Fara í efni

Útgefið efni

Samgöngur og skipulag
30.09.2026

Lykiltölur hins byggða umhverfis

Verkefnið Lykiltölur hins byggða umhverfis er hluti af framfylgd Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025–2029. Upphaflegt markmið verkefnisins var að skilgreina lykiltölur um hið byggða umhverfi og gæði þess á höfuðborgarsvæðinu og bera þær saman við önnur borgarsvæði. Við úrvinnslu verkefnisins kom í ljós að erfitt er að finna samræmd og samanburðarhæf gögn frá öðrum löndum fyrir heildstætt sett slíkra lykiltalna.

Samgöngur og skipulag
16.07.2026

Innviðagreining á höfuðborgarsvæðinu

Skýrslan Innviðagreining á höfuðborgarsvæðinu sýnir aðgengi íbúa að þjónustuinnviðum á höfuðborgarsvæðinu. Til þjónustuinnviða teljast t.a.m. skólar, verslanir, sundlaugar, heilbrigðisþjónusta, græn svæði og fleira. Markmið greiningarinnar er að varpa ljósi á dreifingu innviða á höfuðborgarsvæðinu, aðgengi íbúa að þeim og hvernig aðgengi tengist lýðfræðilegri samsetningu og gerð byggðarinnar.

Samgöngur og skipulag
09.03.2026

Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Markmið verkefnisins er að greina og móta sameiginlegar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu vegna álagsdreifingar umferðar um svæðið. Aðgerðirnar voru m.a. mótaðar með því að rýna eldri tillögur, stefnur og aðgerðir, og standa að samráði við fulltrúa menntastofnanna og vinnustaða.