Fara í efni

SSH auglýsir eftir svæðisskipulagsstjóra

Starf svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins er nú auglýst til umsóknar. Um er að ræða spennandi starf fyrir aðila með góða menntun og reynslu og brennandi áhuga á skipulagsmálum.

Starf svæðisskipulagsstjóra heyrir undir framkvæmdastjóra SSH og starfar viðkomandi með svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og sér um framgang og úrvinnslu mála sem tengajst svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þá sinnir svæðisskipulagsstjóri fjölbreyttum verkefnum sem tengjast samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Upplýsingar um starfssvið og hæfniskröfur má finna undir laus störf á vefsíðu SSH 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðinir um að sækja um starfið með því að senda kynningarbréf og ítarlega starfsferilsskrá á netfangið sandra@ssh.is. Í kynningabréfi skal gerð grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðning fyrir hæfni viðkomanda í starfið.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri SSH, Páll Björgvin Guðmundsson í síma 821-8179 eða í gegnum tölvupóst á netfangið pallbg@ssh.is

Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2020.