Fara í efni

Tölfræði höfuðborgarsvæðisins

Tölfræði höfuðborgarsvæðisins

Í tengslum við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2015-2019 hefur SSH samantekt á tölfræðiupplýsingum um höfuðborgarsvæðið og framsetningu þeirra upplýsinga með myndrænum hætti á vefsíðu samtakanna.

Þessar upplýsingar taka til ýmissa lykilþátta er varða lýðfræði höfuðborgarsvæðisins, húsnæði og samgöngur.

Með því að setja þessar upplýsingar fram með myndrænum hætti er verið að bæta úr vaxandi þörf fyrir aðgengi að lykiltölum um höfuðborgarsvæðið, samsetningu byggðar, íbúaþróun og almenna lýðfræði.

Það talnaefni sem þarna er að finna byggir að miklu leyti á gagnagrunnum Þjóðskrár og Hagstofu, og var verkefnið m.a. unnið í samvinnu við þessar stofnanir. Talsverð vinna fór í að byggja upp tengsl við þessa gagnagrunna til að tryggja einfalda uppfærslu á talnaefninu.

Opnað hefur verið á möguleika fyrir niðurhal á grunngögnunum í gegnum vefsíðu SSH, til að auðvelda þeim sem vilja nýta þau með sértækum hætti s.s. til vörpunar yfir kortagrunna við skipulagsgerð o.fl.

Tölfræðihluta vefsíðu SSH er að finna hér:
ssh.is/toelfraedi

Tolfraedi