Fara í efni

Samningur um þróun foreldraleiðarvísis undirritaður

Samningur SSH við Heimili og skóla markar upphaf vinnu á leiðarvísi fyrir foreldra.
Frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri …
Frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, og Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins

Á dögunum skrifuðu SSH og Heimili og skóli undir samning sem kemur á fót nýju verkefni tengdu foreldrafræðslu. Markmið verkefnisins er að efla stuðning við foreldra í ábyrgðarhlutverki sínu með sérstökum leiðarvísi um æskilega foreldrafræðslu sem skipt er upp eftir aldri barna.

Lögð er áhersla á að gera fræðsluefni aðgengilegt á einum stað þar sem foreldrar og fagfólk geta nálgast það. Verkefnið er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar 2026 og fellur undir meginflokk hennar, Velferð og samfélag.

Vinnan felst einnig í gerð sameiginlegra gæðaviðmiða um foreldrafræðslu og því getur leiðarvísirinn innihaldið upplýsingar frá mismunandi aðilum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Með þróun sameiginlegra gæðaviðmiða fyrir fræðslu er tekið mikilvægt skref í að búa til faglegan grunn fyrir áframhaldandi framfarir í foreldrafræðslu til framtíðar.

Þá verður áhersla lögð á fjölbreytta kynningu á leiðarvísinum með það markmið að hann verði á allra vörum.

Víðtækt samráð

Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 og byggir þ.a.l. mikið á þeirri fræðslu sem aðilar að ráðinu bjóða upp á. Farsældarráð samanstendur af fulltrúum sveitarfélaga, Heilsugæslu, Lögreglunnar, framhaldsskóla og íþróttahéraða á höfuðborgarsvæðinu.

Verkefnið felur í sér víðtækt samráð allra hlutaðeigandi aðila farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Þá verður einnig lögð áhersla á samráð við fulltrúa foreldra og að upplýsingar séu aðgengilegar á fjölbreyttum tungumálum. 

Heimili og skóli eru vel til fallin til þess að sjá um verkefnastjórn verkefnisins, en samtökin búa yfir mikilli reynslu af fræðslu og ráðgjöf sem snýr að farsæld barna og ungmenna, með áherslu á foreldrasamstarf og stuðning við þá. Eitt af meginmarkmiðum samtakanna er að efla samstarf allra þeirra sem koma að lífi og umhverfi barna, enda er samvinna heimila, skóla, frístundastarfs, heilbrigðisþjónustu og samfélagsins í heild lykilforsenda farsældar barna.

Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í desember 2026 með útgáfu Foreldrafræðsluleiðarvísis.