„Grá svæði“ í velferðarþjónustu hafa áhrif á fólk og fjárhag sveitarfélaga

Skýrslan Samspil og virkni velferðarþjónustu – Áskoranir ríkis og sveitarfélaga í velferðarþjónustu var nýlega kynnt á sameiginlegum fundi kjörinna fulltrúa sveitarstjórna og þingmanna höfuðborgarsvæðisins. Skýrslan var unnin af HLH ráðgjöf á vettvangi SSH og er afrakstur áhersluverkefnis sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins.
Niðurstöður skýrslunnar sýna að svokölluð „grá svæði“ í velferðarþjónustu eru kerfislægt vandamál sem hefur áhrif bæði á þjónustu við íbúa og fjárhag sveitarfélaga. Óskýr verkaskipting ríkis og sveitarfélaga getur leitt til þess að þjónustuþarfir flytjist milli kerfa og sveitarfélög taki á sig kostnað vegna verkefna sem falla að hluta eða öllu leyti utan lögbundinnar ábyrgðar þeirra.
Grá svæði í verkaskiptingu og ábyrgð á veitingu velferðarþjónustu hafa þannig raunveruleg áhrif á líf einstaklinga og fjölskyldna sem lenda á mörkum kerfanna. Skýrslan bendir jafnframt til þess að með skýrari verkaskiptingu, samráði og formlegu samstarfi ríkis og sveitarfélaga megi draga úr þessum vanda. Lögð er áhersla á að ábyrgð á þjónustu sé skýr og að fjármögnun fylgi þeirri ábyrgð.
Vonir standa til þess að skýrslan nýtist sem innlegg í áframhaldandi viðræður ríkis og sveitarfélaga um hvernig þjónustu við þá hópa sem um ræðir verði best fyrir komið og hvernig draga megi úr umfangi grárra svæða í velferðarþjónustu. Mikilvægt er að ábyrgð á þjónustu sé skýr, fjármögnun fylgi ábyrgð og komið verði á formlegu samstarfi ríkis og sveitarfélaga.

- SKÝRSLA
- Samspil og virkni velferðarþjónustu - skýrsla sept.2026 - HLH ráðgjöf
ÁHERSLUVERKEFNI SÓKNARÁÆTLUNAR- Samspil og virkni velferðarþjónustu