Síðasti fundur kjörtímabilsins
Svæðisskipulagsnefnd hóf störf síðsumars árið 2022. Í henni sitja tveir kjörnir fulltrúar frá hverju sveitarfélagi höfuðborgarsvæðisins og hefur hún umsjón með framfylgd og breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Starfstímabilið hefur verið viðburðaríkt. Nefndin hefur fjallað um fjölmörg skipulagsmál, skilað umsögnum og komið að ýmsum verkefnum sem tengjast þróun höfuðborgarsvæðisins.
Á síðasta fundi nefndarinnar kom Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri Almannavarna höfuðborgarsvæðisins og ræddi við nefndina um niðurstöður fyrsta hluta langtímahættumats vegna hraunvár á Reykjanesskaga. Niðurstöður matsins geta nýst til að bera saman svæði, meta berskjöldun gagnvart hraunvá og styðja við ákvarðanir um skipulag, landnotkun og framtíðaruppbyggingu. Þá fékk nefndin kynningu frá Ingu Hlín Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, á stöðu tjaldsvæða á höfuðborgarsvæðinu. Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, kynnti einnig stefnu borgarinnar og aðgerðaáætlun um gönguvæna borg.
Skrifstofa SSH þakkar fráfarandi svæðisskipulagsnefnd kærlega fyrir gott og viðburðaríkt samstarf á síðastliðnum árum.

Ljósmyndinni talið frá vinstri: Svana Helen Björnsdóttir frá Seltjarnarnesi, Hildur Björnsdóttir frá Reykjavíkurborg, Ásdís Ólafsdóttir svæðisskipulagsstjóri, Magnús Ingi Kristmannsson frá Kjósarhrepp, Hjálmar Sveinsson formaður frá Reykjavíkurborg, Stefán Már Gunnlaugsson frá Hafnarfirði, Sævar Birgisson frá Mosfellsbæ, Björg Fenger frá Garðabæ, Lovísa Björg Traustadóttir frá Hafnarfirði, Hjördís Ýr Johnson frá Kópavogi, Karen María Jónsdóttir frá Seltjarnarnesi, Helga Jónsdóttir frá Kópavogi og Helga Jóhannesdóttir frá Mosfellsbæ.