Fara í efni

Metnaðarfullur greinandi - sumarstarf

SSH leita að metnaðarfullum og kraftmiklum hagfræðiþenkjandi greinanda með þekkingu á miðlun og framsetningu gagna í sumarstarf.
Starfið er tímabundið í 3-4 mánuði.

Helstu verkefni:
? Gagnagreining og vinnsla meðal annars tölfræðilegra gagna
? Greining og framsetning gagna og aðstoð við túlkun
? Miðlun gagna á vef, samfélagsmiðlum og á annan stafrænan hátt
? Skýrslugerð ásamt greinaskrifum
? Önnur verkefni sem styrkja ímynd og slagkraft SSH

Menntun og hæfniskröfur:
? Meistaranám á háskólastigi (meistaranemi) í hag-, viðskipta- eða verkfræði
? Þekking á vinnslu gagna og greiningum
? Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni
? Gott vald á miðlun gagna og rafrænum miðlum
? Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt í ræðu sem riti
? Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
? Frumkvæði, lausnamiðun og sjálfstæði í starfi

SSH er samstarfsvettvangur þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið og vinnur
vettvangurinn markvisst að sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaganna. Samtökin voru stofnuð
1976 og í dag eru þar fimm starfandi auk utanaðkomandi sérfræðinga og verkefnastjóra.
Skrifstofur SSH eru í Hamraborg 9, Kópavogi.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Páll Björgvin Guðmundsson, sími: 580-1781 eða netfang pallbg@ssh.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2022. Umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi berist í gegnum www.alfred.is