Vinnufundur Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins
Samkvæmt 26. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þarf nefndin að taka afstöðu til endurskoðunar svæðisskipulags innan árs frá sveitarstjórnarkosningum. Markmið fundarins var að varpa ljósi á helstu forsendur þróunar höfuðborgarsvæðisins og styðja við mat nefndarinnar á stöðu svæðisskipulagsins og þörf fyrir endurskoðun þess.
Sérfræðingar fluttu stuttar kynningar á fundinum. Auk nefndarinnar og kynningaraðila var skipulagsfulltrúum sveitarfélaganna, fulltrúum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) og Veðurstofu Íslands boðið að taka þátt.
Jónas Atli Gunnarsson frá HMS fjallaði um íbúaþróun, húsnæðisþörf og byggðaþróun. Hann fór yfir hlutverk húsnæðisáætlana og áhrif breyttrar heimilisstærðar á íbúðaþörf. Í kynningu og umræðum var einnig farið yfir niðurstöður könnunar HMS um búsetuóskir, meðal annars húsnæðisgerðir, umhverfisgæði og aðgengi að samgöngum.
Gro B.M. Pedersen, Ásta Rut Hjartardóttir og Halldór Björnsson frá Veðurstofu Íslands fjölluðu um náttúruvá og loftslagsbreytingar. Kynntar voru niðurstöður hættumats vegna eldfjallavár og fjallað um sprungusvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, sjávarstöðuhækkun og sjávarflóðahættu.
Samgönguverkfræðingarnir Berglind Hallgrímsdóttir frá EFLU og Ólöf Kristjánsdóttir frá COWI fjölluðu meðal annars um þróun umferðar og ferðavenja á höfuðborgarsvæðinu, afkastagetu samgöngukerfisins og plássþörf ólíkra ferðamáta. Einnig var fjallað um tengsl byggðaskipulags við almenningssamgöngur og virka ferðamáta, svo sem göngu og hjólreiðar.
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt fjallaði um græna trefilinn, útivistarsvæði og grænar tengingar innan byggðar. Hann ræddi meðal annars um græna stíginn og hlutverk gróðurs við göngu- og samgönguleiðir, bæði til skjólmyndunar og sem hluta af nærumhverfi íbúa.
Páll Stefánsson og Hjalti Jóel Magnússon fjölluðu um vatnsból og vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu. Farið var yfir sögu sameiginlegs vatnsverndarskipulags, núverandi fyrirkomulag og áskoranir fram undan. Einnig var rætt um mikilvægi þess að tryggja öryggi neysluvatns við skipulag byggðar og annarrar starfsemi.
Hrafnkell Proppé skipulagsfræðingur frá Úrbana og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt frá teiknistofunni Stiku fjölluðu um gæði byggðar og tengsl landnotkunar, þéttleika, samgangna og almenningsrýma. Meðal umfjöllunarefna voru aðgengi að þjónustu, dagsbirta, græn svæði og aðstæður fyrir mannlíf í hverfum.

Í lok fundarins ræddu þátttakendur í hópum um efni kynninganna og helstu viðfangsefni svæðisskipulagsins. Að lokum var farið yfir samantekt úr umræðunum.
Fyrir hönd Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins þakkar skrifstofa SSH öllum gestum fundarins kærlega fyrir komuna og samtalið.