Samningur um aukinn stuðning við foreldra

Við undirritun samnings hinn 27. ágúst 2026: Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri Foreldrahúss og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH
Markmið verkefnisins er að efla snemmtækan stuðning við foreldra og fjölskyldur og auðvelda þeim að bregðast við þegar fyrstu merki um vímuefnaneyslu koma fram. Verkefnið er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins árið 2026 og jafnframt hluti af innleiðingu aðgerðaáætlunar Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins.
Samkvæmt samningnum mun Foreldrahús veita foreldrum og fjölskyldum barna og unglinga á aldrinum 12–18 ára á höfuðborgarsvæðinu endurgjaldslausa ráðgjöf. Um er að ræða lágþröskuldaþjónustu í samráði við lögheimilissveitarfélag viðkomandi. Foreldrahús mun jafnframt eiga samstarf við velferðarþjónustu og eftir atvikum, barnaverndarþjónustu sveitarfélaganna.
Einnig verður boðið upp á fræðslufundi fyrir foreldra og fagfólk grunn- og framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þá mun Foreldrahús leggja til fræðsluefni fyrir sameiginlegan foreldrafræðsluleiðarvísi sveitarfélaganna sem nú er í vinnslu. Efnið mun meðal annars fjalla um þroskaskeið unglinga, samskipti foreldra og unglinga og fyrstu viðbrögð foreldra þegar þeir verða varir við áhættuhegðun tengda vímuefnaneyslu.
Verkefnið verður unnið í samvinnu við Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins en það er liður í því að styrkja samræmdan og aðgengilegan stuðning við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu, Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri Foreldrahúss og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.