svæðið og væri það m.a. gert í gegnum alla aðila farsældarráðs.
- Vinnuhópur á vegum sveitarfélaganna sex með fulltrúum leikskóla, grunnskóla og barnavernd auk fulltrúa heilsugæslu vinnur saman að sameiginlegum viðmiðum og verklagi tengt skráningu á skólasókn. Einnig vinnur hópurinn að sameiginlegum verkfærum t.d. upplýsingabæklingi og spurningalista fyrir forráðamenn. Áhersla lögð á kynningar. Fjármagn þarf fyrir hönnunarvinnu, yfirlestur og auglýsingar.
- Vinnuhópur á vegum sveitarfélaganna með fulltrúum foreldra vinnur sameiginleg gæðaviðmið um foreldrafræðslu. Útbúinn er ákveðinn fæðsluleiðarvísir fyrir sveitarfélögin í samvinnu við heilsugæslu. Hugmyndabanki þar sem tekin væru saman dæmi um vel heppnaðar foreldrafræðslur gerður aðgengilegur öllum sveitarfélögum. Áhersla á fjölmenningarlega nálgun.
Lokaafurðir
- Sameiginleg og aðgengileg upplýsingagátt með öflugri leitarvél fyrir börn, foreldra og þjónustuveitendur. Áhersla lögð á úrræði
á vegum aðila Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og félagasamtaka sem bjóða upp á úrræði tengd farsæld barna.
- Sameiginleg viðmið, verkferlar og verkfærakista í tengslum við skólasóknarvanda barna.
- Sameiginleg gæðaviðmið um foreldrafræðslu fyrir foreldra barna á öllum aldri, með áherslu á fjölbreytt tungumál. Fræðsluleiðarvísir fyrir sveitarfélög í samvinnu við heilsugæslu.
Niðurstöður eru væntanlegar í mars 2027.
Verkefnið er hluti af áherlsuverkefnum sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2026.