Dreifikerfi - greining á samtengingu
Markmið verkefnisins er að greina möguleika og nauðsynlegar aðgerðir til samtengingar dreifikerfis á höfuðborgarsvæðinu til að stuðla að öryggi og samnýtingu vatnsveitukerfa svæðisins.
Þörf er á að yfirfara kerfi vatnsveitna heildstætt. Samtenging kerfa sveitarfélaganna er liður í því að tryggja rekstraröryggi og styður við viðnámsþrótt kerfisins.
Greiningin miðar að því að kortleggja, skilgreina og kostnaðarmeta þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að tryggja öryggi vatnsveitukerfa á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstöður og skýrsla eru væntanleg í desember 2026.
Verkefnið er hluti af áherlsuverkefnum sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2026.