Fara í efni

SSH fagna 50 ára afmæli

Nýverið fögnuðu Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) 50 ára afmæli sínu. Af því tilefni var blásið til afmælisfagnaðar á Brasa á Smáratorgi í Kópavogi.

Bergur Ebbi Benediktsson stýrði dagskránni og flutti jafnframt skemmtilegt erindi og hugvekju um starfsemi SSH, samvinnu sveitarfélaganna og framtíðina. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og formaður SSH ávarpaði gesti, sem og Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri samtakanna.

Góð stemning ríkti í hópi gesta, en fjölmargir kjörnir fulltrúar, samstarfsaðilar og aðrir velunnarar SSH mættu til að fagna stórafmælinu. Boðið var upp á léttar veitingar og notalega samveru.

Meðfylgjandi myndir gefa góða innsýn í ánægjulega afmælisstund.

Ljósmyndari: Hulda Margrét