09. júlí 2026
Ferðavenjukönnun 2025 birt
Ný ferðavenjukönnun var gerð í október 2025 og birt nýlega.
Ferðavenjukönnunin nær til alls landsins, en það var fyrst gert í könnuninni árið 2019. Sambærilegar kannanir voru gerðar fjórum sinnum áður fyrir höfuðborgarsvæðið. SSH stóð að gerð könnunarinnar ásamt innviðaráðuneytinu, Vegagerðinni, Strætó bs. og Betri samgöngum ohf.
Í könnuninni eru ferðavenjur fólks mældar fyrir alla samgöngumáta og niðurstöður teknar saman fyrir landið allt, einstaka landshluta, sveitarfélög og hverfi þar sem það á við.
Helstu niðurstöður
- Daglegum ferðum landsmanna í umferðinni fjölgar lítillega í nýrri könnun.
- Daglegar ferðir á mann eru nú 3,3 að meðaltali á landsvísu, samanborið við 3,2 ferðir árið 2022. Ferðatíðni er enn undir því sem mældist árið 2019 (3,7 ferðir).
- Langflestir fara tvær til þrjár ferðir á dag, eða 47% landsmanna.
- Ungmenni á aldrinum 13–17 ára fara flestar ferðir (að jafnaði 4,6 á dag), en ferðatíðni minnkar almennt með hækkandi aldri.
- Elsti hópurinn fer fæstar ferðir eða 2,4 að jafnaði á dag. Þá fara þau sem eru bæði í skóla og vinnu flestar ferðir, en þau sem eru hvorki í skóla né vinnu fæstar ferðir.
Nálgast má niðurstöður könnunarinnar hér fyrir neðan. Ítarlegri niðurstöður eftir landshlutum og hverfum höfuðborgarsvæðisins eru aðgengilegar á vef Stjórnarráðsins.