Fara í efni

Ferðamálaþing

Ferðamálaþing

Þörfin fyrir áfangastaðastofu á höfuðborgarsvæðinu er augljós

Ferðamálaþing Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) fór fram miðvikudaginn 27. apríl 2022 á Hilton Nordica.

Á þinginu var fjallað um aðdragandann að stofnun áfangastaðastofu fyrir höfuðborgarsvæðið og tóku aðilar frá ferðaþjónustufyrirtækjum, sveitarfélögum og hinu opinbera þátt.



Gunnar Einarsson, formaður stjórnar SSH, setti þingið og fjallaði við það tilefni um mikilvægi þess að ?höfuðborgarsvæðið sé samkeppnishæft við önnur höfuðborgarsvæði á margvíslegum sviðum, svo sem menntunar, búsetu, atvinnu, samgagna og síðast en ekki síst sem áhugaverður staður fyrir alla að koma á, upplifa og fræðast um?.

SSH 2022 04 DSC 0880
Gestafyrirlestari var Leena Lassila frá Helsinki Partners. Hún sagði frá helstu vörðum á leiðinni að því að koma Helsinki á heimskortið og hvernig sú vegferð væri byggð upp. Hún lagði áherslu á mikilvægi tengslanets og samvinnu og sagði frá þróunarverkefnum sem ráðist hefði verið í með það að markmiði að kynna Helsinki fyrir ferðamönnum og heimafólki.

SSH 2022 04 DSC 0900
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri lýsti því hvernig stefnumótun hefði farið fram í tengslum við stofnun áfangastaðastofa um allt land og fagnaði því að loks væri slík vinna að fara af stað á höfuðborgarsvæðinu.

SSH 2022 04 DSC 0922
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs fjallaði um verkefni Reykjavíkurborgar í ferðamálum og lagði áherslu á það hve mörg tækifæri lægju í samvinnu sveitarfélagana á höfuðborgarsvæðinu. Með því væri hægt að ná betri nýtingu fjármuna, álagsstýringu og samnýtingu þekkingar og hæfni á höfuðborgarsvæðinu.

SSH 2022 04 DSC 0940
Rannveig Grétarsdóttir framkvæmdastjóri Eldingar tók í sama streng; nú væri hægt að efla samkeppnishæfni, vitund og þekkingu um áfangastaðinn og stuðla að sátt við íbúa. Hún benti einnig á að forsendan fyrir árangri væri að fyrirtækin sjálf hefðu tækifæri og áhuga til slíks samstarfs.

SSH 2022 04 DSC 0954
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands sagði að reynslan þaðan væri sú að samvinna yki slagkraft og lýsti fjárfestinga- og uppbyggingavinnu á Norðurlandi. Hún lýsti skíðasvæðaverkefninu 5x5, stofnun flugklasans og sagði frá Norðurstrandaleiðinni sem hefði byrjað sem lítið verkefni sem óx og er í dag eitt af stóru verkefnunum sem kallar á uppbyggingu innviða og sameiginlega þekkingu allra hagaðila á svæðinu.

SSH 2022 04 DSC 0966
Að lokum lýsti Björn H. Reynisson verkefnastjóri aðdragandanum að vegferðinni í átt að Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins. ,,Það er ekki hægt að vinna þetta verkefni nema með samvinnu allra? sagði Björn ,,Áhersla áfangastaðarins er á náttúru, vellíðan, menningu og listir og sjálfbæra þróun. Það verður á þessum grunni sem við munum vinna áfangastaðaáætlun sem mun liggja fyrir í janúar á næsta ári?. Hann sagði jafnframt að þegar áfangastaðaáætlun liggi fyrir muni hagaðilar á höfuðborgarsvæðinu undirbúa stofnun áfangastaðastofu. ,,Það eru allir sammála um þörfina, en til þess að þetta verði að veruleika verða allir hagaðilar að vera tilbúnir í verkefnið?. sagði hann að lokum.

Allar frekari upplýsingar um undirbúningsvinnu að Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins gefur Björn H. Reynisson, verkefnastjóri.
bjorn@ssh.is
863-0001

{loadposition myndir_ferdamalathing_04_2022}