Fara í efni

Grá svæði í velferðarþjónustu kosta sveitarfélög milljarða

Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins árið 2025 var „Samspil og virkni velferðarþjónustu í víðum skilningi“ en markmið þess var að skerpa á áskorunum ríkis og sveitarfélaga í velferðarmálum og greina hvar óvissa ríkir um verkaskiptingu og kostnað.

Skýrsla HLH ráðgjafar um verkefnið hefur nú verið gefin út og sýna niðurstöður hennar að svokölluð „grá svæði“ sem myndast þegar ábyrgð, fjármögnun eða framkvæmd þjónustu er óskýr, umdeild eða óskilgreind, eru kerfislægt vandamál sem hafur veruleg áhrif á bæði þjónustu við íbúa og fjárhag sveitarfélaganna. Staðan er sú að ríkið setur lagalegan og stefnumótandi ramma utan um lögbundna þjónustu sem sveitarfélög bera ábyrgð á og þurfa að fjármagna. Þessi ábyrgðarskipting leiðir til þess að ákvarðanataka um þjónustustig og réttindi getur verið aðskilin frá ábyrgð á rekstri og fjármögnun þjónustunnar.

Þegar ábyrgð, framkvæmd eða fjármögnun eru óljós færist þjónustuþörf ítrekað á milli kerfa og sveitarfélög taka á sig kostnað vegna verkefna sem liggja utan lögbundinnar ábyrgðar þeirra.Vandinn birtist með þrennum hætti: Fólk fær ekki þá þjónustu sem það þarf, þjónusta skarast og tvíverknaður verður eða eitt stjórnsýslustig veitir þjónustu sem annað stjórnsýslustig ætti að fjármagna.

Þegar heilbrigðiskerfið glímir við fráflæðisvanda, biðlista eða skort á úrræðum hverfur þjónustuþörfin ekki en getur þess í stað færst yfir á félagsþjónustu sveitarfélaganna.

Kostnaðurinn sem af þessu skapast er umtalsverður. Á höfuðborgarsvæðinu er viðbótarkostnaður sveitarfélaga vegna hjúkrunarþjónustu við aldrað fatlað fólk í búsetuúrræðum metinn á 577 til 1.764 milljónir króna á ári. Þá er áætlaður kostnaður vegna öryggisþjónustu við um 30 einstaklinga með alvarlegan geð- og hegðunarvanda 350 til 800 milljónir króna á ári.

Heildarútgjöld vegna NPA-samninga á landsvísu voru þá um 5,8 milljarðar króna árið 2024 og hafa raunútgjöld fimmfaldast frá árinu 2015 á sama tíma og samningum hefur fjölgað um rúmlega 100 prósent. Í skýrslunni er bent á að þjónustuþarfir innan NPA geti þróast frá félagslegum stuðningi yfir í hjúkrunarþjónustu án þess að skýrt ferli sé til staðar um hvenær heilbrigðiskerfið eigi að koma að fjármögnun þjónustunnar.

Þá fer eftirspurn eftir þjónustu vaxandi. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúum 67 ára og eldri um 41 prósent á árunum 2016–2026, úr 24.447 í 34.454. Hlutfall fólks á vinnualdri miðað við hvern einstakling 67 ára og eldri hefur lækkað úr 6,1 á árinu 2008 í 4,4 á árinu 2026 og samkvæmt miðspá Hagstofunnar verður það 4,1 árið 2040.

Greiningin bendir því til þess að vandinn snúist ekki aðeins um fjármuni heldur einnig um hvernig þjónustan er skipulögð og skilgreind. Þjónustuþarfir breytast yfir tíma, til dæmis þegar fatlað fólk eldist eða þegar þarfir einstaklinga sem áður þurftu félagslegan stuðning þróast yfir í hjúkrunarþarfir.

Jafnframt er skortur á samræmdum gögnum um þjónustu, kostnað og þarfir sveitarfélaganna. Því er ekki unnt að leggja nákvæmt mat á heildarumfang kostnaðarins og tölurnar í greiningunni eru að hluta settar fram sem kostnaðarmat eða bil. Í skýrslunni kemur einng fram að sjónarmið heilbrigðisyfirvalda liggi ekki fyrir með sama hætti og sjónarmið sveitarfélaganna.

Niðurstaðan er engu að síður skýr: Gráu svæðin eru ekki aðeins stjórnsýslulegt viðfangsefni heldur hafa þau áhrif á þjónustu við fólk og fela í sér verulegan og vaxandi kostnað fyrir sveitarfélögin. Á sama tíma og eftirspurn eftir velferðarþjónustu eykst og framboð vinnuafls dregst hlutfallslega saman verður því sífellt mikilvægara að ábyrgðarmörk séu skýr og að ábyrgð og fjármagn fylgist að.

Í skýrslunni eru lagðar til ýmsar leiðir til að bregðast við þessum vanda. Þar er meðal annars kallað eftir sameiginlegri stefnumörkun, skýrari verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, samræmdara mati á þjónustuþörf og því að fjármögnun fylgi þeirri ábyrgð sem lögð er á sveitarfélögin. Jafnframt er lögð áhersla á samþættingu þjónustu og formlega samvinnu kerfanna, þannig að fólk falli síður á milli þeirra þegar þjónustuþörf breytist eða verður flóknari.

Á fundi sínum 21. september 2026 bókaði stjórn SSH eftirfarandi vegna niðustaðna skýrslunnar:
"Ljóst er að grá svæði í verkaskiptingu og ábyrgð á veitingu velferðarþjónustu hafa mikil og raunveruleg áhrif á líf þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem lenda á mörkum kerfanna. Þá hefur óskýr verkaskipting leitt til verulegs kostnaðar fyrir sveitarfélög vegna þjónustu sem fellur utan lögbundinna skyldna þeirra. Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að með samráði og samkomulagi ríkis og sveitarfélaga sé unnt að skýra verkaskiptingu og draga úr þessum vanda og umfangi grárra svæða.

Stjórn SSH hvetur því til markvissra viðræðna milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig þjónustu við þá hópa sem um ræðir verði best fyrir komið. Mikilvægt er að ábyrgð á þjónustu sé skýr, fjármögnun fylgi ábyrgð og komið verði á formlegu samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Slíkt er til þess fallið að stuðla að samfelldari og skilvirkari þjónustu við einstaklinga og hagkvæmari nýtingu fjármuna. Í því felst m.a. sameiginleg stefnumörkun og fjármögnun vegna aldraðs fatlaðs fólks og ungra hjúkrunarsjúklinga og heildarendurskoðun á NPA-þjónustuforminu."