Fara í efni

Viðurkenning til SSH fyrir verkefni í þágu fjöl-/tvítyngdra

Viðurkenning til SSH fyrir verkefni í þágu fjöl-/tvítyngdra

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hlutu á dögunum viðurkenningu fyrir tvö Erasmus+ verkefni: ?Stuðningur til að efla læsi og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum? og ?Starfsspeglun í kennslu og aðlögun fjöl-/tvítyngdra í grunnskólum?.

Verkefnin fengu viðurkenningu fyrir að stuðla að jöfnum tækifærum, en það voru Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ sem veittu viðurkenninguna. Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes hafa á undanförnum árum átt í samstarfi um símenntun grunnskólakennara, sem meðal annars hefur beinst að því að veita kennurum þjálfun og byggja upp reynslu í móttöku og aðlögun barna innflytjenda og flóttamanna í grunnskólunum á höfuðborgarsvæðinu. Um 40 kennarar og starfsmenn skólaskrifstofa hafa heimsótt skóla í Danmörku, Noregi og Svíþjóð með stuðningi frá Erasmus+.

Um leið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu lýstu því yfir árið 2017 að þau væru öll viljug til að taka á móti fleiri flóttamönnum og hælisleitendum vaknaði sú spurning hvernig væri hægt að styðja við kennara í því að taka á móti nemendum úr þessu hópi, kenna þeim og aðlaga að íslensku samfélagi. Nærtækast þótti að sækja í þekkingu og reynslu nágranna okkar á Norðurlöndum og styrkir frá Erasmus+ gerðu það mögulegt skólaárin 2017-2018 og 2018-2019. Alls hafa kennarar úr 34 skólum á höfuðborgarsvæðinu heimsótt um 20 skóla í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í gegnum umrædd verkefni. Í kjölfar heimsóknanna hafa þeir síðan miðlað af reynslu sinni til hundruða annarra kennara á höfuðborgarsvæðinu í gegnum fræðslufundi, fyrirlestra og annað kynningarefni.

Sjá nánar um Erasmus+ verkefni SSH http://ssh.menntamidja.is/fjolmenning/namsferdir-til-skandinaviu/ og http://ssh.menntamidja.is/fjolmenning/kennaraheimsoknir-til-nordurlanda/

Viðurkenningargripurinn er frá handverkstæðinu Ásgarði í Mosfellsbæ, sem er verndaður vinnustaður sem vinnur í anda Rudolf Steiner. Myndband um verkefnin má finna á slóðinni: https://www.youtube.com/watch?v=FsLChxN0paI&list=PLoouIJ4ind9pYVv79X4aqgn1VR7LeSTso&index=5&t=0s

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks þekkingarsamfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Lesa má meira um viðurkenningar fyrir Erasmus+ verkefni á slóðinni https://www.erasmusplus.is/um/frettir/innblastur-a-fostudegi