Fara í efni

Vaxtamörk við Álfsnesvík

Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna breytingar á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í útvíkkun á vaxtamörkum við Álfsnesvík til samræmis við breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 um afmörkun svæðis undir efnisvinnslu.

Verkefnislýsingin er aðgengileg á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, 200 Kópavogi, á vefsíðunni www.ssh.is/svaedisskipulag og vefsíðum aðildarsveitarfélaga.

Hægt er að nálgast verkefnislýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur á vefsíðunni www.adalskipulag.is

Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til skrifstofu SSH og er æskilegt að þær berist fyrir 28. mars 2018.

 Verkefnislýsing vegna breytinga á vaxtarmörkum við Álfsnesvík