Sumarstarf á skrifstofu SSH 2026
Verkefni
• Umsjón og umsýsla ýmissa verkefna í samstarfi við annað starfsfólk SSH.
• Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun (BA/BS) sem nýtist í starfi.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Reynsla af skrifstofustörfum er kostur.
• Reynsla af skjalastjórnunarkerfi er kostur.
• Jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni.
• Sjálfstæð lausnamiðuð vinnubrögð og frumkvæði.
SSH eru sameiginleg hagsmunasamtök og málsvari þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið. Þau eru vettvangur fjölbreyttra sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna og koma að verkefnum eins og svæðisskipulagi, sóknaráætlunum, byggðasamlögunum Strætó og Sorpu, loftlagsmálum, vatnsvernd og farsæld barna.
Á skrifstofu SSH eru fimm starfsmenn en stjórn SSH er skipuð borgarstjóra og bæjarstjórum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Öll áhugasöm, án tillits til kyns eða uppruna, eru hvött til að sækja um.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi berist í gegnum www.alfred.is. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2026. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Hildigunnur Hafsteinsdóttir lögfræðingur SSH hildigunnur@ssh.is