Fara í efni

Fýsileiki samræmdra merkinga útivistarsvæða

SSH hafa falið Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins að kanna fýsileika þess að samræma merkingar útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu.
Fýsileiki samræmdra merkinga útivistarsvæða

Verkefnið hefur beina tengingu við sóknaráætlun, en eitt af áhersluverkefnum hennar er að efla kynningu á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins.

Til þess að ræða og meta fýsileika þess að samræma merkingar útivistarsvæða var ákveðið að boða fulltrúa sveitarfélagana á höfuðborgarsvæðinu á vinnustofu og var hún haldin 11. september sl. Á vinnustofunni var rýnt í það hvernig merkingum útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu er háttað í dag og rætt um tækifæri og áskoranir sem felast í samræmdum merkingum. Þátttakendur lögðu mat á fýsileika þess að samræma merkingar útivistarsvæða og ræddu þær áherslur sem þyrfti að taka tillit til varðandi mögulega hönnun.

Tækifærin eru talin liggja einna helst í því að samræmd heildarásýnd myndi auðvelda notendum að finna svæði, rata leiða sinna og njóta útivistar, sér í lagi þegar um er að ræða leiðir sem liggja yfir sveitarfélagamörk. Jafnframt myndu samræmdar merkingar efla öryggi notenda. Fyrir sveitarfélögin myndu samræmdar merkingar einnig stuðla að hagræðingu með því að auðvelda hönnun, umsýslu og viðhald. Þá snúa áskoranir helst að fjármagni og innleiðingu.

Verið er að vinna úr niðurstöðum vinnustofunnar um samræmdar merkingar útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu. Greint verður frá framvindu verkefnisins eftir því sem því vindur fram.