Ársskýrsla 2025
Ársskýrslan, sem er lögð fram á aðalfundi SSH föstudaginn 14. nóvember 2025, er ætlað að gefa yfirsýn yfir meginþætti í starfi samtakanna á liðnu starfsári.
Ársskýrslan, sem er lögð fram á aðalfundi SSH föstudaginn 14. nóvember 2025, er ætlað að gefa yfirsýn yfir meginþætti í starfi samtakanna á liðnu starfsári.
Formáli
Ársskýrslu þessari, sem er lögð fram á aðalfundi SSH þann 14. nóvember 2025, er ætlað að gefa yfirsýn yfir meginþætti í starfi samtakanna á liðnu starfsári.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) eru samstarfsvettvangur sveitarfélaganna Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kjósarhrepps. Sem slík hafa samtökin þjónað sem nauðsynlegur vettvangur til umfjöllunar um mikilvæg samstarfsverkefni sveitarfélaganna. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, sameiginleg verndun neysluvatns íbúa svæðisins, almenningssamgöngur og önnur samgöngumál innan svæðisins, sameiginleg meðhöndlun og förgun úrgangs, ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk og framkvæmdir á skíðasvæðunum eru dæmi um verkefni sem sveitarfélögin hafa tekist sameiginlega á við undanfarin misseri. Þessi verkefni hafa kallað á samráð og sameiginlegar ákvarðanir á vettvangi SSH. Þá hafa fulltrúar SSH sótt fjölmarga fundi með ýmsum aðilum, s.s. fyrir nefndum Alþingis, með starfsfólki ráðuneyta og annarra stofnana svo og fulltrúum annarra landshlutasamtaka.
Stærstu verkefnin sem SSH hafa fengist við á liðnu ári tengjast eftirfylgni Samgöngusáttmálans og þeim málum sem tengjast samkomulagi um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu frá 21. ágúst 2024.
Á aðalfundi SSH 1. nóvember 2024 var unnið að nýrri sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins þar sem að komu kjörnir fulltrúar ásamt fulltrúum stofnana, atvinnulífs, menningarlífs og fræðasamfélags á höfuðborgarsvæðinu. Var ný sóknaráætlun samþykkt í febrúar 2025 og er nú unnið að átta áhersluverkefnum er tengjast meginflokkum hennar, sem eru atvinna og nýsköpun, umhverfi og samgöngur og velferð og samfélag. Má þar nefna verkefni um nýtingu gervigreindar í starfsemi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, stöðu og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis, álag í skólastarfi og sérskóla á höfuðborgarsvæðinu svo dæmi séu tekin. Frekari umfjöllun um verkefnin má finna í skýrslunni. Í janúar 2025 var samningur milli SSH, innviðaráðuneytisins, menningar- og viðskiptaráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029 undirritaður.
Á árinu 2024 voru haldnir 23 stjórnarfundir SSH og það sem af er árinu 2025 hafa verið haldnir 23 stjórnarfundir þar sem mörg og fjölbreytt mál hafa verið tekin fyrir. Það sem af er ári 2025 hafa verið haldnir átta svokallaðir örfundir fyrir kjörna fulltrúa á vettvangi SSH en á árinu 2024 voru haldnir sjö slíkir fundir. Á þeim eru tekin fyrir málefni líðandi stundar og þau verkefni sem SSH vinna að á hverjum tíma. Það er ánægja meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu með þessa fundi og ég vona að þeim verði framhaldið. Þá hafa SSH einnig sent frá sér umsagnir, s.s. við frumvarp til fjárlaga og önnur þau mál sem varða höfuðborgarsvæðið og eru til vinnslu í ráðuneytum eða til umræða á Alþingi. Allar umsagnir sem SSH senda frá sér eru birtar á heimasíðu samtakanna, en mikil vinna hefur verið lögð í að efla hana og bæta til að tryggja upplýsingaflæði til kjörinna fulltrúa og annarra aðila.
Önnur stór verkefni hafa verið unnin á vettvangi SSH undanfarið. Undirritaður var samningur SSH og mennta- og barnamálaráðuneytisins um verkefnastjórn vegna stofnunar svæðisbundins farsældarráðs á höfuðborgarsvæðinu og var Hanna Borg Jónsdóttir ráðin verkefnastjóri farsældarráðs á höfuðborgarsvæðinu og er henni óskað farsældar í sínum störfum. Nýr upplýsingavefur um útivist á höfuðborgarsvæðinu, Út um allt, var formlega tekinn í notkun og unnið að verkefnum sem tengjast hringrásarhagkerfinu, uppbyggingu á skíðasvæðunum, sameiginlegum velferðarmálum og þróunaráætlun svo fátt eitt sé nefnt. Gerð er grein fyrir stöðu og gangi þessara verkefna í ársskýrslunni.
Störf svæðisskipulagsnefndar voru hefðbundin á árinu 2025. Nýr svæðisskipulagsstjóri Ásdís Ólafsdóttir tók til starfa í október 2024 og bjóða SSH hana velkomna til starfa og óskar velfarnaður í störfum sínum.
Þá er vert að benda á stór viðfangsefni á vettvangi byggðasamlaganna Strætó bs. og Sorpu bs., annars vegar aðlögun á rekstri og leiðakerfi Strætó bs. að þeim breytingum sem verða á komandi árum með tilkomu Borgarlínunnar, og hins vegar þær breytingar sem orðið hafa við meðhöndlun og förgun úrgangs.
Mikilvægt er að SSH beini áfram kröftum sínum, enn frekar og í meira mæli, að beinni og markvissri hagsmunagæslu út á við og hafi frumkvæði að samtali og samskiptum við löggjafar- og framkvæmdavald ríkisins um augljósa hagsmuni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Mikið verk er fram undan er varðar sameiginleg verkefni SSH og því mikilvægt að styrkja samtökin enn frekar til verka.
Öflugu og samhentu starfsfólki SSH vil ég þakka kærlega fyrir gott samstarf og góða vinnu sem gagnast stærstum hluta landsmanna þó fæstir viti af henni. Þekking, reynsla og fagmennska starfsliðs SSH tryggir að flókið, en um leið mikilvægt, samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er jafn farsælt og raun ber vitni.
Kópavogi 14. nóvember 2025
f.h. stjórnar SSH
Heiða Björg Hilmisdóttir
formaður stjórnar SSH
SSH
SSH voru stofnuð í Hlégarði, Mosfellshreppi, í apríl 1976 og urðu því 49 ára á árinu.
Upphaflegur tilgangur með stofnun samtakanna var að móta formlegan vettvang til sameiginlegrar umræðu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um skipulagsmál.
Sjö árum eftir stofnun þeirra fengu samtökin formlega stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga og hafa síðan starfað á grundvelli ákvæða í sveitarstjórnarlögum um landshlutasamtök sveitarfélaga.
Í samþykktum SSH sem samþykktar voru á aðalfundi 2022 segir eftirfarandi um tilgang þeirra og markmið:
„SSH eru sameiginlegur málsvari aðildarsveitarfélaganna og gæta hagsmuna þeirra. SSH eru samstarfs- og samvinnuvettvangur aðildarsveitarfélaganna vegna sameiginlegra verkefna og hagsmunamála þeirra. SSH eru sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna til að fjalla um rekstur þeirra samstarfsverkefna, t.d. byggðasamlaga, sem sveitarfélögin reka sameiginlega hverju sinni.
Skal starfsemi SSH m.a. stuðla að eftirfarandi markmiðum:
- Að efla samstarf sveitarfélaganna og stuðla að samskiptum og samstarfi sveitarstjórnarmanna, sveitarstjórnarnefnda og starfsmanna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
- Að höfuðborgarsvæðið sé samkeppnishæft gagnvart erlendum borgarsvæðum og bjóði upp á nýsköpun, atvinnulíf, innviði og lífskjör sem eru á borð við þau bestu í heiminum.
SSH skulu hafa frumkvæði að vöktun, greiningu, umræðu og kynningu á málum sem varða sameiginlega hagsmuni aðildarsveitarfélaga. Með sama hætti skulu SSH fylgjast með nýjungum á sviði sveitarstjórnarmála jafnt innalands sem erlendis og miðla þeim til aðildarsveitarfélaganna.
SSH skulu standa fyrir reglubundnu samráði við ríkisvaldið, ráðuneyti og stofnanir um málefni er varða hag sveitarfélaganna og vinna með þeim hætti að framþróun og hagsmunum höfuðborgarsvæðisins.“
Stjórn SSH

Stjórn SSH, talið frá vinstri: Þór Sigurgeirsson, Regína Ásvaldsdóttir, Almar Guðmundsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Valdimar Víðisson, Ásdís Kristjánsdóttir og Þorbjörg Gísladóttir
Skrifstofa SSH, starfsfólk

Ljósmynd úr safni Garðabæjar
Rekstur SSH
Rekstur SSH er fjármagnaður með tvennum hætti:
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er vistað hjá SSH samkvæmt samningi aðildarsveitarfélaganna. Sveitarfélögin greiða sérstaklega kostnað vegna þessa, þ.e. laun svæðisskipulagsstjóra og svæðisskipulagsnefndar, hlutdeild í rekstri skrifstofu.SSH auk sérgreinds verkefnaframlags vegna tilfallandi verkefna sem tengjast rekstri svæðisskipulagsins. Þá er öll verkefnastýring og umsýsla sóknaráætlunar, þ.m.t. áhersluverkefna hennar, vistuð hjá SSH.
SSH hafa að auki verið falin verkefnaleg og fjárhagsleg umsjón margvíslegra verkefna sem ekki rúmast innan hefðbundinna verkefna þeirra. Í þeim tilfellum innheimta SSH sérstaklega kostnað vegna slíkra verkefna hjá aðildarsveitarfélögunum. Sem dæmi má nefna að á árunum 2019 og 2020 hélt skrifstofa SSH utan um fjármál Samgöngusáttmálans að því er varðaði framlög sveitarfélaganna og fjárhagslega umsýslu undirbúnings Borgarlínu. Þá hefur Verkefnastjórnun framkvæmda á skíðasvæðunum verið vistuð hjá SSH. Auk þess hafa önnur tímabundin verkefni og verkefnastjórar þeirra verið hýst hjá SSH. Frá því í febrúar 2025 hefur verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins haft aðsetur hjá SSH. Kostnaður vegna þess stöðugildis er fjármagnaður samkvæmt viðaukasamningi við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og SSH.
SSH vinna markvisst að eflingu og styrkingu upplýsingakerfa og skilvirku upplýsingaflæði milli SSH og kjörinna fulltrúa sveitarfélaganna. ONE fundakerfið og gagnagátt kjörinna fulltrúa þar sem fundaskjöl eru aðgengileg með rafrænum hætti hafa gefið góða raun en þau voru tekin í notkun haustið 2021. Markmiðið er fyrst og fremst að bæta aðgengi og gagnaöryggi til mikilla muna. Frá árinu 2015 hafa öll mál verið skráð í rafræna málaskrá til að tryggja yfirsýn og rekjanleika.
Ný vefsíða SSH fór í loftið í lok júní 2023 en vinna við uppsetningu hennar hófst á árinu 2022. Áhersla er lögð á gott aðgengi og að vefsíðan gefi glögga mynd af yfirgripsmiklum verkefnum samtakanna. Er hún því í stöðugri uppfærslu.
Fundaaðstaða SSH að Hamraborg 9, Kópavogi stendur opin fyrir alla þá verkefna- og starfshópa sem vinna að sameiginlegum verkefnum á vegum sveitarfélaganna, og t.a.m. halda Skólamálanefnd SSH og Samráðshópur á sviði velferðarmála reglulega fundi sína á skrifstofu SSH.
Tafla 1 sýnir þróun á tekjum og rekstrarkostnaði kjarnastarfsemi SSH samkvæmt ársreikningi 2020-2024 og áætlun ársins 2025.

SSH hafa umsjón með margvíslegum verkefnum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi samtakanna.
Í töflu 2 er gerð grein fyrir þessum verkefnum, rekstri og fjármögnun þeirra.

Samgöngusáttmálinn
Hinn 26. september 2019 var Samgöngusáttmálinn, samkomulag ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, undirritaður. Markmið sáttmálans eru: Að stuðla að greiðari samgöngum og fjölbreyttum ferðamátum með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta; að stuðla að loftslagsmarkmiðum ríkis og sveitarfélaga um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag með eflingu almenningssamgangna og deilihagkerfis í samgöngum, bættum innviðum fyrir vistvæna samgöngumáta og hvetja til breyttra ferðavenja og orkuskipta; að stuðla að auknu umferðaröryggi með það að markmiði að draga stórlega úr umferðarslysum; og að tryggja skilvirka framkvæmd og trausta umgjörð verkefnisins, m.a. með því að skilgreina samstarfsform, kostnaðarskiptingu, ábyrgð á tilteknum aðgerðum og fjármögnunarleiðir. Samkvæmt sjálfstæðri greiningu á samfélagslegum ábata af verkefnum Samgöngusáttmálans sem unnin var á árinu 2023 er ábatinn metinn 1.140 ma.kr.

Ljósmynd úr safni Reykjavíkurborgar
Betri samgöngur ohf., sem er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, var stofnað haustið 2020 en tilgangur þess er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu og hafa yfirumsjón með framkvæmdum Samgöngusáttmálans og fjármögnun þeirra. Er félaginu þá falið að annast þróun Keldnalands, sem er hluti af framlagi ríkisins til sáttmálans, og að annast innheimtu flýti- og umferðargjalda verði ákveðið með lögum að leggja þau á. Stjórn félagsins er skipuð sex einstaklingum, þremur frá ríki og þremur frá sveitarfélögunum. Það er stjórn SSH sem fer með eigendaumboð sveitarfélaganna.
Sérstakur stýrihópur vegna verkefnisins starfar samkvæmt stjórnskipulagi sáttmálans, en honum er m.a. ætlað að fjalla um ágreining sem komið getur upp í samskiptum ríkis eða sveitarfélaga við félagið um túlkun ákvæða eða forsendna sáttmálans eða um fjármögnun eða ráðstöfun fjármuna. Stýrihópinn skipa borgarstjóri Reykjavíkur, formaður og varaformaður stjórnar SSH, forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.
Aðilar Samgöngusáttmálans ákváðu í mars 2023 að hefja undirbúning að því að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann m.a. í ljósi mikilla verðhækkana, einkum í verklegum framkvæmdum sem hafa haft áhrif á kostnaðaáætlanir. Skrifað var undir uppfærslu sáttmálans hinn 21. ágúst 2024. Með uppfærslunni var gildistími sáttmálans lengdur til ársins 2040 til að tryggja raunhæfan tímaramma fyrir undirbúning og fjármögnun. Skipting fjármögnunar milli ríkis og sveitarfélag verður hin sama og áður, þ.e. sveitarfélög með 12,5% og ríkið 87,5%.
Samhliða uppfærslunni undirrituðu ríkið og sveitarfélögin samkomulag um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Samkomulagið felur í sér að sveitarfélögin og ríkið stofni sameiginlegt félag sem beri ábyrgð á skipulagi og rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Rekstur nýja félagsins mun taka hvort tveggja til hefðbundinna strætisvagnaleiða og Borgarlínu. Ríkið mun bera þriðjung af rekstrarkostnaði að frádregnum farþegatekjum á móti sveitarfélögunum. Þá mun ríkið veita framlög til orkuskipta almenningssamgangna. Stýrihópur sem falið var að undirbúa stofnun þessa félags, en í honum eiga SSH þrjá fulltrúa, hefur verið að störfum síðan, en verkefnið hefur reynst yfirgripsmikið. Er stefnt að því að nýtt félag, Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., í eigu ríkis og sveitarfélaga, taki til starfa á næstunni.
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins: Höfuðborgarsvæðið 2040
Gildandi svæðisskipulag: Höfuðborgarsvæðið 2040, var undirritað 2015 og er sameiginleg stefna sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kjósarhrepps, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar um náið samstarf, skipulagsmál og hagkvæman vöxt svæðisins næstu 25 árin, enda er höfuðborgarsvæðið eitt búsetusvæði og einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir og náttúru. Árið 2018 var samþykkt breyting á svæðisskipulaginu þar sem skilgreindir voru samgöngu – og þróunarásar fyrir hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu fyrir Borgarlínu.

Kjarnar og vaxtamörk
Verkefni tengd framfylgd svæðisskipulags hafa verið fyrirferðarmikil í starfi SSH. Þar ber hæst að nefna stofnun Betri samgangna ohf. sem hafa yfirumsjón með framkvæmdum Samgöngusáttmálans árið 2020 og uppfærslu Samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga árið 2024.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins er hýst hjá SSH og starfar samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna um svæðisskipulag og starfsreglum nefndarinnar. Núverandi nefnd tók til starfa í ágúst 2022 í kjölfar sveitarstjórnarkosninga. Formaður er Hjálmar Sveinsson fulltrúi Reykjavíkurborgar í nefndinni og var hann kjörinn á aukafundi nefndarinnar þann 6. febrúar 2025. Pawel Bartoszek lét af formennsku í janúar sama ár. Varaformaður er Hjördís Ýr Johnson fulltrúi Kópavogs. Nefndin fundaði tíu sinnum frá nóvember 2024 til október 2025 og tók fyrir tæp 50 erindi.

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins kveður fráfarandi formann. Frá vinstri: Sævar Birgisson, Hjördís Ýr Johnson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Pawel Bartoszek (fráfarandi formaður), Magnús Ingi Kristmannsson, Björg Fenger, Stefán Már Gunnlaugsson og Svana Helen Björnsdóttir
Heimsókn til Hafnarfjarðar
Ein af áherslum nefndarinnar fyrir kjörtímabilið 2022-2026 er að heimsækja sveitarfélögin sem standa að svæðisskipulaginu og kynnast starfi skipulagssviða þeirra.

Frá gönguferð um miðsvæði Hafnarfjarðar
Þann 14. febrúar 2025 heimsótti nefndin Hafnarfjarðarbæ í boði skipulagsnefndar og umhverfis- og skipulagssviðs bæjarins. Skipulagsfulltrúum aðildarsveitarfélaga SSH og starfsfólki skipulagsdeildar Hafnarfjarðarbæjar var boðið að taka þátt. Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar kynnti helstu skipulagsverkefni bæjarins og leiddi gönguferð um miðsvæði bæjarins.

Skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar kynnti helstu skipulagsverkefni
Á dagskrá nefndarinnar er að heimsækja Seltjarnarnes og Kjósarhrepp veturinn 2025-2026.
Kynningar fyrir svæðisskipulagsnefnd
Svæðisskipulagsnefnd hefur fengið fjölda heimsókna og kynninga á fundum sínum. Í nóvember 2024 fékk nefndin kynningu á niðurstöðum starfshóps skipuðum af innviðaráðherra um bættar samgöngur til Keflavíkurflugvallar. Í desember sama ár fékk nefndin kynningu frá Strætó bs. um leiðakerfi Strætó og breytingar á því. Skipulagsstofnun kynnti hlutverk og verkefni stofnunarinnar á fundi nefndarinnar í maí 2025. Framkvæmdastjóri Almannavarna heimsótti nefndina í júní 2025 og kynnti niðurstöður og stöðu vinnu við uppfærslu á hættu- og áhættumati vegna eldgosavár fyrir allan Reykjanesskaga. Vinnu við Þróunaráætlun 2020-2024 lauk árið 2024 og var hún kynnt fyrir svæðisskipulagsnefnd í október 2024. Nefndin hefur einnig fengið fjölda kynninga frá fulltrúum sveitarfélaganna á hinum ýmsu skipulagsmálum og frá ráðgjöfum sem unnið hafa að verkefnum sóknaráætlunar.
Ferðavenjukönnun 2025
Svæðisskipulagsnefnd styrkir og tekur þátt í ferðavenjukönnun haustið 2025 og nær hún yfir allt landið en sambærileg könnun var síðast unnið árið 2022. Svæðisskipulagsstjóri er fulltrúi nefndarinnar í þeirri vinnu og er könnunin unnin í samstarfi innviðaráðuneytisins og fleiri hagaðila.

Ljósmynd úr safni Reykjavíkurborgar
Vatnsvernd og vatnsnýting
Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu
Hópinn skipa formaður svæðisskipulagsnefndar, formaður framkvæmdastjórnar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúar frá vatnsveitum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk hópsins er: Að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þau mál og viðfangsefni sem lúta að vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins og verkefni sem henni tengjast á hverjum tíma; að tryggja samstillingu þeirra aðila sem bera ábyrgð á vatnsvernd og vatnsnýtingu innan vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins, m.a. í samræmi við lögboðnar skyldur sveitarfélaganna, heilbrigðiseftirlits og veitna. Hópurinn fundar mánaðarlega á vettvangi SSH undir hatti svæðisskipulags.

Úr kortasjá SSH sem hér sýnir vatnsverndarsvæði
Rannsóknarborholur og mælingar grunnvatns í Bláfjöllum
Verkefnið á upphaf sitt í samkomulagi sveitarfélaganna í maí 2018 um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og mótvægisaðgerðum vegna vatnsverndar sem m.a. fela í sér fjölgun á rannsóknarborholum og rýni á grunnvatnslíkani og tillögur að grunnvatnsrannsóknum.
Framkvæmdir við þrjár rannsóknarborholur hófust í byrjun sumars 2024 að undangengnum samningum við Jarðval sf. vegna jarðvinnu og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um jarðboranir, auk samninga við COWI vegna Verkefnastjórnunar og eftirlits. Borun einnar holu er lokið, en jarðlög á svæðinu eru þannig að líkur eru á að skipta þurfi um boraðferð við áframhaldandi borun. Ákveðið var á fundi samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu þann 30. janúar 2025 koma af stað mælingum á svæðinu í rannsóknarholunni sem boruð hefur verið og öðrum holum sem fyrir eru í nágrenninu. Sumarið 2025 hófust mælingar í tveimur holum á svæðinu. Áætlað er að ákvarðanir um áframhaldandi boranir á svæðinu verði teknar þegar niðurstöður mælinga liggja fyrir. Mikilvægt er að samráðshópurinn starfi áfram og vinni að sameiginlegum verkefnum vatnsverndar og vatnsnýtingar.

Ljósmynd úr safni Reykjavíkurborgar
Grunnvatns- og rennslislíkan höfuðborgarsvæðisins
Helsta verkefni samráðshópsins er umsjón með grunnvatns- og rennslislíkani höfuðborgarsvæðisins. Líkanið er hýst hjá ráðgjafarstofunni Vatnaskilum og gegnir lykilhlutverki í framfylgd vatnsverndar sem og við mat á áhrifum nýrra framkvæmda eða starfsemi á aðrennslissvæðum vatnsbóla höfuðborgarsvæðisins. Líkanið er í stöðugri endurskoðun með gagnasettum sem eru sótt m.a. í vatnamæla sem eru í borholum á höfuðborgarsvæðinu. Mælingar í borholum á Bláfjallasvæðinu eru liður í að styrkja grunn vatnafarslíkansins sem veitufyrirtækin á höfuðborgarsvæðinu viðhalda. Kostnaður vegna viðbótargrunnrannsókna skiptist á milli vatnsveitna á höfuðborgarsvæðinu.
Framtíðarstaðsetning skotíþrótta á höfuðborgarsvæðinu - starfshópur
Þann 5. febrúar 2024 samþykkti stjórn SSH, að ósk borgarráðs Reykjavíkurborgar, að fela svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins það verkefni að stofna stýrihóp sem greina ætti tillögur að framtíðarstaðsetningu íþróttamiðstöðvar skotíþrótta
Stýrihópur var skipaður í júní 2024 og hann skipuðu fulltrúar frá Svæðisskipulagsnefnd, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavíkurborg, Vogum, Ölfusi, Skotíþróttasambandi Íslands og Skotveiðifélagi Íslands. Með stýrihópnum störfuðu svæðisskipulagsstjóri (Jón Kjartan Ágústsson og síðar Ásdís Ólafsdóttir) og Stefán Gunnar Thors, ráðgjafi hjá VSÓ Ráðgjöf.
Meðal hlutverka hópsins var að meta og greina staðarvalkosti út frá umhverfisþáttum, skipulagslegum þáttum, samgöngutengingum og öðrum mögulegum áhrifaþáttum. Í byrjun árs 2025 skilaði stýrihópurinn greinargerð með helstu niðurstöðum vinnunnar.

Ljósmynd úr safni Mosfellsbæjar
Þróunaráætlun
Vinnu við Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins lauk haustið 2024. Niðurstöður hennar voru kynntar fyrir stjórn SSH þann 7. október 2024 og svæðisskipulagsnefnd 25. október sama ár. Síðan þá hafa niðurstöður þróunaráætlunar verið notaðar í kynningar SSH meðal annars á opnum fundi HMS um stöðu íbúðauppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu þann 2. janúar 2025 og á Skipulagsdeginum, árlegri ráðstefnu Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál, þann 23. október 2025.
Þróunaráætlunin er sú þriðja sem unnin er á grunni Svæðiskipulags höfuðborgarsvæðisins: Höfuðborgarsvæðið 2040, en áður hafði SSH látið vinna þróunaráætlun fyrir tímabilin 2015-2018, 2020-2024 og stöðutöku árið 2022.
Með þróunaráætlun er lögð áhersla á að samræma áætlanir sveitarfélaganna um uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis, auk annarra aðgerða til að ná fram markmiðum svæðisskipulags um þróun höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040. Þróunaráætlun er einnig ætlað að miðla upplýsingum um stöðuna og uppbyggingaráform. Í þróunaráætlun er fjallað um heimildir í skipulagi fyrir byggingu íbúða, þ.e.a.s. óbyggt húsnæði í skipulagi. Tölulegar upplýsingar ná ekki til húsnæðis í byggingu, en þær má finna á vefsíðu HMS.
Nýjar áherslur í framlagðri þróunaráætlun 2024 eru að skoða aldur skipulagsheimilda á höfuðborgarsvæðinu, hlutfall samþykktra skipulagsheimilda á byggingarhæfum lóðum, eignarhald lóða og húsnæði án hagnaðarsjónarmiða.
Samantekt – helstu niðurstöður

Kort úr vefsjá þróunaráætlunar
Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029

Hinn 17. febrúar 2025 samþykkti stjórn SSH sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2025–2029. Byggist sú áætlun á samningi um sóknaráætlanir landshluta sem undirritaður var við innviðaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 28. janúar 2025.
Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat höfuðborgarsvæðisins, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum. Verkefnið er hluti af sóknaráætlun landshluta sbr. nýjan samning sem sagt var frá hér að framan, en tekur jafnframt mið af þeirri stefnu og framtíðarsýn sem kemur fram í Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015–2040.
Framfylgd sóknaráætlunar felst í að vinna að ákveðnum áhersluverkefnum fyrir hvert ár yfir tímabilið. Áhersluverkefni eru samþykkt af stjórn SSH og stýrt af SSH í samstarfi við sérstaka ráðgjafa og/eða verkefnastjóra. Á heimasíðu SSH er að finna ítarlegar upplýsingar um sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og verkefni sem unnin eru undir hatti hennar.
Áhersluverkefni 2024 og 2025
Á tímabilinu var unnið að eftirfarandi áhersluverkefnum sóknaráætlunar:
Útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins
Verkefnið fólst í því að útbúa vefsíðu sem dregur fram helstu útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu og aðrar tómstundir fyrir íbúa og gesti, með það að markmiði að stuðla að aukinni hreyfingu og útivist. Útivistarvefurinn utumallt.is var opnaður í byrjun febrúar 2025 og hefur fengið góðar viðtökur en þar er að finna ítarlega upplýsingar um útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir. SSH naut ráðgjafar frá Sjá ehf. við verkefnastjórnun og Um að gera ehf. sá um hönnun, smíði og uppsetningu á vefnum. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins er samstarfsaðili verkefnisins og sér um hýsingu og rekstur útivistarvefsins samkvæmt samningi við SSH.
Útivist við vötn, haf og gönguskíðaiðkun
Hinn 19. júní 2024 var gengið til samninga við TÓ arkitekta um verkefnastýringu verkefnisins. Verkefninu er ætlað að styðja við aukna útivist og hreyfingu íbúa. Í verkefninu fólst að kortleggja svæði á höfuðborgarsvæðinu sem hentað gætu fyrir útivist og leiki sem tengjast vötnum, hafi og gönguskíðaiðkun hvar slík notkun eða tengd þjónusta og/eða starfsemi sé til staðar og hvar megi styrkja hana enn frekar og á hvaða hátt. Skýrsla TÓ arkitekta um verkefnið lá fyrir í byrjun árs 2025 og hefur hún verið kynnt fyrir svæðisskipulagsnefnd á fundi hennar í maí 2025 og einnig fyrir kjörnum fulltrúum á svokölluðum örfundi á vegum SSH.
Forvarnir og geðrækt ungmenna á höfuðborgarsvæðinu
Gengið var til samninga við verkefnastjóra frá NORTH Consulting um verkefnastýringu þann 7. júní 2024. Markmið verkefnisins var að vinna að samræmdum viðmiðum og áætlunum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um forvarnir og geðrækt ungmenna, byggt á þarfagreiningu og könnun á afstöðu hópsins sjálfs. Verkefnið fólst í því að vinna með samráðshópi sveitarfélaganna að drögum um samræmd viðmið og áætlanir sveitarfélaganna um þjónustu til að draga úr skólaforðun og brottfalli úr námi, íþróttum og atvinnu. Eins að greina tölfræðiupplýsingar um afdrif barna að loknum grunnskóla og vinna að þróun tillagna verkefna fyrir börn og ungmenni á sviði forvarna og geðræktar.
Verkefninu lauk á vordögum 2025 með kynningum og yfirferð í stjórn SSH. Var starfshópnum falið að vinna áfram að verkefninu og móta frekari tillögur að næstu skrefum hvað varðar framkvæmd þess. Mun því samráðshópurinn starfa áfram og undir stjórn verkefnastjóra farsældar.
Móttaka barna með fjölbreyttan menningarbakgrunn
Markmiðið með verkefninu er að greina fjölda og stöðu barna með annað móðurmál en íslensku í skólakerfinu á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að bæta verklag við móttöku barna og stuðning við þau í skóla- og frístundastarfi. Verkefnið felst í því að kortleggja þörf og umfang þjónustu til nýrra íbúa á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að skóla- og frístundastarfi og kostnaðarmeta þessa þjónustu. Verkefnið er enn á vinnslustigi.
Þróun Hvítá til Hvítár svæðisins (SV hornið)
Hinn 18. júní 2024 var gengið til samninga við Nordic Office of Architecture um verkefnastýringu. Markmiðið með verkefninu var að greina framtíðarbyggðaþróun þéttbýlis umhverfis höfuðborgarsvæðið og móta mismunandi sviðsmyndir til ársins 2050. Skoðað var hver áhrifin geta orðið með tilliti til m.a. atvinnumála og samkeppnishæfni, ferðatíma allra ferðamáta og umferðarmagns, gæða og ásýnd bæjarrýma og húsnæðis og lýðfræði.
Skýrsla um verkefnið lá fyrir í ársbyrjun 2025 og hefur hún verið kynnt fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og stjórn SSH. Hún var kynnt fyrir öðrum kjörnum fulltrúum á svokölluðum örfundi á vegum SSH.
Forkönnun á sameiginlegum innkaupavef
Markmiðið með verkefninu er að greina hvort fýsilegt sé að setja á laggirnar sameiginlegan innkaupavef til að ná fram hagkvæmni í innkaupum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Var samið við Sjá ehf. um að annast forkönnun á fýsileika þessa verkefnis og lágu niðurstöður hennar fyrir í maí 2024. Verkefnið er enn á vinnslustigi og í byrjun nóvember 2025 ákvað stjórn SSH að breyta tilhögun verkefnisins með stofnun samráðshóp um innkaupamál á höfuðborgarsvæðinu. Mun hópurinn hefja störf fljótlega.
Invest in Reykjavík – áframhaldandi þróun og staðsetning
Hinn 4. júní 2024 var gengið til samninga við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins um áframhaldandi þróun á vefnum Invest in Reykjavík og greiningu á því hvar verkefninu verði best fyrirkomið til framtíðar m.t.t. stofnunar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Markmið Invest in Reykjavík er að veita væntanlegum fjárfestum á einum stað helstu upplýsingar um höfuðborgarsvæðið sem staðarvalkost fjárfestinga þvert á markaði. Vinna við verkefnið stendur enn yfir.
Fráveitumál höfuðborgarsvæðisins
Markmið verkefnisins er að kortleggja og greina fráveitumál höfuðborgarsvæðisins, þ.m.t. framkvæmdir á svæðinu og rekstrarfyrirkomulag. Einnig að greina þær kröfur sem löggjafinn leggur á herðar sveitarfélögunum í lögum, reglugerðum og stefnumótandi áætlunum. Ráðgjafahópur var skipaður vegna málsins og skilaði hann minnisblaði með tillögum um næstu skref í maí 2024.
Verkefnið stendur enn yfir og hefur Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH verið skipaður af umhverfis-, orku og loftslagsráðherra í samráðshóp um fráveitumál. Megintilgangur hópsins er að efla samvinnu og samráð varðandi fráveitur og er samráðshópnum m.a. falið að:
Endurnotkun á textíl
Umfang textílúrgangs hefur aukist hratt og er hann nú einn stærsti úrgangsflokkurinn frá heimilum. Flokkun hans er kostnaðarsöm og endurvinnslumarkaður takmarkaður. Hinn 30 ágúst 2024 undirrituðu SORPA og SSH samning um eins árs tilraunaverkefni um endurnotkun textíls. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið styrkti verkefnið. Verkefninu sem slíku er lokið og skýrsla um það hefur verið gefin út og kynnt fyrir kjörnum fulltrúum á örfundi. Í tengslum við verkefnið var komið upp nýrri flokkunaraðstöðu í Gufunesi og fataflokkunarlager í Góða hirðinum. Verkefnið skilaði nokkrum árangri í auknum endurnotum – sala á notuðum fötum í Góða hirðinum jókst t.a.m. um 91% milli ágúst 2024 og Ágúst 2025 og fjölmargir samstarfsaðilar, m.a. Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík, hafa nýtt textíl í skapandi verkefni. Í skýrslu um verkefnið er sjónum líka beint að þeim áskorunum sem uppi eru í tengslum við meðferð textílúrgangs og ýmsar tillögur settar fram til úrbóta.
Nýting gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
SSH og fyrirtækið DataLab gerðu samning um vinnu við kortlagningu tækifæra við nýtingu gervigreindar hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Með gervigreind er hægt að greina gögn hraðar, spá fyrir um þörf á þjónustu og taka upplýstari ákvarðanir, til dæmis í skipulagsmálum. Sjálfvirk svörun spurninga getur sparað tíma og auðveldað samskipti við íbúa. Verkefnið gekk út á að skoða hvernig sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt sér tækni gervigreindar á sameiginlegum vettvangi til að auka skilvirkni og bæta þjónustu við íbúa.
DataLab skilaði skýrslu sinni með tillögum að úrbótaverkefnum og verkefnum sem sveitarfélögin geta staðið saman að og varða framangreint verkefni í október 2025. Hefur skýrslan verið kynnt á örfundi SSH. Á stjórnarfundi SSH í nóvember 2025 var lögð fram tillaga að framhaldsverkefni á sviði gervigreindar sem snýr að því að vinna áfram að verkefninu á grundvelli þeirra tillagna sem nú liggja fyrir.
Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu
Í júní 2025 var gengið til samninga við EFLU um verkefnastjórn og úrvinnslu verkefnisins. Markmið verkefnisins er að greina og móta sameiginlegar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu vegna álagsdreifingar umferðar um svæðið. Framundan eru umfangsmiklar framkvæmdir vegna Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og á meðan og til framtíðar er því sérstaklega mikilvægt að leita leiða til að bæta flæði samgöngumáta á svæðinu. Listaðir verða upp möguleikar til bætts umferðaflæðis á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi stofnana og fyrirtækja á svæðinu. Bætt umferðarflæði hefur bæði áhrif á ferðatíma þeirra sem ferðast með almenningssamgöngum og einkabíl. Sem liður í verkefninu var þann 30. september 2025 haldin vinnustofa um mögulegar aðgerðir til álagsdreifingar. Um 30 fulltrúar frá stofnunum, fyrirtækjum, framhaldsskólum og sveitarfélögum tóku þátt í vinnustofunni. Vinna við verkefnið stendur yfir og stefnt er að því að greinargerð um niðurstöður þess liggi fyrir í árslok.
Staða og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Í júní 2025 var gengið til samninga við EFLU um verkefnastjórn verkefnisins. Markmið þess er að greina núverandi stöðu og framtíðarþróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Ýmsir aðilar greina í dag stöðu íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu, svo sem SSH (þróunaráætlanir), sveitarfélögin, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og einkaaðilar. Þörf er á að samræma greiningar og áætlanir ofangreindra aðila og fá heildarsýn yfir stöðu og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess að greina stöðu íbúða- og atvinnuhúsnæðis verður framtíðarþróun skoðuð með tilliti til mannfjöldaspár og skipulagsheimilda. Verkefnið er unnið sem samstarfsverkefni SSH, Samtaka Iðnaðarins (SI) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Verkefnið er í vinnslu og er stefnt að því að greinagerð liggi fyrir í lok árs 2025.
Innviðagreining og þróun húsnæðismála á höfuðborgarsvæðinu
Þann 16.júlí 2025 var gengið til samninga við VSÓ ráðgjöf um vinnu og verkefnastýringu verkefnisins. Markmið þess er að gera ítarlegar greiningar á innviðum með tilliti til þróunar húsnæðismála. Í verkefninu felst að greina stöðu innviða innan sveitarfélaga og hverfa með tilliti til íbúafjölda og íbúaþéttleika. Dæmi um innviði sem skoðaðir verða eru leikskólar, grunn- og framhaldsskólar, heilbrigðisþjónusta, bókasöfn, íþróttaaðstaða, sundlaugar, græn svæði, almenningssamgöngur, bílastæði, hafnir, verslun og önnur þjónusta. Kortlögð verða tækifæri og áskoranir sem felast í stöðu innviða með tilliti til íbúaþróunar. Greiningin mun styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku um framtíðaruppbyggingu og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er í vinnslu.
Lykiltölur hins byggða umhverfis
Þann 16. júlí 2025 var gengið til samninga við VSÓ ráðgjöf um vinnu og verkefnastýringu verkefnisins. Markmið þess er að gera samanburðargreiningu á lykiltölum hins byggða umhverfis og gæða þess og bera saman við önnur borgarsvæði. Dæmi um lykiltölur eru þéttleiki byggðar, nýtingarhlutfall, bílaeign, aðgengi að almennings-, göngu- og hjólainnviðum o.s.frv. I verkefninu verður höfuðborgarsvæðinu skipt upp í svæði og lykiltölur greindar. Gerð er samanburðargreining á lykiltölum við borgarsvæði erlendis og greind tækifæri og áskoranir til áframhaldandi þróunar. Verkefnið er í vinnslu.
Samspil og virkni velferðarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Markmið þessa verkefnis er að greina nánar umfang velferðarþjónustu, að hvaða leyti hún hafi breyst á undangengnum árum, hvort þjónustþörf hafi aukist, og hvort fjármögnun hennar sé trygg þannig að ekki leiði til þjónustufalls. Til stendur að skoða ábyrgð og verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga sérstaklega og greina nánar hvort, og þá í hvaða tilvikum, notendur upplifi sig „á milli kerfa“. Verkefnið er unnið með aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa, HLH ráðgjafar ehf., og vænt lokaafurð verður í formi samantektar sem greinir verkaskiptingu milli þjónustukerfa og dregur sérstaklega fram hvað hefur breyst í velferðarþjónustu á víðum grunni undangengin ár, hvað varðar t.a.m. umfang og þjónustuþörf.
Álag í skólastarfi - ástæður og úrbætur
Markmið verkefnisins er að greina ástæður álags innan skólakerfisins og móta tillögur að aðgerðum til úrbóta og styrkja þannig jákvæða ímynd skólastarfsins. Verkefnastjórar taka rýnihópaviðtöl í 25 ólíkum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og safna einnig upplýsingum í gegnum spurningakönnun. Út frá þessum upplýsingum verða greindar helstu ástæður álags og settar fram tillögur um sameiginleg úrbótaverkefni sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geti ráðist í til að draga úr álagi í skólastarfi. Niðurstöður og tillögur að úrbótum eru væntanlegar í mars 2026. Verkefnastjórar eru dr. Lilja M. Jónsdóttir og dr. Ingvar Sigurgeirsson kennslufræðingar og fyrrverandi háskólakennarar.
Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu
Markmið þessa verkefnis er að greina fýsileika þess að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eigi samstarf um uppbyggingu sérskóla í samstarfi við ríkið. Staða barna á höfuðborgarsvæðinu með auknar þjónustuþarfir, hvort sem er vegna fötlunar, veikinda, yfirgripsmikilla hegðunarvandamála eða annars er skoðuð sérstaklega og kannað hvernig komið er til móts við þær þarfir innan skólakerfisins. Verkefnið er unnið með aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa, HLH ráðgjafar ehf., sem m.a. safnar gögnum og tekur viðtöl við aðila innan mennta-, velferðar- og heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að greina núverandi stöðu, kanna hvort fýsilegt sé að koma á fót sérskóla á svæðinu og hvernig samstarfi í kringum það verði þá best háttað. Verklok eru áætluð í lok árs 2025.
Kostnaður og umsjón áhersluverkefna sóknaráætlunar
Umsjón með áhersluverkefnum sóknaráætlunar er stór þáttur í starfsemi. Verkefnin eru eftir atvikum unnin með aðkomu utanaðkomandi verkefnastjóra. Framlag til verkefnanna er að stærstum hluta fjármagnað úr ríkissjóði en einnig með framlagi SSH, sem nemur um 17% af framlagi ríkisins ár hvert.
Yfirlit yfir sóknaráætlunarverkefni á vegum SSH 2020-2024

Ljósmynd frá Kjós
Farsældarráð
Hinn 10. október 2024 voru undirritaðir samningar milli barna- og menntamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga um ráðningu verkefnisstjóra sem hafa það hlutverk að leiða undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Stofnun svæðisbundinna farsældarráða er hluti af innleiðingu laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sbr. 5. gr. laganna. Þann 1. febrúar 2025 hóf verkefnastjóri svæðisbundins farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, Hanna Borg Jónsdóttir, störf hjá SSH. Er hún ráðin til tveggja ára og fyrir lok samningstímans skal ráðið hafa verið skipað og vinna við fyrstu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna hafin. Á landinu starfa nú átta verkefnastjórar svæðisbundinna farsældarráða og vinna þeir náið saman og í samráði við Barna- og fjölskyldustofu, barna- og menntamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tilgangurinn með stofnun ráðsins er að auka og treysta svæðisbundið samráð mismunandi þjónustuveitenda bæði á vegum sveitarfélaga og ríkis. Hlutverk ráðsins er að greina stöðu barna á höfuðborgarsvæðinu og forgangsraða aðgerðum í þágu farsældar barna til fjögurra ára. Mismunandi þjónustuveitendur vinna þannig saman að sömu markmiðum og samskonar þjónustuveitendur geta betur samræmt sína þjónustu.
Undirbúningur stofnunar ráðsins hefur gengið vel. Fyrir liggur að í ráðinu munu sviðsstjórar velferðar- og menntasviða eða staðgenglar þeirra sitja fyrir hönd Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar sem fulltrúar leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva, barnaverndar og félagsþjónustu. Auk þeirra sitja í ráðinu fulltrúi lögreglu, heilsugæslunnar, framhaldsskólanna og íþróttahreyfingarinnar.
Áætlað er að ráðið hefji störf í nóvember.

Ljósmynd úr safni Hafnarfjarðar
Byggðasamlögin
Í starfs- og fjárhagsáætlun SSH 2020 var ákveðið að hefja umræðu og stofna til verkefnis um stjórnsýslulega stöðu byggðasamlaganna. Utanaðkomandi ráðgjafi (Strategía) var fenginn til að vinna úttekt og skýrslu varðandi skipulag og stjórnarhætti byggðasamlaganna á höfuðborgarsvæðinu. Að lokinni kynningu og umfjöllun um skýrsluna var ákveðið að koma á fót starfshópi kjörinna fulltrúa til að vinna áfram að verkefninu. Lagði hópurinn til að Stefnuráði byggðasamlaga yrði komið á fót og því m.a. falið að útfæra og móta tillögur að framtíðarsviðsmyndum og rekstrarfyrirkomulagi byggðasamlaganna. Stjórn SSH féllst á þá tillögu og var skrifstofu SSH falið að vinna drög að viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. til að festa hlutverk stefnuráðs í sessi. Stefnuráð er skipað 20 fulltrúum, þ.e. þremur fulltrúum frá hverju sveitarfélaganna utan Reykjavíkur, sem á fimm fulltrúa í ráðinu. Enn sem komið er hefur framangreint þó ekki leitt til gagngerra breytinga á stjórnsýslu byggðasamlaganna og eru því enn haldnir reglulegir eigendafundir Strætó bs. og Sorpu bs. á vettvangi SSH. Byggir sú tilhögun á sérstökum eigendastefnum byggðasamlaganna Sorpu bs. og Strætó bs. sem voru samþykktar á árinu 2013 í kjölfar stjórnsýsluúttektar.
Fyrsti fundur stefnuráðs var haldinn hinn 22. nóvember 2021 og hefur ráðið fundað alls þrettán sinnum. Meðal þess sem hefur verið til umræðu eru verkefni byggðasamlaganna Sorpu bs. og Strætó bs. og verkefni sveitarfélaganna á sviði úrgangsmála, sem hafa tekið nokkrum breytingum með nýrri löggjöf og hvernig þeim verkefnum verði best fyrir komið. Þá skipaði stefnuráð sérstakan starfshóp í úrgangsmálum sem m.a. lagði fram tillögur að samræmdum samþykktum sveitarfélaganna á sviði úrgangsmála. Þær tillögur hafa nú verið innleiddar í nýjum samþykktum.
Fyrirhugaðar og nauðsynlegar breytingar á rekstrarformi einstakra verkefna Sorpu bs. í kjölfar skoðunar ESA á tekjuskattsundanþágu þess hafa þá verið nokkuð til skoðunar hjá Stefnuráði en á fundi sínum 14. ágúst 2024 féllst stefnuráð fyrir sitt leyti á að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. yrði færð í félag/félög með takmarkaðri ábyrgð eigenda. Nánari tillögur vinnuhóps um hvernig staðið verði að þeim breytingum voru svo lagðar fyrir fund stefnuráðs 7. nóvember 2025.
Hvað varðar Strætó bs. þá er fyrirséð að breytingar verði á starfsemi þess á næstunni. Samkomulag sem ríki og sveitarfélög skrifuðu undir 21. ágúst 2024 felur í sér að sveitarfélögin og ríkið stofni sameiginlegt félag sem beri ábyrgð á skipulagi og rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Undirbúningur þessa stendur nú yfir.
Ekki hefur verið mótuð eigendastefna eða eigendavettvangur fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. en í stjórn þess sitja framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaganna, þ.e. borgarstjóri og bæjarstjórar sveitarfélaganna á svæðinu.

Ljósmynd úr safni Kópavogs
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Sorpa bs.
Strætó bs.
Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu

Hinn 1. janúar 2022 tók nýr samstarfssamningur sveitarfélaganna um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins gildi, en eldri samningur þeirra rann út á sama tíma. Við gerð hins nýja samnings, en hann var unninn á vettvangi SSH með aðkomu Samstarfsnefndar skíðasvæðanna og í kjölfarið sendur sveitarfélögunum til afgreiðslu, var leitast við að skýra verkferla og hlutverk aðila sem koma að rekstri skíðasvæðanna. Samstarfsnefnd skíðasvæðanna, sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju aðildarsveitarfélaga skíðasvæðanna, hefur m.a. það hlutverk að móta tillögur um stefnu og starfs- og fjárhagsáætlun skíðasvæðanna og að hafa eftirlit með rekstri þeirra.
Rekstur svæðanna, svo sem er varðar starfsmannahald, fjárreiður og bókhald er svo í höndum Reykjavíkurborgar samkvæmt sérstökum þjónustusamningi þar um. Það eru fulltrúar í stjórn SSH hverju sinni sem skipa eigendavettvang skíðasvæðanna. Eigendavettvangur fjallar um starfs- og fjárhagsáætlun skíðasvæðanna og önnur mál sem varða stefnumótun eða meiri háttar fjárhagslegar ákvarðanir sem falla utan samþykktra áætlana.
Framkvæmdir á skíðasvæðunum
Haustið 2017 fór af stað vinna hjá Samstarfsnefnd skíðasvæðanna við mótun framtíðarsýnar skíðasvæðanna en þörf var talin orðin á því að endurnýja lyftukost svæðanna og huga að snjóframleiðslu. Tillögur lágu fyrir í lok árs 2017 og var þeim fylgt eftir með kynningum í öllum bæjarráðum í mars 2018.
Á fundi sínum hinn 5. mars 2018 samþykkti stjórn SSH, sem er eigendavettvangur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, að skipa sérstakan verkefnahóp til að undirbúa tillögu að aðgerða- og framkvæmdaáætlun á grundvelli áðurnefndrar vinnu við framtíðarsýn á uppbyggingu og rekstri skíðasvæðanna. Hópurinn hefur verið starfræktur síðan, samkvæmt upphaflegu erindisbréfi og viðauka við það, sem var samþykktur á fundi stjórnar SSH hinn 2. mars 2020.
Hinn 7. maí 2018 undirrituðu framkvæmdastjórar þeirra sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem reka Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Verkefnahópurinn hefur eftirlit með þessum framkvæmdum en jafnframt var ráðinn sérstakur verkefnastjóri vegna þeirra.
Þrír viðaukar hafa síðan verið gerðir við samkomulagið, Viðauki I dags. 6. mars 2020, Viðauki II dags. 24. febrúar 2021, og Viðauki III dags 5. maí 2022 en með þeim voru m.a. gerðar uppfærslur á upphaflegri kostnaðar- og tímaáætlun verkefnisins, en þær röskuðust eitthvað, m.a. vegna áhrifa Covid-19.
Voru skíðalyfturnar Gosi og Drottning teknar í notkun í lok árs 2022, en upphaflega var ekki gert ráð fyrir afhendingu Drottningar fyrr en haustið 2023. Þá fóru fram útboð vegna annars vegar kaupa á snjóframleiðslubúnaði og hins vegar vegna borunar vinnsluholu fyrir snjóframleiðslu og er snjóframleiðsla nú hafin í Bláfjöllum. Þá hefur einnig verið hugað að bættri aðstöðu fyrir gönguskíðaiðkun og var nýtt salernishús á suðursvæði Bláfjalla tilbúið til notkunar haustið 2022.
Aðrar framkvæmdir hafa enn ekki farið af stað og er núna unnið að tillögugerð á vettvangi stjórnar SSH og samstarfsnefndar skíðasvæðanna.
Höfuðborgargirðing
Frá árinu 1987 hafa SSH annast rekstur og viðhald á fjárheldri girðingu um höfuðborgarsvæðið, en hún var lögð að frumkvæði samtakanna. Lausaganga búfjár er bönnuð innan girðingarinnar, og markmiðið með henni er að koma í veg fyrir ágang og ónæði vegna búfjár í útjaðri byggðar á höfuðborgarsvæðinu.
Bæði er um að ræða tilfallandi viðhaldsaðgerðir, t.a.m. ef rof kemur á girðinguna, en einnig getur verið nauðsynlegt að ráðast í umfangsmeiri endurnýjun og endurbætur á girðingunni. Er viðhaldsþörf metin á hverju vori og eftir þörfum og aðstæðum þess á milli. Á árinu 2024 var gengið til samninga við nýjan verktaka til að sinna eftirliti, viðhaldi og rekstri girðingarinnar.

Kort sem sýnir hofuðborgargirðingu í austurhluta höfuðbogarsvæðisins, merkt með gulri línu
Kynningarmál og samtal við kjörna fulltrúa
Kynningarfundir
SSH standa reglulega fyrir kynningar- og umræðufundum, svokölluðum örfundum, fyrir kjörna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu og eftir atvikum aðra aðila eins og lykilstarfsfólk sveitarfélaganna í hlutaðeigandi málaflokkum og þingmenn höfuðborgarsvæðisins.
Á fundunum eru þau málefni sem eru efst á baugi kynnt og tekin til umræðu. Fundirnir eru almennt í fjarfundaformi og stefnt er að því að hver fundur sé aðeins klukkustundar langur. Þessir fundir hafa verið vel sóttir og er almenn ánægja með þá, en frá aðalfundi SSH 1. nóvember 2024 hafa verið haldnir fundir til kynningar á eftirfarandi:
Fyrirkomulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu
Samhliða uppfærslu Samgöngusáttmálans var skrifað undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald. Sammæltust aðilar þar um að koma á fót nýju sameiginlegu félagi sem annist þróun, skipulag og rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í kjölfarið var skipaður sérstakur stýrihópur ríkis og sveitarfélaga til að vinna að undirbúningi hins nýja félags og hefur hann verið að störfum síðan. Á fundinum voru vinna hópsins og áætlun um næstu skref kynnt fyrir kjörnum fulltrúum.
Unndís – verkfæri Vinnumálastofnunar til aukinnar atvinuþátttöku og inngildinga
Á fundinum fór fram kynning á Unndísi – verkfæri og leiðarvísi fyrir inngildandi vinnustaðamenningu með tilliti til fólks með mismikla starfsgetu. Verkefninu er ætlað að styðja við þær breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem varða aukna atvinnuþátttöku sem kallar á fjölgun hlutastarfa á vinnumarkaði.
Nýr útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins – utumallt.is
Uppsetning útivistarvefs höfuðborgarsvæðisins, Út um allt var eitt áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2024. Vefurinn var opnaður snemma árs 2025 og hefur fengið góðar viðtökur en á honum er að finna margvíslegar upplýsingar um gönguleiðir og útivistarsvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu. Á fundinum voru vefurinn og virkni hans kynnt fyrir kjörnum fulltrúum.
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu – Nýir notendur
Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2024 var verkefni um nýja notendur Strætó bs. Meðal þess sem var kannað var hvort viðhorf Strætónotenda til Strætó væri jákvæðara en viðhorf þeirra sem ekki nýta sér þjónustuna. Á fundinum voru afrakstur verkefnisins og niðurstöður viðhorfskönnunar kynnt fyrir kjörnum fulltrúum.
Forvarnir og geðrækt ungmenna á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnið forvarnir og geðrækt ungmenna á höfuðborgarsvæðinu var eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar árið 2024. Markmið verkefnisins var að vinna að samræmdum viðmiðum og áætlunum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um forvarnir og geðrækt ungmenna, byggt á þarfagreiningu og könnun á afstöðu hópsins sjálfs. Skýrsla um verkefnið var kynnt kjörnum fulltrúum á fundinum.
Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun
Kynning á verkefninu tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun sem var eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar árið 2024 en því var ætlað að styðja við aukna útivist og hreyfingu íbúa. Í verkefninu fólst að kortleggja svæði á höfuðborgarsvæðinu sem hentað gætu fyrir útivist og leiki sem tengjast vötnum, hafi og gönguskíðaiðkun, hvar slík notkun eða tengd þjónusta og/eða starfsemi sé til staðar og hvar megi styrkja hana enn frekar og á hvaða hátt.
Þróun Hvítá til Hvítár svæðisins
Verkefnið Hvítá - Hvítá var eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar árið 2024. Tilgangur þess var að kanna áhrif af áframhaldandi óbreyttum vexti þéttbýliskjarna innan Hvítár-Hvítár svæðisins á þróun höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050. Kannaðir voru áhrifaþættir eins og umferðarmagn, ferðatími, umhverfisáhrif, umferðaröryggi, gæði og ásýnd bæjarrýma, náttúrugæði, atvinnumál, samkeppnishæfni ofl.
Á fundinum voru niðurstöður skýrslu um verkefnið kynntar.
Kortlagning tækifæra í hagnýtingu gervigreindar
Unnið hefur verið að kortlagningu sameiginlegra tækifæra í hagnýtingu gervigreindar fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu en um er að ræða eitt af sóknaráætlunarverkefnum ársins 2025. Á fundinum fór fram kynning á verkefninu og skýrslu um það og þeim tillögum sem settar voru fram í henni.
Áhersluverkefni sóknaráætlunar: Tilraunaverkefni um endurnotkun textíls
SSH og Sorpa bs. gerðu með sér samning um sérstakt tilraunaverkefni um endurnot á textíl, en verkefnið var styrkt af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Textíll er viðamikill og kostnaðarsamur úrgangsflokkur en Sorpa tekur við um 3.000 tonnum af textíl á ári. Á fundinum var skýrsla um verkefnið og tillögur varðandi málaflokkinn kynntar fyrir kjörnum fulltrúum.

Ljósmynd úr safni Hafnarfjarðar
Samtal kjörinna fulltrúa við ráðherra og þingmenn
Sameiginlegur fundur kjörinna fulltrúa sveitarstjórna og þingmanna höfuðborgarsvæðisins
SSH buðu þingmönnum höfuðborgarsvæðisins ásamt ráðherrum og kjörnum fulltrúum sveitarstjórna á sameiginlegan fund. Á fundinum voru m.a. til umræðu staða barna með fjölþættan vanda og meðferðarkerfisins hér á landi svo og málefni fatlaðs fólks, m.a. í tengslum við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Fundur innviðaráðherra og sveitarstjórnarfólks á höfuðborgarsvæðinu
Að frumkvæði innviðaráðherra var í samstarfi ráðuneytisins og SSH haldinn fundur ráðherra með sveitarstjórnarfólki á höfuðborgarsvæðinu um málaflokka ráðuneytisins s.s. samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, fjarskipti og stafræna innviði.
Samstarfs- og verkefnahópar
Samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hefur m.a. einkennst af starfi ýmissa samstarfs- og verkefnahópa og nefnda sem unnið hafa á vettvangi SSH. Þessir hópar eru ýmist viðvarandi eða settir á laggirnar til að takast á við tímabundin verkefni.
Formlegar nefndir
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins:
Svæðisskipulagsnefndin byggir á ákvæðum skipulagslaga og er skipuð tveim fulltrúum frá hverju aðildarsveitarfélagi og tveimur til vara.
Skólamálanefnd SSH:
Nefndina skipa fræðslustjórar aðildarsveitarfélaganna að Kjósarhreppi undanskildum. Hún starfar samkvæmt sérstöku erindisbréfi og er ætlað að vera samráðs- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á sviði fræðslumála.
Stefnuráð byggðasamlaganna:
Stefnuráð starfar á grundvelli viðauka við stofnsamþykktir Strætó bs. og Sorpu bs. og er skipað 20 fulltrúum, þremur frá hverju sveitarfélagi utan Reykjavíkur og fimm frá Reykjavík.

Ljósmynd úr safni Reykjavíkur
Viðvarandi samstarfshópar
Samráðshópur á sviði velferðarmála
Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu
Fagráð svæðisskipulags
Stjórnir, nefndir og hópar
vegna verkefna sem SSH taka þátt í og forsvarsaðilar þeirra:
Almenningssamgöngur - Innviðaráðuneytið
Betri samgöngur (stjórn)
Höfuðborgarstefna - Innviðaráðuneytið
Neyðarstjórn höfuðborgarsvæðisins - vinnuhópur
Skotíþróttir - val á framtíðarstaðsetningu
Sóknaráætlun - Forvarnir og geðrækt hjá unglingum - SSH
Uppbygging skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins - SSH
Þemahópur norrænu ráðherranefndarinnar um byggðaþróun og skipulagsmál - Innviðaráðuneytið

Ljósmynd úr safni Seltjarnarness