Svæðisskipulagsnefnd heimsótti Kjósarhrepp

Að loknum hefðbundnum fundarstörfum svæðisskipulagsnefndar var starfsfólki Kjósarhrepps og skipulagsfulltrúum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu boðið að taka þátt í heimsókninni.
Boðið var upp á kræsingar úr Kjósinni. Á boðstólnum var meðal annars nauta carpaccio og roastbeef frá Hálsi, taðreykt hangikjöt frá Kiðafelli, nautapylsur frá nautabúinu Sogni, grafin gæsabringa frá Bónda og jógúrt frá Bíó bú.

Jóhanna Hreinsdóttir, oddviti Kjósarhrepps, kynnti sveitarfélagið, þróun þess og framtíðarmöguleika. Í máli sínu kom Jóhanna meðal annars inn á íbúaþróun í sveitarfélaginu, borun eftir heitu vatni á Möðruvöllum og stofnun hitaveitu sveitarfélagsins. Jóhanna benti jafnframt á að vorveiði í Laxá, sem rennur neðan Ásgarðs, hefði einmitt hafist fyrr um daginn og væri það vel við hæfi í veðurblíðunni.
Því næst flutti Elís Guðmundsson, formaður skipulags-, umhverfis- og samgöngunefndar Kjósarhrepps og nefndarmaður í svæðisskipulagsnefnd, erindi um áskoranir og tækifæri í skipulagsmálum svæðisins. Hann sagði meðal annars frá uppbyggingu í landi Eyrar, þar sem fyrirhugaðar eru 48 lóðir fyrir íbúðarhús.
Að kynningum loknum var farið í heimsókn að Kiðafelli, þar sem hjónin Sigurbjörn Hjaltason og Bergþóra Andrésdóttir tóku á móti hópnum. Á fjósaloftinu á Kiðafelli hefur verið komið fyrir fjölbreyttu safni gamalla muna sem kallast Samansafnið á Kiðafelli. Þar mátti meðal annars sjá gamlar búvélar, stríðsminjar, sjávar- og landbúnaðarminjar og fjölmargt annað sem haldið hefur verið til haga frá liðnum tímum.


Fyrir hönd svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins þakkar skrifstofa SSH Kjósarhreppi fyrir frábærar móttökur.
