Ársskýrsla 2026
Ársskýrslu SSH 2026, sem lögð er fram á aðalfundi 13. nóvember 2026, er ætlað að gefa innsýn í meginþætti starfseminnar á liðnu starfsári.
Ársskýrslu SSH 2026, sem lögð er fram á aðalfundi 13. nóvember 2026, er ætlað að gefa innsýn í meginþætti starfseminnar á liðnu starfsári.
Formáli
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) eru samstarfsvettvangur sveitarfélaganna Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kjósarhrepps. Sem slík þjóna samtökin sem nauðsynlegur vettvangur til umfjöllunar um mikilvæg samstarfsverkefni sveitarfélaganna. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, sameiginleg verndun neysluvatns íbúa svæðisins, almenningssamgöngur og önnur samgöngumál innan svæðisins, sameiginleg meðhöndlun og förgun úrgangs, ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk og framkvæmdir á skíðasvæðunum eru dæmi um verkefni sem sveitarfélögin hafa tekist sameiginlega á við undanfarin misseri. Þessi verkefni hafa kallað á samráð og sameiginlegar ákvarðanir á vettvangi SSH. Þá hafa fulltrúar SSH sótt fjölmarga fundi með ýmsum aðilum, s.s. fyrir nefndum Alþingis, með starfsfólki ráðuneyta og annarra stofnana svo og fulltrúum annarra landshlutasamtaka.
Fjölmörg verkefni hafa verið unnin á vettvangi SSH frá síðasta aðalfundi ásamt þeirri hagsmunagæslu sem mikilvæg er í starfsemi samtakanna á hverjum tíma. Stærstu verkefnin sem SSH hafa fengist við á liðnu ári tengjast áhersluverkefnum sóknaráætlana, verkefnum svæðisskipulags ásamt eftirfylgni Samgöngusáttmálans en fyrst og fremst þeim málum sem tengjast samkomulagi um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu frá 21. ágúst 2024.
Í janúar 2025 var samningur milli SSH, innviðaráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029 undirritaður. Á árunum 2025 og 2026 hafa verið unnin fjölmörg áhersluverkefni er tengjast meginflokkum hennar, sem eru atvinna og nýsköpun, umhverfi og samgöngur og velferð og samfélag. Má þar nefna verkefni um álagsdreifingu umferðar, undirbúningur á sameiginlegum innkaupavef sveitarfélaganna, samstillt átak til að draga úr veikindafjarveru, nýtingu gervigreindar í starfsemi sveitarfélaganna, stöðu og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis, álag í skólastarfi og sérskóla á höfuðborgarsvæðinu svo dæmi séu tekin. Frekari umfjöllun um verkefnin má finna í skýrslunni.
Á árinu 2025 voru haldnir 27 stjórnarfundir SSH og það sem af er árinu 2026 hafa verið haldnir 16 stjórnarfundir þar sem mörg og fjölbreytt mál hafa verið tekin fyrir. Það sem af er ári 2026 hafa verið haldnir fjórir svokallaðir örfundir fyrir kjörna fulltrúa á vettvangi SSH en á árinu 2025 voru haldnir átta slíkir fundir. Á þeim eru tekin fyrir málefni líðandi stundar og þau verkefni sem SSH vinna að á hverjum tíma. Þá hafa SSH sent frá sér umsagnir, s.s. við frumvarp til fjárlaga og önnur þau mál sem varða höfuðborgarsvæðið og eru til vinnslu í ráðuneytum eða til umræðu á Alþingi. Allar umsagnir sem SSH senda frá sér eru birtar á heimasíðu samtakanna, en mikil vinna hefur verið lögð í að efla hana og bæta til að tryggja upplýsingaflæði til kjörinna fulltrúa og annarra aðila.
Önnur stór verkefni hafa verið unnin á vettvangi SSH undanfarið. Undirritaður var samningur SSH og mennta- og barnamálaráðuneytisins um verkefnastjórn vegna stofnunar svæðisbundins farsældarráðs á höfuðborgarsvæðinu sem í gildi er til 1. febrúar 2027. Á þessum tíma hefur farsældarráðið verið stofnað og er starfsemi þess nú komin á fullt skrið. Ákveðin verkefni hafa verið unnin á þessum vettvangi og þar með talin fjögurra ára aðgerðaáætlun ráðsins. Nýr upplýsingavefur um útivist á höfuðborgarsvæðinu, Út um allt, var formlega tekinn í notkun á árinu 2025 og þróaður áfram árinu 2026. Unnið hefur verið að verkefnum sem tengjast hringrásarhagkerfinu, uppbyggingu á skíðasvæðunum, sameiginlegum velferðarmálum og þróunaráætlun svo fátt eitt sé nefnt. Gerð er grein fyrir stöðu og gangi þessara verkefna í ársskýrslunni.
Störf svæðisskipulagsnefndar voru hefðbundin á árinu 2025, sem og störf Skólamálanefndar SSH og Samráðshóps á sviði velferðarmála.
Þá er vert að benda á stór viðfangsefni á vettvangi byggðasamlaganna Strætó bs. og Sorpu bs., annars vegar aðlögun á rekstri og leiðakerfi Strætó bs. að þeim breytingum sem verða á komandi árum með eflingu almenningssamgangna, og hins vegar þær breytingar sem orðið hafa á meðhöndlun og förgun úrgangs.
Mikilvægt er að SSH beini áfram kröftum sínum, enn frekar og í meira mæli, að beinni og markvissri hagsmunagæslu út á við og hafi frumkvæði að samtali og samskiptum við löggjafar- og framkvæmdavald ríkisins um augljósa hagsmuni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Mikið verk er framundan er varðar sameiginleg verkefni SSH og því mikilvægt að styrkja samtökin enn frekar til verka.
Öflugu og samhentu starfsfólki SSH vil ég þakka kærlega fyrir gott samstarf og góða vinnu sem gagnast stærstum hluta landsmanna þó fæstir viti af henni. Þekking, reynsla og fagmennska starfsliðs SSH tryggir að flókið, en um leið mikilvægt, samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er jafnfarsælt og raun ber vitni.
Kópavogi 13. nóvember 2026
f.h. stjórnar SSH
Hildur Björnsdóttir
formaður stjórnar SSH
SSH
SSH voru stofnuð í Hlégarði, Mosfellshreppi, í apríl 1976 og urðu því 50 ára á árinu.
Upphaflegur tilgangur með stofnun samtakanna var að móta formlegan vettvang til sameiginlegrar umræðu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um skipulagsmál.
Sjö árum eftir stofnun þeirra fengu samtökin formlega stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga og hafa síðan starfað á grundvelli ákvæða í sveitarstjórnarlögum um landshlutasamtök sveitarfélaga.
Í samþykktum SSH sem samþykktar voru á aðalfundi 2022 segir eftirfarandi um tilgang þeirra og markmið:
„SSH eru sameiginlegur málsvari aðildarsveitarfélaganna og gæta hagsmuna þeirra. SSH eru samstarfs- og samvinnuvettvangur aðildarsveitarfélaganna vegna sameiginlegra verkefna og hagsmunamála þeirra. SSH eru sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna til að fjalla um rekstur þeirra samstarfsverkefna, t.d. byggðasamlaga, sem sveitarfélögin reka sameiginlega hverju sinni.
Skal starfsemi SSH m.a. stuðla að eftirfarandi markmiðum:
- Að efla samstarf sveitarfélaganna og stuðla að samskiptum og samstarfi sveitarstjórnarmanna, sveitarstjórnarnefnda og starfsmanna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
- Að höfuðborgarsvæðið sé samkeppnishæft gagnvart erlendum borgarsvæðum og bjóði upp á nýsköpun, atvinnulíf, innviði og lífskjör sem eru á borð við þau bestu í heiminum.
SSH skulu hafa frumkvæði að vöktun, greiningu, umræðu og kynningu á málum sem varða sameiginlega hagsmuni aðildarsveitarfélaga. Með sama hætti skulu SSH fylgjast með nýjungum á sviði sveitarstjórnarmála jafnt innalands sem erlendis og miðla þeim til aðildarsveitarfélaganna.
SSH skulu standa fyrir reglubundnu samráði við ríkisvaldið, ráðuneyti og stofnanir um málefni er varða hag sveitarfélaganna og vinna með þeim hætti að framþróun og hagsmunum höfuðborgarsvæðisins.“
Stjórn SSH

Almar Guðmundsson
bæjarstjóri Garðabæjar

Ásdís Kristjánsdóttir
bæjarstjóri Kópavogs

Hildur Björnsdóttir
borgarstjóri Reykjavíkur

Hilmar Gunnarsson
bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Jóhanna Hreinsdóttir
sveitarstjóri Kjósarhrepps

Þór Sigurgeirsson
bæjarstjóri Seltjarnarness

Þórður Þórarinsson
bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Skrifstofa SSH, starfsfólk

Ljósmynd úr safni Garðabæjar
Rekstur SSH
Rekstur SSH er fjármagnaður með tvennum hætti:
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er vistað hjá SSH samkvæmt samningi aðildarsveitarfélaganna. Sveitarfélögin greiða sérstaklega kostnað vegna þess, þ.e. laun svæðisskipulagsstjóra og svæðisskipulagsnefndar, hlutdeild í rekstri skrifstofu SSH auk sérgreinds verkefnaframlags vegna tilfallandi verkefna sem tengjast rekstri svæðisskipulagsins. Þá er öll verkefnastýring og umsýsla sóknaráætlunar, þ.m.t. áhersluverkefna hennar, vistuð hjá SSH.
SSH hafa að auki verið falin verkefnaleg og fjárhagsleg umsjón margvíslegra verkefna sem ekki rúmast innan hefðbundinna verkefna þeirra. Í þeim tilfellum innheimta SSH sérstaklega kostnað vegna slíkra verkefna hjá aðildarsveitarfélögunum. Sem dæmi má nefna að á árunum 2019 og 2020 hélt skrifstofa SSH utan um fjármál Samgöngusáttmálans að því er varðaði framlög sveitarfélaganna og fjárhagslega umsýslu undirbúnings Borgarlínu. Þá hefur verkefnastjórnun framkvæmda á skíðasvæðunum verið vistuð hjá SSH. Auk þess hafa önnur tímabundin verkefni og verkefnastjórar þeirra verið hýst hjá SSH. Frá því í febrúar 2025 hefur verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins haft aðsetur hjá SSH. Kostnaður vegna þess stöðugildis er fjármagnaður samkvæmt viðaukasamningi við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og SSH.
SSH vinna markvisst að eflingu og styrkingu upplýsingakerfa og skilvirku upplýsingaflæði milli SSH og kjörinna fulltrúa sveitarfélaganna. ONE fundakerfið og gagnagátt kjörinna fulltrúa þar sem fundaskjöl eru aðgengileg með rafrænum hætti hafa gefið góða raun en þau voru tekin í notkun haustið 2021. Markmiðið er fyrst og fremst að bæta aðgengi og gagnaöryggi til mikilla muna. Frá árinu 2015 hafa öll mál verið skráð í rafræna málaskrá til að tryggja yfirsýn og rekjanleika.
Fundaaðstaða SSH að Hamraborg 9, Kópavogi stendur opin fyrir alla þá verkefna- og starfshópa sem vinna að sameiginlegum verkefnum á vegum sveitarfélaganna, og t.a.m. halda Skólamálanefnd SSH og Samráðshópur á sviði velferðarmála reglulega fundi sína á skrifstofu SSH.
Tafla 1 sýnir þróun á tekjum og rekstrarkostnaði kjarnastarfsemi SSH samkvæmt ársreikningi 2021-2025 og áætlun ársins 2026.

SSH hafa umsjón með margvíslegum verkefnum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi samtakanna.
Í töflu 2 er gerð grein fyrir þessum verkefnum, rekstri og fjármögnun þeirra.

50 ára afmæli SSH
Í apríl 2026 fögnuðu SSH 50 ára afmæli sínu. Á 627. fundi stjórnar SSH hinn 4. maí 2026 var ákveðið að halda sérstaka afmælisráðstefnu þann 28. ágúst. Farið var í kostnaðargreiningu og mat á ýmsum viðburðasölum og var veitingastaðurinn BRASA valinn til hátíðahaldanna.
Á boðslista viðburðarins voru m.a. kjörnir fulltrúar sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins, kjarnanefndir SSH, lykilstarfsmenn sveitarfélaga, fyrrverandi formenn stjórnar SSH og starfsfólk, fulltrúar byggðasamlaganna og annarra félaga í sameiginlegri eigu sveitarfélaga ásamt nánum samstarfsaðilum samtakanna. U.þ.b. 200 gestum var boðið.
Bergur Ebbi Benediktsson var fenginn til þess að sjá um fundarstjórn. Til undirbúnings viðburðarins var ákveðið að framleiða stutt kynningarmyndband þar sem farið er yfir stöðu og þróun SSH út frá sjónarhorni viðmælenda. Núverandi stjórnarmenn, fyrrverandi formenn stjórnar, fyrrverandi starfsmenn og lykilstarfsmenn sveitarfélaga voru fengnir til þess að tala um hlutverk SSH. Myndbandið var unnið af myndvinnslufyrirtækinu REC Media og sýnt á afmælisráðstefnunni.
Samgöngusáttmálinn
Hinn 26. september 2019 var Samgöngusáttmálinn, samkomulag ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum, undirritaður. Markmið sáttmálans eru: Að stuðla að greiðari samgöngum og fjölbreyttum ferðamátum með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta; að stuðla að loftslagsmarkmiðum ríkis og sveitarfélaga um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag með eflingu almenningssamgangna og deilihagkerfis í samgöngum, bættum innviðum fyrir vistvæna samgöngumáta og hvetja til breyttra ferðavenja og orkuskipta; að stuðla að auknu umferðaröryggi með það að markmiði að draga stórlega úr umferðarslysum; og að tryggja skilvirka framkvæmd og trausta umgjörð verkefnisins, m.a. með því að skilgreina samstarfsform, kostnaðarskiptingu, ábyrgð á tilteknum aðgerðum og fjármögnunarleiðir. Samkvæmt sjálfstæðri greiningu á samfélagslegum ábata af verkefnum Samgöngusáttmálans sem unnin var á árinu 2023 er ábatinn metinn 1.140 ma.kr.
Betri samgöngur ohf., sem er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, var stofnað haustið 2020 en tilgangur þess er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu og hafa yfirumsjón með framkvæmdum Samgöngusáttmálans og fjármögnun þeirra. Er félaginu þá falið að annast þróun Keldnalands, sem er hluti af framlagi ríkisins til sáttmálans, og að annast innheimtu flýti- og umferðargjalda verði ákveðið með lögum að leggja þau á. Stjórn félagsins er skipuð sex einstaklingum, þremur frá ríki og þremur frá sveitarfélögunum. Það er stjórn SSH sem fer með eigendaumboð sveitarfélaganna.
Sérstakur stýrihópur vegna verkefnisins starfar samkvæmt stjórnskipulagi sáttmálans, en honum er m.a. ætlað að fjalla um ágreining sem komið getur upp í samskiptum ríkis eða sveitarfélaga við félagið um túlkun ákvæða eða forsendna sáttmálans eða um fjármögnun eða ráðstöfun fjármuna. Stýrihópinn skipa borgarstjóri Reykjavíkur, formaður og varaformaður stjórnar SSH, forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.
Aðilar Samgöngusáttmálans ákváðu í mars 2023 að hefja undirbúning að því að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann m.a. í ljósi mikilla verðhækkana, einkum í verklegum framkvæmdum sem höfðu áhrif á kostnaðaráætlanir. Skrifað var undir uppfærslu sáttmálans hinn 21. ágúst 2024. Með uppfærslunni var gildistími sáttmálans lengdur til ársins 2040 til að tryggja raunhæfan tímaramma fyrir undirbúning og fjármögnun framkvæmda. Skipting fjármögnunar milli ríkis og sveitarfélag er hin sama og áður, þ.e. sveitarfélög greiða 12,5% og ríkið 87,5%.
Samhliða uppfærslunni undirrituðu ríkið og sveitarfélögin samkomulag um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Samkomulagið fól í sér að sveitarfélögin og ríkið stofnuðu sameiginlegt félag sem bæri ábyrgð á skipulagi og rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Var skipaður sérstakur stýrihópur til að vinna að framgangi þessa samkomulags og stofnunar sameiginlegs félags og áttu SSH þrjá fulltrúa í þeim hópi. Nýtt félag, Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., tók við rekstri almenningssamgangna á svæðinu á seinni hluta ársins 2026.
Rekstur nýja félagsins mun taka hvort tveggja til hefðbundinna strætisvagnaleiða og Borgarlínu. Ríkið mun bera þriðjung af rekstrarkostnaði að frádregnum farþegatekjum á móti sveitarfélögunum. Þá mun ríkið veita framlög til orkuskipta almenningssamgangna. Fyrirhugað er að allur akstur verði boðinn út en fyrstu árin mun Strætó bs. þó annast akstur á ákveðnum leiðum.
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins: Höfuðborgarsvæðið 2040
Gildandi svæðisskipulag: Höfuðborgarsvæðið 2040, var undirritað 2015 og er sameiginleg stefna sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kjósarhrepps, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar um náið samstarf, skipulagsmál og hagkvæman vöxt svæðisins næstu 25 árin, enda er höfuðborgarsvæðið eitt búsetusvæði og einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir og náttúru. Árið 2018 var samþykkt breyting á svæðisskipulaginu þar sem skilgreindir voru samgöngu – og þróunarásar fyrir hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu fyrir Borgarlínu.

Kjarnar og vaxtamörk
Verkefni tengd framfylgd svæðisskipulags hafa verið fyrirferðarmikil í starfi SSH. Þar ber hæst að nefna stofnun Betri samgangna ohf. sem hafa yfirumsjón með framkvæmdum Samgöngusáttmálans árið 2020 og uppfærslu Samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga árið 2024.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins er hýst hjá SSH og starfar samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna um svæðisskipulag og starfsreglum nefndarinnar. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga tók ný nefnd til starfa í ágúst 2026 og lét Hjálmar Sveinsson af formennsku í maí. Núverandi formaður er Guðný María Jóhannsdóttir fulltrúi Reykjavíkur í nefndinni og var hún kjörin á fundi nefndarinnar 14. ágúst 2026. Varaformaður er Hjördís Ýr Johnson fulltrúi Kópavogs. Nefndin fundaði tíu sinnum frá nóvember 2025 til nóvember 2026. Á þeim tíma tók nefndin fyrir um 45 erindi.
Heimsókn í Kjósarhrepp
Ein af áherslum nefndarinnar fyrir kjörtímabilið 2022-2026 var að heimsækja sveitarfélögin sem standa að svæðisskipulaginu og kynnast starfi skipulagssviða þeirra.
Nefndin hefur því farið reglulega í heimsóknir til sveitarfélaganna á kjörtímabilinu og hafa 1-2 sveitarfélög verið heimsótt á ári hverju. Þann 10. apríl 2026 heimsótti nefndin Kjósarhrepp. Jóhanna Hreinsdóttir, oddviti Kjósarhrepps, kynnti sveitarfélagið, þróun þess og framtíðarmöguleika. Því næst flutti Elís Guðmundsson, formaður skipulags-, umhverfis- og samgöngunefndar Kjósarhrepps og nefndarmaður í svæðisskipulagsnefnd, erindi um áskoranir og tækifæri í skipulagsmálum svæðisins. Hann sagði meðal annars frá uppbyggingu í landi Eyrar, þar sem fyrirhugaðar eru 48 lóðir fyrir íbúðarhús.
Kynningar fyrir svæðisskipulagsnefnd
Svæðisskipulagsnefnd hefur fengið fjölda heimsókna og kynninga á fundum sínum á starfsárinu. Haustið 2025 fékk nefndin meðal annars kynningar á tillögum vegna Sundabrautar.
Á árinu 2026 fékk nefndin fjölbreyttar kynningar um húsnæðis-, samgöngu-, skipulags- og byggðaþróunarmál. Fulltrúi HMS kynnti húsnæðisþörf, íbúaþróun og stöðu húsnæðismarkaðar á höfuðborgarsvæðinu og EFLA kynnti niðurstöður verkefnis um álagsdreifingu umferðar. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins kynnti niðurstöður vinnu um framtíð tjaldsvæða á höfuðborgarsvæðinu. Þá kynnti framkvæmdastjóri Almannavarna höfuðborgarsvæðisins niðurstöður langtímahættumats vegna hraunvár á Reykjanesskaga og samgöngustjóri Reykjavíkurborgar kynnti stefnu og aðgerðaráætlun um gönguvæna borg.
Ný svæðisskipulagsnefnd tók til starfa í ágúst 2026 og fékk þá kynningu á starfsemi SSH, svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og helstu verkefnum sem tengjast því. Í september komu fulltrúar HMS á fund nefndarinnar og kynntu hlutverk og verkefni stofnunarinnar og áttu samtal við nefndina um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og hlutverk svæðisskipulagsnefndar.
Í október voru kynntar niðurstöður rannsóknar á ferðavenjum framhaldsskólanema á höfuðborgarsvæðinu.
Í nóvember var haldinn sérstakur vinnufundur þar sem sérfræðingar voru boðaðir til kynninga og samtals við nefndina um helstu forsendur þróunar höfuðborgarsvæðisins. Meðal annars var fjallað um íbúaþróun, húsnæðisþörf og byggðaþróun, náttúruvá og loftslagsbreytingar, samgöngur, náttúru, útivist og auðlindir og gæði hins byggða umhverfis. Markmið fundarins var að styðja við mat nefndarinnar á stöðu svæðisskipulagsins og þörf fyrir endurskoðun þess.
Nefndin hefur auk þess fengið kynningar frá fulltrúum sveitarfélaganna á ýmsum skipulagsmálum og frá ráðgjöfum sem unnið hafa að verkefnum á vegum sóknaráætlunar og SSH.
Ferðavenjukönnun
Svæðisskipulagsnefnd styrkti og tók þátt í ferðavenjukönnun haustið 2025. Hún nær yfir allt landið en sambærileg könnun var síðast unnið á árinu 2022. Svæðisskipulagsstjóri var fulltrúi nefndarinnar í þeirri vinnu og var könnunin unnin í samstarfi við innviðaráðuneytið ásamt Vegagerðinni, Strætó bs. og Betri samgöngum ohf. Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í júlí 2026.
Vatnsvernd og vatnsnýting
Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu
Hópinn skipa formaður svæðisskipulagsnefndar, formaður framkvæmdastjórnar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúar frá vatnsveitum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk hópsins er: Að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þau mál og viðfangsefni sem lúta að vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins og verkefni sem henni tengjast á hverjum tíma; að tryggja samstillingu þeirra aðila sem bera ábyrgð á vatnsvernd og vatnsnýtingu innan vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins, m.a. í samræmi við lögboðnar skyldur sveitarfélaganna, heilbrigðiseftirlits og veitna. Hópurinn fundar mánaðarlega á vettvangi SSH undir hatti svæðisskipulags.

Úr kortasjá SSH sem hér sýnir vatnsverndarsvæði
Rannsóknarborholur og mælingar grunnvatns í Bláfjöllum
Verkefnið á upphaf sitt í samkomulagi sveitarfélaganna dags. maí 2018 um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og mótvægisaðgerðum vegna vatnsverndar sem m.a. fela í sér fjölgun á rannsóknarborholum og rýni á grunnvatnslíkani og tillögur að grunnvatnsrannsóknum.
Framkvæmdir við þrjár rannsóknarborholur hófust í byrjun sumars 2024 að undangengnum samningum við Jarðval sf. vegna jarðvinnu og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um jarðboranir, auk samninga við COWI vegna verkefnastjórnunar og eftirlits. Borun einnar holu er lokið, en jarðlög á svæðinu eru þannig að líkur eru á að skipta þurfi um boraðferð við áframhaldandi borun. Ákveðið var á fundi samráðshóps um vatnsvernd og nýtingu þann 30. janúar 2025 koma af stað mælingum á svæðinu í rannsóknarholunni sem boruð hefur verið og öðrum holum á svæðinu. Vorið 2025 var samið við COWI um uppsetningu og rekstur mælistöðva grunnvatns í þremur borholum. Mælibúnaði hefur verið komið fyrir í tveimur holum. Ekki reyndist unnt að koma mæli fyrir í þeirri þriðju vegna hindrana í holunni. Áframhaldandi borun hefur verið stöðvuð þar til niðurstöður mælinga liggja fyrir og verður þörf fyrir frekari borun metin á grundvelli þeirra gagna sem safnast.
Grunnvatns- og rennslislíkan höfuðborgarsvæðisins
Helsta verkefni samráðshópsins er umsjón með grunnvatns- og rennslislíkani höfuðborgarsvæðisins. Líkanið er hýst hjá ráðgjafarstofunni Vatnaskilum og gegnir lykilhlutverki í framfylgd vatnsverndar sem og við mat á áhrifum nýrra framkvæmda eða starfsemi á aðrennslissvæðum vatnsbóla höfuðborgarsvæðisins. Líkanið er í stöðugri endurskoðun með gagnasettum sem eru sótt m.a. í vatnamæla sem eru í borholum á höfuðborgarsvæðinu. Mælingar í borholum á Bláfjallasvæðinu eru liður í að styrkja grunn vatnafarslíkansins sem veitufyrirtækin á höfuðborgarsvæðinu viðhalda. Kostnaður vegna viðbótargrunnrannsókna skiptist á milli vatnsveitna á höfuðborgarsvæðinu.
Þróunaráætlun
Vinnu við Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins lauk haustið 2024. Niðurstöður hennar voru kynntar fyrir stjórn SSH þann 7. október 2024 og svæðisskipulagsnefnd 25. október sama ár. Síðan þá hafa niðurstöður þróunaráætlunar verið notaðar í kynningar SSH meðal annars á opnum fundi HMS um stöðu íbúðauppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu þann 2. janúar 2025 og á Skipulagsdeginum, árlegri ráðstefnu Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál, þann 23. október 2025.
Þróunaráætlunin er sú þriðja sem unnin er á grunni Svæðiskipulags höfuðborgarsvæðisins: Höfuðborgarsvæðið 2040, en áður hafði SSH látið vinna þróunaráætlun fyrir tímabilin 2015-2018, 2020-2024 og stöðutöku árið 2022.
Með þróunaráætlun er lögð áhersla á að samræma áætlanir sveitarfélaganna um uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis, auk annarra aðgerða til að ná fram markmiðum svæðisskipulags um þróun höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040. Þróunaráætlun er einnig ætlað að miðla upplýsingum um stöðuna og uppbyggingaráform. Í þróunaráætlun er fjallað um heimildir í skipulagi fyrir byggingu íbúða, þ.e.a.s. óbyggt húsnæði í skipulagi. Tölulegar upplýsingar ná ekki til húsnæðis í byggingu, en þær má finna á vefsíðu HMS.
Nýjar áherslur í framlagðri þróunaráætlun 2024 eru að skoða aldur skipulagsheimilda á höfuðborgarsvæðinu, hlutfall samþykktra skipulagsheimilda á byggingarhæfum lóðum, eignarhald lóða og húsnæði án hagnaðarsjónarmiða.
Samantekt – helstu niðurstöður

Kort úr vefsjá þróunaráætlunar
Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029

Hinn 17. febrúar 2025 samþykkti stjórn SSH sóknaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið 2025–2029. Byggist sú áætlun á samningi um sóknaráætlanir landshluta við innviðaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra en hann var undirritaður 28. janúar 2025.
Framfylgd sóknaráætlunar felst í að vinna að ákveðnum áhersluverkefnum fyrir hvert ár yfir tímabilið. Áhersluverkefni eru samþykkt af stjórn SSH og stýrt af SSH í samstarfi við utanaðkomandi ráðgjafa og/eða verkefnastjóra. Á heimasíðu SSH er að finna ítarlegar upplýsingar um sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og þau verkefni sem unnin eru undir hatti hennar.
Áhersluverkefni 2025 og 2026
Á tímabilinu var unnið að eftirfarandi áhersluverkefnum sóknaráætlunar:
Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu
Markmið verkefnisins var að greina fýsileika þess að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eigi samstarf um uppbyggingu sérskóla í samstarfi við ríkið. Staða barna á höfuðborgarsvæðinu með auknar þjónustuþarfir, hvort sem er vegna fötlunar, veikinda, yfirgripsmikilla hegðunarvandamála eða annars var skoðuð sérstaklega og kannað hvernig komið er til móts við þær þarfir innan skólakerfisins.
Verkefnið var unnið með aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa, HLH ráðgjafar ehf., sem m.a. safnaði gögnum og tók viðtöl við aðila innan mennta-, velferðar- og heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að greina núverandi stöðu, kanna hvort fýsilegt sé að koma á fót sérskóla á svæðinu og hvernig samstarfi í kringum það verði þá best háttað.
Þann 13. maí 2026 var undirrituð sameiginleg viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins stóðu að viljayfirlýsingunni ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu. Nú er starfandi stýrihópur sem mun skila af sér tillögum að uppbyggingu sérskólaúrræða, í samræmi við niðurstöðu fýsileikakönnunarinnar, í byrjun árs 2027.
Álag í skólastarfi - ástæður og úrbætur
Talsverð umræða hefur skapast í samfélaginu um álag á skólastarfsfólk. Markmið verkefnisins fólst í að greina ástæður álags innan skólakerfisins og móta tillögur að aðgerðum til úrbóta og styrkja þannig jákvæða ímynd skólastarfsins. Verkefnastjórar tóku rýnihópaviðtöl í 25 ólíkum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og söfnuðu einnig upplýsingum í gegnum spurningakönnun. Út frá þessum upplýsingum voru greindar helstu ástæður álags og settar fram tillögur um sameiginleg úrbótaverkefni sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geti ráðist í til að draga úr álagi í skólastarfi.
Niðurstöður og tillögur að úrbótum voru kynntar á 625. fundi stjórnar SSH þann 16. mars 2026. Að auki var haldinn kynningarfundur fyrir skólastjórnendur grunnskóla þann 19. maí 2026 þar sem mæting var góð. Verkefnastjórar voru dr. Lilja M. Jónsdóttir og dr. Ingvar Sigurgeirsson kennslufræðingar og fyrrverandi háskólakennarar.
Ráðgjöf til foreldra unglinga í vímuefnavanda
Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar 2026 snýst um að styðja við unglinga í vímuefnavanda með bættu aðgengi að ráðgjöf fyrir foreldra. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, þ.e.a.s. að foreldrum sé bent á ráðgjöfina um leið og fyrstu vísbendingar um neyslu unglings á vímuefnum koma fram. Í ágúst 2026 var gengið til samninga við Foreldrahús um framkvæmd verkefnisins en í því felst ráðgjöf, bæði í formi viðtala og námskeiða og almenn fræðsla fyrir foreldra. Samningurinn gildir út árið 2027.
Nánar
Samspil og virkni velferðarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Velferðarmál eru annar umfangsmesti málaflokkur sveitarfélaganna. Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins árið 2025 var „Samspil og virkni velferðarþjónustu í víðum skilningi“ en markmið þess var að skerpa á áskorunum ríkis og sveitarfélaga í velferðarmálum og greina hvar óvissa ríkir um verkaskiptingu og kostnað.
Þegar ábyrgð, framkvæmd eða fjármögnun eru óljós færist þjónustuþörf ítrekað á milli kerfa og sveitarfélög taka á sig kostnað vegna verkefna sem liggja utan lögbundinnar ábyrgðar þeirra. Vandinn birtist með þrennum hætti: Fólk fær ekki þá þjónustu sem það þarf, þjónusta skarast og tvíverknaður verður eða eitt stjórnsýslustig veitir þjónustu sem annað stjórnsýslustig ætti að fjármagna.
Skýrsla HLH ráðgjafar um verkefnið kom út í september 2026 og var þá kynnt fyrir stjórn SSH og á sameiginlegum fundi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og þingmanna höfuðborgarsvæðisins.
Móttaka barna með fjölbreyttan menningarbakgrunn
Verkefnið var skilgreint sem áhersluverkefni ársins 2024 og fólst í að greina fjölda og stöðu barna með annað móðurmál en íslensku í skólakerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Upphaflegt markmið var að bæta verklag við móttöku barna og stuðning í skóla- og frístundastarfi.
Verkefnið tók breytingum eftir að upplýsingar bárust í maí 2024 að Barna- og menntamálaráðuneytið, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) og Reykjavíkurborg hefðu undirritað samkomulag um þróunarverkefnið Menntun, móttaka, menning (MEMM). Markmið þess og verkefnis SSH fólu í sér töluverða skörun, en MEMM verkefnið mun umfangsmeira. Því voru markmið og verkefnislýsing verkefnis SSH uppfærð.
Því var ákveðið að afurð verkefnisins yrði skýrsla sem fæli í sér greiningu á fjölda og stöðu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í leik- og grunnskólum höfuðborgarsvæðisins, og mat á kostnaði þeirra aðgerða sem lagðar voru til. Við gagnaöflun komu fram áskoranir í gagnaöflun og því var stofnaður vinnuhópur til þess að m.a. meta með hvaða leiðum hægt væri að safna umræddum upplýsingum. Vinnuhópur skilaði skýrslu í nóvember 2025 með tillögum að viðeigandi aðgerðum.
Um sumarið 2026 var unnið að framgangi málsins og m.a. fundað með fulltrúum MEMM og Sambands íslenskra sveitarfélaga á tveimur aðskildum fundum.
Áhersluverkefni tengd vinnu Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins
Þrjú verkefni tengd vinnu Farsældarráðs voru skilgreind sem áhersluverkefni ársins 2026:
Í júní 2026 undirrituðu SSH og Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði og sérfræðingur í gervigreind, samning um þróun Farsældarerindreka. Um er að ræða gervigreindarlausn sem ætlað er að auðvelda börnum, foreldrum, forsjáraðilum og fagfólki að finna upplýsingar um viðeigandi þjónustu á höfuðborgarsvæðinu þegar þörf er á.
Lausnin mun byggja á öruggum og áreiðanlegum upplýsingum um þjónustu og úrræði á vegum aðila Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins auk þess að byggja á upplýsingum um önnur úrræði sem uppfylla kröfur ráðsins. Áætlað er að Farsældarerindrekinn verði tilbúinn til notkunar fyrir börn, foreldra, forsjáraðila og fagfólk í byrjun árs 2027.
Vinnuhópur Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins tók þátt í vinnu við að móta tillögur að fimm aðgerðum til að samræma skráningu og viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í grunnskólum. Samræmd landsviðmið verða nýtt til prufu skólaárið 2026-2027.
Í ágúst 2026 var gengið til samninga við Heimili og skóla um þróun foreldrafræðsluleiðarvísis. Markmiðið er að almenn foreldrafræðsla, skipt upp eftir aldri barns, verði gerð aðgengileg á einum stað. Gert er ráð fyrir að afrakstur þessarar vinnu verði gerður aðgengilegur á fyrri hluta ársins 2027.
Efling útivistarsvæða með sérstaka áherslu á utumallt.is
Útivistarvefurinn utumallt.is var þróaður í gegnum sóknaráætlun 2019-2024 og miðlar valkostum til útiveru á höfuðborgarsvæðinu til notenda. Í þessu verkefni er unnið að því að efla nýtingu útivistarsvæða höfuðborgarsvæðisins í gegnum vefinn.
Þróun á utumallt.is felur í sér að bæta við nýjum leiðum og útivistarsvæðum á vefinn, auk þess sem upplýsingar um sundlaugar bættust við á árinu. Jafnframt er verið að kortleggja og efla upplýsingamiðlun um strandlengju höfuðborgarsvæðisins. Vefurinn er í umsjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins samkvæmt samningi við SSH. Greining á fýsileika þess að samræma merkingar útivistarsvæða höfuðborgarsvæðisins stendur jafnframt yfir.
Þróun Hvítá til Hvítár svæðisins (SV hornið) - framhaldsverkefni
Þróun byggðar á suðvesturhorni landsins hefur breyst hratt á undanförnum árum samhliða fólksfjölgun á svæðinu, ósamþættri byggð og auknu flæði fólks á milli sveitarfélaga. Árið 2024 var unnin skýrsla þar sem könnuð voru áhrif af áframhaldandi óbreyttum vexti þéttbýliskjarna innan Hvítár-Hvítársvæðisins. Við vinnslu verkefnisins kom fram skortur á gögnum varðandi þau málefni sem snerta svæðið, t.a.m. hvað varðar opinbera tölfræði og upplýsingar um vinnu- og skólasókn.
Framhaldsverkefninu er ætlað að móta grundvöll fyrir auknu samstarfi sveitarfélaga og landshlutasamtaka innan svæðisins. Verkefnið er tvíþætt: Annars vegar að vinna rannsókn á vinnu- og skólasókn til og frá höfuðborgarsvæðinu á milli landshlutanna, og hins vegar að greina umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er í vinnslu.
Innviðagreining og þróun húsnæðismála á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnið snerist um að vinna ítarlega greiningu á þjónustuinnviðum höfuðborgarsvæðisins með tilliti til þróunar húsnæðismála. VSÓ ráðgjöf gerði ítarlega greiningu á stöðu innviða innan sveitarfélaga og hverfa með tilliti til íbúafjölda og íbúaþéttleika. Dæmi um innviði sem skýrslan tekur til eru leikskólar, grunn- og framhaldsskólar, heilbrigðisþjónusta, bókasöfn, íþróttaaðstaða, sundlaugar, græn svæði, almenningssamgöngur, bílastæði, hafnir, verslun og önnur þjónusta.
Tækifæri og áskoranir sem felast í stöðu innviða með tilliti til íbúaþróunar voru kortlögð. Greiningin nýtist til þess að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku um framtíðaruppbyggingu og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið var kynnt á 630. fundi stjórnar SSH þann 6. júlí 2026 og er skýrsla þess aðgengileg á vef SSH.
Lykiltölur hins byggða umhverfis
Þann 16. júlí 2025 var gengið til samninga við VSÓ ráðgjöf um vinnu og verkefnastýringu verkefnisins. Ásamt VSÓ ráðgjöf var verkefnið unnið af Úrbana og Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, aðjúnkt í skipulagsfræði. Markmið þess var að gera samanburðargreiningu á lykiltölum og gæðum hins byggða umhverfis og bera saman við önnur borgarsvæði. Dæmi um lykiltölur eru þéttleiki byggðar, nýtingarhlutfall, bílaeign, aðgengi að almennings-, göngu- og hjólainnviðum o.s.frv.
Í verkefninu var höfuðborgarsvæðinu skipt upp í svæði og lykiltölur hvers hverfis greindar. Þróaðir voru sjálfbærnivísar sem endurspegla viðmið um sjálfbæra borgarþróun í hverju hverfi. Verkefnið er samofið verkefni um innviðagreiningu á höfuðborgarsvæðinu en saman mynda skýrslur þeirra yfirlitsmynd yfir stöðu þjónustuaðgengis og sjálfbærs borgarskipulags á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið var kynnt á fundi stjórnar SSH þann 5. október 2026 og er skýrsla um það aðgengileg á vef SSH.
Staða og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Höfuðborgarsvæðið er og hefur verið í örum vexti. Mikilvægt er að fyrir liggi skýr sýn á stöðu og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis, og möguleika til áframhaldandi vaxtar. Í verkefninu felst að greina stöðu og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Framtíðarþróun verður skoðuð með tilliti til mannfjöldaspár og skipulagsheimilda og er verkefnið unnið sem samvinnuverkefni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Samtökum iðnaðarins og SSH. Ráðgjafastofan Efla sér um úrvinnslu verkefnisins og var skrifað undir samninga í júní 2025. Verkefnið er enn í vinnslu.
Álagsdreifing umferðar - verkefnastýring aðgerða á höfuðborgarsvæðinu
Á árinu 2025 var unnið að greiningu og mótun sameiginlegra aðgerða til að dreifa umferðarálagi um höfuðborgarsvæðið. Vinnan leiddi í ljós mikilvægar upplýsingar um umferðarþunga og álag eftir tímabilum, ásamt því að lista upp mögulegar aðgerðir til þess að sporna við áframhaldandi þróun.
Sóknaráætlunarverkefni ársins 2026 er sjálfstætt framhald þess fyrra og snýr að framkvæmd og verkefnastýringu þeirra aðgerða sem dregnar voru upp. Til innleiðingar mögulegra aðgerða þarf samstarf og samhæfingu fjölmargra aðila á svæðinu, t.d. ríkis, sveitarfélaga, opinberra stofnana, framhaldsskóla, rekstraraðila almenningssamgangna, Vegagerðar o.fl. Efla var fengin til þess að vinna verkefnið. Verkefnið er í vinnslu.
Forathugun á fráveitumálum höfuðborgarsvæðisins
Verkefnið snýr að því að kortleggja og greina fráveitumál höfuðborgarsvæðisins, þar með talið framkvæmdir á svæðinu og rekstrarfyrirkomulag. Einnig er mikilvægt að greina þær kröfur sem lagðar eru á herðar sveitarfélögunum í lögum og reglugerðum og stefnumótandi áætlunum.
Ráðgjafahópur SSH var skipaður Páli Björgvini Guðmundssyni framkvæmdastjóra SSH sem leiddi starf hópsins ásamt ráðgjöfum frá VSÓ ráðgjöf. Megintilgangur hópsins er að efla samvinnu og samráð varðandi fráveitur. Hópurinn fór yfir fyrirliggjandi skýrslur um stöðu fráveitumála hér á landi og hefur lagt fram tillögur verkefninu til framgangs. Verkefnið er í vinnslu.
Greining á samtengingu dreifikerfis á höfuðborgarsvæðinu
Þörf er á að yfirfara kerfi vatnsveitna höfuðborgarsvæðisins heildstætt. Verkefnið snýr að því að kortleggja, skilgreina og kostnaðarmeta þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að tryggja öryggi vatnsveitukerfa á höfuðborgarsvæðinu. VSÓ Ráðgjöf sér um verkefnastjórn vegna verkefnisins. Verkefnið er í vinnslu.
Nýting gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Á árinu 2025 og 2026 var unnið að kortlagningu tækifæra í hagnýtingu gervigreindar fyrir sveitarfélögin. Gerð var grein fyrir sex hugmyndum en á meðal þeirra voru notkun gervigreindar í gagnagreiningu fyrir lýðfræðilega þróun, sjálfvirka svörun fyrirspurna, sjálfvirknivæðingu ferla o.fl. Í kjölfar þeirrar vinnu var ákveðið að halda áfram sambærilegu verkefni þar sem unnið væri að frekari skilgreiningu og dýpkun verkefnisins
Samráðsvettvangur um gervigreind hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að störfum og er unnið að frekari úrbótaverkefnum, forgangsröðun og undirbúningi þess grunns sem mótaður var á fyrri stigum málsins. Verkefnið er enn í vinnslu.
Forkönnun á sameiginlegum innkaupavef innan SSH og samráðsvettvangur um innkaup sveitarfélaganna
Í kjölfar vinnu við forkönnun sameiginlegs innkaupavefs var stofnaður samráðsvettvangur um innkaupamál sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill samhljómur sveitarfélaganna er fyrir því að standa saman að innkaupum og þróa áfram þau stafrænu tæki sem þarf til að gera innkaup skilvirkari fyrir sveitarfélögin.
Verkefnið felur í sér að greina hvort fýsilegt sé að setja á laggirnar innkaupavef til að ná fram hagkvæmni í innkaupum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og að vinna saman í gegnum innkauparáð að greiningu og sameiginlegum innkaupum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er enn í vinnslu, en fyrstu skref er varða þarfagreiningu og tæknilýsingu verða unnin á næstu vikum og mánuðum.
Samstillt átak til að draga úr veikindafjarveru
Samkvæmt nýlegum tölum er veikindahlutfall sveitarfélaga hærra en á almennum vinnumarkaði. Um er að ræða háar fjárhæðir en árið 2024 voru heildarlaunagreiðslur sveitarfélaganna innan SSH um 180 milljarðar. Ef miðað er við 7% veikindahlutfall mætti áætla að tapaður launakostnaður sé um 12 milljarðar. Er þá aðeins um að ræða beinan launakostnað og er ótaldir aðrir þætti sem skapa óhagræði og kostnað hjá sveitarfélögum.
Með lækkun hlutfalls um 3% væri bætt nýting 5,4 milljarðar. Verkefnið gengur út á að sveitarfélög stilli saman ýmsar skilgreiningar tengdar veikindafjarveru og mælingu veikindahlutfalls er mælt. Verkefnið gæti skilað af sér samstilltari og skýrari áherslum í mannauðsmálum, ásamt ánægðara starfsfólki og aukinni starfshelgun. Verkefnið er í vinnslu.
Sameiginlegur viðburður – hvatning til nýsköpunar
Við mótun sóknaráætlunar 2025-2029 kom fram að stöðugt þurfi að huga að því hvernig best sé að tryggja alþjóðlega samkeppnishæfni atvinnulífs á höfuðborgarsvæðinu. Í því samhengi var lagt upp með að standa fyrir sameiginlegum viðburðum sem hvetja til nýsköpunar.
Ætlunin er að vera með nýsköpunarviðburð sem gæti leitt til nýsköpunar bæði hjá einkafyrirtækjum og stofnunum sveitarfélaga. Markmið verkefnisins er að skapa fjölbreyttari atvinnutækifæri á höfuðborgarsvæðinu.
Kostnaður og umsjón áhersluverkefna sóknaráætlunar
Umsjón með áhersluverkefnum sóknaráætlunar er stór þáttur í starfsemi. Verkefnin eru eftir atvikum unnin með aðkomu utanaðkomandi verkefnastjóra. Framlag til verkefnanna er að stærstum hluta fjármagnað úr ríkissjóði en einnig með framlagi SSH, sem nemur um 17% af framlagi ríkisins ár hvert.
Yfirlit yfir sóknaráætlunarverkefni á vegum SSH 2021-2025

Ljósmynd frá Kjós
Farsældarráð
Hinn 10. október 2024 voru undirritaðir samningar milli barna- og menntamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga um ráðningu verkefnastjóra sem hafa það hlutverk að leiða undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Stofnun svæðisbundinna farsældarráða er hluti af innleiðingu laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sbr. 5. gr. laganna.
Þann 1. febrúar 2025 hóf verkefnastjóri svæðisbundins farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, Hanna Borg Jónsdóttir, störf hjá SSH. Á landinu starfa nú átta verkefnastjórar svæðisbundinna farsældarráða og vinna þeir náið saman og í samráði við Barna- og fjölskyldustofu, barna- og menntamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað 14. nóvember 2025. Í ráðinu sitja sviðsstjórar velferðar- og menntasviða eða staðgenglar þeirra fyrir hönd Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar sem fulltrúar leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva, barnaverndar og félagsþjónustu. Auk þeirra sitja í ráðinu fulltrúi lögreglu, heilsugæslunnar, framhaldsskólanna og íþróttahreyfingarinnar. Með ráðinu starfa einnig innleiðingarstjórar farsældar í sveitarfélögunum, fulltrúar foreldra og fulltrúar ungmenna.
Tilgangurinn með stofnun ráðsins er að auka og treysta svæðisbundið samráð mismunandi þjónustuveitenda bæði á vegum sveitarfélaga og ríkis. Hlutverk ráðsins er að greina stöðu barna á höfuðborgarsvæðinu og forgangsraða aðgerðum í þágu farsældar barna til fjögurra ára. Mismunandi þjónustuveitendur vinna þannig saman að sömu markmiðum og sams konar þjónustuveitendur geta betur samræmt sína þjónustu.
Í júlí 2026 voru drög að aðgerðaráætlun farsældarráðs send til afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaga og áætlunin í kjölfarið kynnt fyrir sveitarfélögum og samþykkt. Aðgerðaráætlunin byggir m.a. á drögum um stefnu stjórnvalda um farsæld barna, grunnstoðum farsældar, niðurstöðum íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og niðurstöðum áhersluverkefnis sóknaráætlunar SSH 2024.
Langtímamarkmið áætlunarinnar til fjögurra ára eru:
Undir langtímamarkmiðin skiptast 21 aðgerð en í forgangi árin 2026-2027 eru m.a. aðgerðir sem eru hluti af áhersluverkefnum sóknaráætlunar:
Púlsinn – bráða- og viðbragðsteymi
Vorið 2026 tók bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn til starfa. Hlutverk teymisins er að bregðast við og taka á ofbeldismálum meðal barna, skýra og auðvelda boðleiðir og tryggja skilvirka samvinnu allra þjónustuveitenda og kerfa.
Hinn 17. apríl 2026 var gengið frá samningi á milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Barna- og fjölskyldustofu og mennta- og barnamálaráðuneytisins um verkefnið en styrkveiting ráðuneytisins fjármagnar verkefnið að stærstum hluta.

Ljósmynd úr safni Hafnarfjarðar
Byggðasamlögin
Töluverðar breytingar hafa orðið á starfsemi byggðasamlaganna, Strætó bs. og Sorpu bs.
Hvað Sorpu varðar þá eru fyrirhugaðar nauðsynlegar breytingar á rekstrarformi einstakra verkefna Sorpu bs. í kjölfar skoðunar ESA á tekjuskattsundanþágu þess hafa þá verið nokkuð til skoðunar hjá Stefnuráði byggðasamlaganna en á fundi sínum 14. ágúst 2024 féllst stefnuráð fyrir sitt leyti á að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. yrði færð í félag/félög með takmarkaðri ábyrgð eigenda. Var sú ákvörðun síðar staðfest á vettvangi sveitarfélaganna enda samræmist hún kröfum ESA. Breytingar á starfsemi Sorpu vegna þessa ganga í gegn um næstu áramót.
Hvað varðar Strætó bs. þá hafa orðið talsverðar breytingar á starfsemi þess. Samkvæmt samkomulagi sem ríki og sveitarfélög skrifuðu undir 21. ágúst 2024 hefur verið stofnað sameiginlegt félag sem ber ábyrgð á skipulagi og rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Það félag, Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., tók við rekstri almenningssamgangna á svæðinu á árinu 2026 en þó mun Strætó bs. áfram sinna vagnaakstri að hluta.
Ekki hefur verið mótuð eigendastefna eða eigendavettvangur fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. en í stjórn þess sitja framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaganna, þ.e. borgarstjóri og bæjarstjórar sveitarfélaganna á svæðinu.

Ljósmynd úr safni Kópavogs
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Sorpa bs.
Strætó bs.
Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu

Rekstur og stjórnun
Hinn 1. janúar 2022 tók nýr samstarfssamningur sveitarfélaganna um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins gildi, en eldri samningur þeirra rann út á sama tíma. Við gerð hins nýja samnings, en hann var unninn á vettvangi SSH með aðkomu Samstarfsnefndar skíðasvæðanna og í kjölfarið sendur sveitarfélögunum til afgreiðslu, var leitast við að skýra verkferla og hlutverk aðila sem koma að rekstri skíðasvæðanna. Samstarfsnefnd skíðasvæðanna, sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju aðildarsveitarfélaga skíðasvæðanna, hefur m.a. það hlutverk að móta tillögur um stefnu og starfs- og fjárhagsáætlun skíðasvæðanna og að hafa eftirlit með rekstri þeirra.
Rekstur svæðanna, svo sem er varðar starfsmannahald, fjárreiður og bókhald er svo í höndum Reykjavíkurborgar samkvæmt sérstökum þjónustusamningi þar um. Það eru fulltrúar í stjórn SSH hverju sinni sem skipa eigendavettvang skíðasvæðanna. Eigendavettvangur fjallar um starfs- og fjárhagsáætlun skíðasvæðanna og önnur mál sem varða stefnumótun eða meiri háttar fjárhagslegar ákvarðanir sem falla utan samþykktra áætlana.
Framkvæmdir á skíðasvæðunum
Haustið 2017 fór af stað vinna hjá Samstarfsnefnd skíðasvæðanna við mótun framtíðarsýnar skíðasvæðanna en þörf var talin orðin á því að endurnýja lyftukost svæðanna og huga að snjóframleiðslu. Tillögur lágu fyrir í lok árs 2017 og var þeim fylgt eftir með kynningum í öllum bæjarráðum í mars 2018.
Á fundi sínum hinn 5. mars 2018 samþykkti stjórn SSH, sem er eigendavettvangur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, að skipa sérstakan verkefnahóp til að undirbúa tillögu að aðgerða- og framkvæmdaáætlun á grundvelli áðurnefndrar vinnu við framtíðarsýn á uppbyggingu og rekstri skíðasvæðanna. Hópurinn hefur verið starfræktur síðan, samkvæmt upphaflegu erindisbréfi og viðauka við það, sem var samþykktur á fundi stjórnar SSH hinn 2. mars 2020.
Hinn 7. maí 2018 undirrituðu framkvæmdastjórar þeirra sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem reka Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Verkefnahópurinn hefur eftirlit með þessum framkvæmdum en jafnframt var ráðinn sérstakur verkefnastjóri vegna þeirra.
Þrír viðaukar hafa síðan verið gerðir við samkomulagið, Viðauki I dags. 6. mars 2020, Viðauki II dags. 24. febrúar 2021, og Viðauki III dags 5. maí 2022 en með þeim voru m.a. gerðar uppfærslur á upphaflegri kostnaðar- og tímaáætlun verkefnisins, en þær röskuðust eitthvað, m.a. vegna áhrifa Covid-19.
Voru skíðalyfturnar Gosi og Drottning teknar í notkun í lok árs 2022, en upphaflega var ekki gert ráð fyrir afhendingu Drottningar fyrr en haustið 2023. Þá fóru fram útboð vegna annars vegar kaupa á snjóframleiðslubúnaði og hins vegar vegna borunar vinnsluholu fyrir snjóframleiðslu og er snjóframleiðsla nú hafin í Bláfjöllum. Þá hefur einnig verið hugað að bættri aðstöðu fyrir gönguskíðaiðkun og var nýtt salernishús á suðursvæði Bláfjalla tilbúið til notkunar haustið 2022.
Aðrar framkvæmdir hafa enn ekki farið af stað og verður áfram unnið að tillögugerð á vettvangi stjórnar SSH og samstarfsnefndar skíðasvæðanna um áframhald í þeim efnum.
Höfuðborgargirðing
Frá árinu 1987 hafa SSH annast rekstur og viðhald á fjárheldri girðingu um höfuðborgarsvæðið, en hún var lögð að frumkvæði samtakanna. Lausaganga búfjár er bönnuð innan girðingarinnar, og markmiðið með henni er að koma í veg fyrir ágang og ónæði vegna búfjár í útjaðri byggðar á höfuðborgarsvæðinu.
Bæði er um að ræða tilfallandi viðhaldsaðgerðir, t.a.m. ef rof kemur á girðinguna, en einnig getur verið nauðsynlegt að ráðast í umfangsmeiri endurnýjun og endurbætur á girðingunni. Er viðhaldsþörf metin á hverju vori og eftir þörfum og aðstæðum þess á milli. Á árinu 2026 var gengið til samninga við nýjan verktaka til að sinna eftirliti, viðhaldi og rekstri girðingarinnar. Síðustu ár hefur markvisst verið unnið að endurnýjun á völdum köflum á girðingunni og verður þeirri vinnu haldið áfram.

Kort sem sýnir hofuðborgargirðingu í austurhluta höfuðbogarsvæðisins, merkt með gulri línu
Umdæmisráð barnaverndar
Með breytingum á barnaverndarlögum, en ákvæði laganna er snúa að umdæmisráði barnaverndar komu til framkvæmda 1. janúar 2023, voru gömlu barnaverndarnefndirnar lagðar af en sveitarstjórnum þess í stað gert að skipa sérstök umdæmisráð barnaverndar í þeim tilgangi að skapa aðskilnað milli sveitarfélaga og úrskurðaraðila.
Aðildarsveitarfélög SSH, nema Reykjavík sem rekur sérstakt umdæmisráð, ákváðu að setja á stofn sameiginlegt umdæmisráð og var samningur um rekstur þess undirritaður 12. desember 2022. Ráðið hefur starfað frá 1. janúar 2023 og er ákveðinn hluti umsýslu þess í höndum SSH samkvæmt samningi við sveitarfélögin.
Umsagnir SSH
Hagsmunagæsla fyrir sveitarfélögin er stór þáttur í starfseminni en m.a. senda SSH umsagnir við lagafrumvörp og tillögur til þingsályktana sem eru til meðferðar Alþingis.
Auk þess senda SSH umsagnir við áform um lagasetningu og drög að lagafrumvörpum og önnur stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem tilefni er til. Það sem af er árinu 2026 hafa eftirfarandi umsagnir verið sendar nefndasviði Alþingis og á samráðsgátt stjórnvalda:
Umsagnir til Alþingis Umsagnir á samráðsgátt stjórnvalda
Kynningarmál og samtal við kjörna fulltrúa
Kynningarfundir
SSH standa reglulega fyrir kynningar- og umræðufundum, svokölluðum örfundum, fyrir kjörna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu og eftir atvikum aðra aðila eins og lykilstarfsfólk sveitarfélaganna í hlutaðeigandi málaflokkum og þingmenn höfuðborgarsvæðisins.
Á fundunum eru þau málefni sem eru efst á baugi kynnt og tekin til umræðu. Fundirnir eru almennt í fjarfundaformi og stefnt er að því að hver fundur sé aðeins klukkustundar langur. Þessir fundir hafa verið vel sóttir og er almenn ánægja með þá, en frá aðalfundi SSH 14. nóvember 2025 hafa verið haldnir fundir til kynningar á eftirfarandi:
Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu – Sóknaráætlun 2025
Kynning á skýrslu Eflu um sóknaráætlunarverkefnið Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu sem felur í sér greiningu og mótun sameiginlegra aðgerða til að dreifa umferðarálagi um höfuðborgarsvæðið.
Nánar
Samráðsfundur um endurskoðun byggðaáætlunar, haldinn í samstarfi við innviðaráðuneytið og Byggðastofnun
Fulltrúar ráðuneytisins og Byggðastofnunar kynntu fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun, með sérstakri áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar.
Nánar
Samspil og virkni velferðarþjónustu
Skýrsla HLH ráðgjafar um sóknaráætlunarverkefnið Samspil og virkni velferðarþjónustu kom út í september 2026 og var kynnt á sameiginlegum fundi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og þingmanna höfuðborgarsvæðisins.
Frétt: „Grá svæði“ í velferðarþjónustu hafa áhrif á fólk og fjárhag sveitarfélaga | Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Nánar
Innviðagreining og þróun húsnæðismála
Kynning á sóknaráætlunarverkefninu Innviðagreining og þróun húsnæðismála. Verkefnið, sem unnið var af VSÓ ráðgjöf snerist um að vinna ítarlega greiningu á þjónustuinnviðum höfuðborgarsvæðisins með tilliti til þróunar húsnæðismála.
Nánar
Lykiltölur hins byggða umhverfis
Kynning á sóknaráætlunarverkefninu Lykiltölur hins byggða umhverfis sem var unnið af VSÓ ráðgjöf ásamt Úrbana og Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, aðjúnkt í skipulagsfræði. Markmið þess var að gera samanburðargreiningu á lykiltölum og gæðum hins byggða umhverfis og bera saman við önnur borgarsvæði.
Nánar
Breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits
Lög sem breyta eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti taka gildi 1. janúar nk. Þessi löggjöf hefur mikil áhrif á sveitarfélögin sem standa nú frammi fyrir umfangsmiklu innleiðingarverkefni sem ljúka þarf á afar skömmum tíma.
Þótt meginhluti eftirlits- og leyfisverkefna flytjist til ríkisins verður áfram fjöldi verkefna á ábyrgð sveitarfélaga og í öðrum tilvikum er gert ráð fyrir samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Með niðurlagningu heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga þarf að finna þessum verkefnum nýjan stað.
Starfshópur sem var skipaður af stjórn SSH og var falið að greina framangreint kynnti niðurstöður sínar og næstu skref málsins á örfundi fyrir kjörna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu.

Ljósmynd úr safni Hafnarfjarðar
Samstarfs- og verkefnahópar
Samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hefur m.a. einkennst af starfi ýmissa samstarfs- og verkefnahópa og nefnda sem unnið hafa á vettvangi SSH. Þessir hópar eru ýmist viðvarandi eða settir á laggirnar til að takast á við tímabundin verkefni. Er t.a.m. algengt að í tengslum við sóknaráætlunarverkefni séu settir upp sprett- eða verkefnahópar og er nánar fjallað um þá í umfjöllun um einstök verkefni. Auk neðangreindra hópa eiga fulltrúar SSH jafnframt sæti í ýmsum vinnuhópum, ráðum og nefndum á vegum annarra aðila.
Formlegar nefndir
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins:
Svæðisskipulagsnefndin byggir á ákvæðum skipulagslaga og er skipuð tveim fulltrúum frá hverju aðildarsveitarfélagi og tveimur til vara.
Skólamálanefnd SSH:
Nefndina skipa fræðslustjórar aðildarsveitarfélaganna að Kjósarhreppi undanskildum. Hún starfar samkvæmt sérstöku erindisbréfi og er ætlað að vera samráðs- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á sviði fræðslumála.
Stefnuráð byggðasamlaganna:
Stefnuráð starfar á grundvelli viðauka við stofnsamþykktir Strætó bs. og Sorpu bs. og er skipað 20 fulltrúum, þremur frá hverju sveitarfélagi utan Reykjavíkur og fimm frá Reykjavík.

Ljósmynd úr safni Reykjavíkur
Viðvarandi samstarfshópar
Samráðshópur á sviði velferðarmála
Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu
Fagráð svæðisskipulags