Fara í efni

Moltudagurinn - Opið hús GAJA

Sorpa bs. fagnar sumardeginum fyrsta og um leið fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu og bjóðum í opið hús í GAJU sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl.
Moltudagurinn - Opið hús GAJA
Þetta er spennandi tækifæri til að forvitnast um ferðalag matarleifanna um jarðgerðarstöðina en á síðasta ári flokkuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins um 10.500 tonn af lífrænum úrgangi - það er ekkert smá vel gert!
 
DAGSKRÁ 11:00-15:00
  • Öll velkomin að mæta með kerru, fötu, eða fjölnota poka og ná í moltu fyrir vorverkin í garðinum, endurgjaldslaust.
  • Leiðsögn um stöðina á hálftíma fresti.
  • Stjörnu Sævar verður með fræðslu fyrir yngsta fólkið – hefst kl. 13.00.
  • Sérfræðingar frá Grasagarði Reykjavíkur veita fræðslu um moltu.

 

Facebook viðburður hjá SORPU

Molta er afrakstur af flokkunarkerfi höfuðborgarsvæðisins:

2024 matarleifar flokkun