Fara í efni

Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun

Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun

Verkefnið var eitt af áhersluverkefnum ársins 2024.

Verkefnastjóri var frá TÓ arkitektar ehf. 

Markmið með verkefninu var að greina tækifæri á höfuðborgarsvæðinu til að styrkja útivist við vötn, haf og gönguskíðaiðkun innan höfuðborgarsvæðisins. 
Verkefnið fólst í því að: 

  • Kortleggja hvaða svæði á höfuðborgarsvæðinu gætu hentað fyrir útivist og leiki sem tengjast vötnum, hafi og gönguskíðaiðkun.
  • Kortleggja hvar slík starfsemi er fyrir og megi styrkja enn frekar. 
  • Leggja fram hugmyndir að uppbyggingu til skammtíma og langtíma og þá hvers kyns rekstarform henti hverri starfsemi á hverju svæði.


Hér fyrir neðan má sjá lokaskýrslu og kynningu á verkefninu.

Útgefið efni

Helstu skýrslur, Afþreying
01.04.2025

Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun

Um er að ræða verkefni sem er hluti af framfylgd sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2024 undir meginflokknum velferð og samfélag og er ætlað styðja við aukna útivist og hreyfingu íbúa.