Lykiltölur hins byggða umhverfis
Verkefnið Lykiltölur hins byggða umhverfis er hluti af framfylgd Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025–2029. Upphaflegt markmið verkefnisins var að skilgreina lykiltölur um hið byggða umhverfi og gæði þess á höfuðborgarsvæðinu og bera þær saman við önnur borgarsvæði. Við úrvinnslu verkefnisins kom í ljós að erfitt er að finna samræmd og samanburðarhæf gögn frá öðrum löndum fyrir heildstætt sett slíkra lykiltalna.