Farsældarerindreki - bætt aðgengi að upplýsingum um þjónustu fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu
Í dag undirrituðu SSH og Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði og sérfræðingur í gervigreind, samning um þróun Farsældarerindreka. Um er að ræða gervigreindarlausn sem ætlað er að auðvelda börnum, foreldrum, forsjáraðilum og fagfólki að finna upplýsingar um viðeigandi þjónustu á höfuðborgarsvæðinu þegar þörf er á.