Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa því, í tengslum við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2024–2029, ákveðið að ráðast í fýsileikagreiningu á því hvort skynsamlegt og raunhæft sé að sveitarfélögin á svæðinu eigi samstarf um uppbyggingu sérskóla í samstarfi við ríkið. Verkefnið fellur undir áherslu á velferð og samfélag, með sérstakri áherslu á menntamál og samþættingu þjónustu.
Markmið þessarar skýrslu er að leggja mat á hvort slíkt fyrirkomulag sé fýsilegt, hvaða hópum barna það myndi þjóna og hvernig slíku samstarfi sveitarfélaga og ríkis væri best háttað.
Megintilgangur verkefnisins er að greina hvort fýsilegt sé að koma á fót sameiginlegum sérskóla á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi sveitarfélaga og ríkis. Til þess að svara þeirri meginspurningu eru eftirfarandi undirmarkmið lögð til grundvallar:
- Að ná sameiginlegum skilningi á hvaða börn teljast hafa auknar þjónustuþarfir í þessu samhengi.
- Að greina fjölda barna sem hafa slíkar þarfir.
- Að kortleggja núverandi framboð sérúrræða og sérskóla á höfuðborgarsvæðinu.
- Að leggja fram valkosti og tillögur að framtíðarfyrirkomulagi.