Sameiginlegur sérskóli á höfuðborgarsvæðinu
SSH og HLH ráðgjöf undirrituðu þann 2. maí sl. samning um verkefnastjórnun á verkefninu Sameiginlegur sérskóli á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið, sem er eitt áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025, snýst um að greina fýsileika þess að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eigi samstarf um uppbyggingu sérskóla í samstarfi við ríkið.
Verkefnið felur í sér að skoða stöðu barna með mestar þjónustuþarfir, hvort sem er vegna fötlunar, veikinda, yfirgripsmikilla hegðunarvandamála eða annars og hvernig komið er til móts við þær þarfir innan skólakerfisins. Kannað verður samspil milli mennta-, velferðar- og heilbrigðiskerfisins þar sem tryggja þarf samþættingu þjónustu þvert á kerfi. Markmiðið er að sem flest börn sæki sína heimaskóla og að þar sé þjónusta til staðar. Hins vegar hefur mikil ásókn verið í sérúrræði vegna þeirra barna sem örðugt er að veita úrræði við hæfi í heimaskólum. HLH ráðgjöf mun safna gögnum m.a. með viðtölum við aðila innan mennta-, velferðar-, og heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að greina núverandi stöðu og hvort fýsilegt sé að koma á fót sérskóla á svæðinu og hvernig samstarfi í kringum það verði þá best háttað.
Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við skólamálanefnd SSH, samráðshóp SSH á sviði velferðarmála, viðkomandi starfsfólk fagsviða sveitarfélaganna og viðkomandi fagráðuneyti, þ.e. mennta- og barnamálaráðuneytið auk Barna- og fjölskyldustofu.
Stefnt er að því að greining og niðurstöður liggi fyrir í lok árs 2025.
Við undirritun samnings 2. maí 2025: Arnar Haraldsson frá HLH ráðgjöf, Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH og Hanna Borg Jónsdóttir SSH
Tengt efni