Farsældarerindreki - bætt aðgengi að upplýsingum um þjónustu fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu
Lausnin mun byggja á öruggum og áreiðanlegum upplýsingum um þjónustu og úrræði á vegum aðila Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins auk þess að byggja á upplýsingum um önnur úrræði sem uppfylla kröfur ráðsins.
Vinnan framundan felur meðal annars í sér samstarf við aðila Farsældarráðs, notendaprófanir og mat á áhrifum lausnarinnar á persónuvernd.
Hluti af aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins
Verkefnið er hluti af sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Aðilar að ráðinu eru sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu – Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Kjósarhreppur – auk framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu.
Hafsteinn Einarsson er dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og með doktorspróf í greininni. Hann hefur meðal annars stundað rannsóknir á sviði gervigreindar og máltækni og haft umsjón með námskeiðum um gervigreind og vélrænt nám.
Áætlað er að Farsældarerindrekinn verði tilbúinn til notkunar fyrir börn, foreldra, forsjáraðila og fagfólk í lok árs 2026.

Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði og
Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri Farsældarráðs
höfuðborgarsvæðisins við undirritun samningsins