Fara í efni

Nýta gervigreind til að efla þjónustu og hagræðinu í rekstri sveitarfélaganna

Skrifað undir samning við DataLab vegna nýtingar gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Gervigreind er ekki lengur fjarlæg framtíðarsýn – hún er þegar farin að umbreyta daglegum störfum og þjónustu. Nú hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu stigið ákveðið skref í átt að sameiginlegri nýtingu gervigreindar í þágu íbúa.

Á árinu 2025 var, á vettvangi SSH, hrundið af stað sóknaráætlunarverkefni sem miðaði að því að kortleggja tækifæri til hagnýtingar gervigreindar í starfi sveitarfélaganna. Niðurstöður þess sýndu skýrlega að tækifærin eru veruleg og sveitarfélögin sjá fram á að geta í auknum mæli nýtt sér gervigreindina til að auka skilvirkni og vinnuhraða sem skilar sér í bættri þjónustu við íbúa.

Hefur gervigreind því verið sett í áframhaldandi forgang. Meðal áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins á árinu 2026 er að nýta slíkar lausnir frekar til aukinnar þjónustu og rekstrarhagræðis. Markmiðið er skýrt – að nýta tæknina til að efla þjónustu, hagræða í rekstri og styrkja samstarf sveitarfélaganna á þessu sviði.

Gengið hefur verið til samninga við DataLab um að stýra verkefninu og innleiða og þróa lausnir á sviði gervigreindar í samstarfi við sveitarfélögin. Markmiðið er m.a. að koma fram með lausnir sem hagnýta gervigreind og nýtast sveitarfélögunum sjö strax á þessu ári.

Samhliða er starfandi sérstakur samráðsvettvangur sveitarfélaganna sem mótar stefnu og forgangsröðun verkefna, þannig að nýting gervigreindar verði markviss og samræmd eins og unnt er.

DataLab Ísland ehf. er íslenskt fyrirtæki sem hefur aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við að hagnýta sín eigin gögn til að skapa snjallar lausnir sem bæta rekstur og samkeppnishæfni.

Með þessari vinnu eru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ekki aðeins að fylgja þróuninni – heldur taka virkan þátt í að móta framtíð opinberrar þjónustu.

Á myndinni má sjá Brynjólf Borgar Jónsson framkvæmdastjóra DataLab og Pál Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóra SSH að lokinni rafrænni undirritun samningsins.