Skólar og menntun í fremstu röð - Þjóðfélagslegur kostnaður af brotthvarfi úr námi á framhaldsskólastigi -Mars 2014
Núvirtur þjóðfélagslegur kostnaður af brotthvarfi eins nemanda úr námi á framhaldsskólastigi var 14 milljónir króna á verðlagi ársins 2012.
Áætlað var að 29,2% af nýnemum séu horfnir frá námi fjórum árum eftir innritun. Þá voru 4.305 einstaklingar á 16. aldursári sem stunduðu nám á framhaldsskólastigi árið 2012. Miðað við að 1.259 þeirra hverfi frá námi er þjóðfélagslegur kostnaður af brotthvarfi þess árgangs 17,7 milljarðar króna. Eftir að tekið hefur verið tillit til þess að annars vegar verður aldrei spornað við brotthvarfi allra og hins vegar að hluti þeirra mun ljúka námi seinna, standa eftir 10,1 milljarður af þjóðfélagslegum kostnaði. Ef einungis er horft til þeirra sem voru á höfuðborgarsvæðinu var sú tala rúmlega 6,1 milljarðar.
Ef miðað er við að 19,5% af öllum nemendum sem stunda nám á framhaldsskólastigi hverfi frá námi á hverju ári mun brotthvarf árið 2012 verða 4.954 nemendur. Þjóðfélagslegur kostnaður af brotthvarfi nemenda 2012 var þá 52,4 milljarðar króna. Þar af var 32,1 milljarður á höfuðborgarsvæðinu. Sá hluti sem aðgerðir til þess að sporna gegn brotthvarfi gætu haft áhrif á var 44,9 milljarðar. Af því var hlutinn sem á við brotthvarf á höfuðborgarsvæðinu 27,6 milljarðar króna.
Verkefnastjóri var Skúli Helgason.