Fara í efni

Samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið

Skrifað var undir nýjan þriggja ára samning til áranna 2026-2028 um samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið á aðalfundi SSH þann 14. nóvember.

Sveitarfélögin Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins skrifuðu undir nýjan þriggja ára samning til áranna 2026-2028 um samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið á aðalfundi SSH sem haldinn var föstudaginn 14. nóvember í Garðaholti í Garðabæ.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins (Visit Reykjavík) var stofnuð árið 2023 og hefur fest sig í sessi í samstarfi aðila á höfuðborgarsvæðinu. Stofan er markaðs- og áfangastaðastofa höfuðborgarsvæðisins og er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna, stjórnvalda og atvinnugreinarinnar á svæðinu þegar kemur ferðamálum. eru um 200 samstarfs- og aðildarfélagar stofunni og sífellt bætast fleiri í hópinn.


Mynd tekin við undirritun samningsins í Garðaholti, Garðabæ, talið frá vinstri: Inga Hlín Pálsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Jón Kristinn Ólafsson og Sævar Birgisson úr stjórn Markaðsstofunnar.

Markmið áframhaldandi samnings er þróa og markaðssetja áfangastaðinn sem heild en sérstök áhersla er lögð á efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur með sjálfbærni leiðarljósi. Helstu áherslur samningsins snúa því efla vitund og þekkingu um áfangastaðinn, þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs, stjórnvalda og stoðkerfisins. Einnig efla samkeppnishæfni og slagkraft áfangastaðarins í alþjóðlegu samhengi.

Áfram er unnið því stuðla sátt íbúa, atvinnulífsins og sveitarfélaga um málefni ferðaþjónustunnar og styrkja stoðir og uppbyggingu hennar ásamt því  auka eftirspurn eftir fjölbreyttri þjónustu og atvinnustarfsemi. Markaðsstofan annast almennt þróunar- og markaðsstarf ásamt því vera málsvari og samnefnari fyrir ferðaþjónstuna á höfuðborgarsvæðinu.

Það er afar ánægjulegt það kominn áframhaldandi samningur um þróun og markaðssetningu á áfangastaðnum höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn markar næstu skref um samstarfið og styrkir sameiginlega sýn okkar um kynna og efla höfuðborgarsvæðið á bæði innlendum og erlendum vettvangi með skýrum markmiðum og sameiginlegum verkefnum,“ segir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, Inga Hlín Pálsdóttir.