Fara í efni

Aðalfundur SSH 2026

Aðalfundir SSH og SHS voru haldnir í Friðrikssal í nýju Bókasafni Hafnarfjarðar föstudaginn 13. nóvember

Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), var haldinn í nýju Bókasafni Hafnarfjarðar í Firði föstudaginn 13. nóvember sl. og var dagskrá fundarins að venju fjölbreytt.

Hildur Björnsdóttir, formaður stjórnar SSH, kynnti skýrslu stjórnar um starfsemina á liðnu starfsári. Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH kynnti fjölbreytta verkefnaflóru samtakanna og áherslur framundan. Þorsteinn Hermannsson framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf. kynnti yfirstandandi verkefni Samgöngusáttmálans og Sigurður Guðjón Jónsson ráðgjafi fjallaði um fyrirhugaðan sameiginlegan innkaupavef aðildarsveitarfélaga SSH og næstu skref í því verkefni.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa urðu formannsskipti í stjórn SSH þegar Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tók við formennsku af Hildi Björnsdóttur borgarstjóra Reykjavíkur.

Aðalfundur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) fór einnig fram þennan dag og var þar m.a. fjallað um framtíðaruppbyggingu SHS og verkefni tengd forvörnum.

SSH þakka öllum fyrir komuna og góðan fund.

Ársskýrsla, ársreikningur og fundargerð aðalfundar