Fara í efni

Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 - Samvinna í þágu barna

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins efnir til sameiginlegrar Farsældarviku höfuðborgarsvæðisins vikuna 9.-13. mars 2026. Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og varpa ljósi á þá jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna.
Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 - Samvinna í þágu barna

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins efnir til sameiginlegrar Farsældarviku höfuðborgarsvæðisins þessa vikuna 9.-13. mars. Aðilar farsældarráðs eru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós – ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum á svæðinu en allir aðilar taka þátt í vikunni með fjölbreyttum hætti.

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og varpa ljósi á þá jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Lögin fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.

Farsæld barna verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð allra þeirra sem koma að lífi barna að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að mál fari í réttan farveg. Með skýrara verklagi og formlegum samráðsvettvangi í gegnum Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins hefur skapast sterkari grunnur fyrir markvissa samvinnu – þar sem enginn aðili vinnur einn, heldur vinna aðilar saman að heildstæðum lausnum í þágu barnsins.

Fjölbreytt átak um allt höfuðborgarsvæðið

Afar fjölbreytt vinna fer fram í tilefni af farsældarvikunni og verða hér nefnd örfá dæmi:

Í Reykjavík verða vinnusmiðjur tengiliða um farsæld og kynningar á grunnstoðum farsældar í gegnum samtal, myndbönd og fræðslu. Þá verður áhersla lögð á fjölmenningarlega farsæld og það hvernig megi betur ná til jaðarsettra hópa.

Í Kópavogi verður boðið uppá fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum í bænum. Tengiliðir í skólum munu einnig vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum.

Í Hafnarfirði verður athyglinni beint að því að kynna úrræði sveitarfélagsins og tengiliði farsældar. Hafnarfjarðarbær hefur lagt áherslu á tengiliði á þessu skólaári og unnið að því að efla þá í starfi. Fjölbreyttar kynningar verða í skólunum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk fær kynningu á hlutverki tengiliðar farsældar. Sveitarfélagið hefur látið útbúa veggspjöld og bækling sem lögð verður áhersla á að hengja upp og dreifa.

Í Garðabæ verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir starfsfólk bæjarins, foreldra og börn. Haldin verður vinnusmiðja með tengiliðum og málstjórum farsældarinnar og boðið verður upp á rafræna fræðslu og upprifjun um farsældarlögin fyrir allt starfsfólk sem vinnur með börnum. Auk þess verður foreldrum boðið upp á kynningu á farsældarlögunum og samþættingu þjónustu. Leik- og grunnskólar munu einnig vekja athygli á farsæld barna með ýmsum hætti og sinna fræðslu til nemenda, foreldra og starfsfólks. Víða verður unnið með börnum á þeirra forsendum, meðal annars með því að sýna BOFS-fræðslumyndbönd og nota Barnasáttmálann til að gera grein fyrir því hvað farsæld þýðir í daglegu lífi.

Í Mosfellsbæ leggja tengiliðir í öllum skólum sérstaka áherslu á að kynna verklagið fyrir samstarfsfólki í litlum hópum og efla þannig sameiginlega ábyrgð innan skólasamfélagsins.

Í Seltjarnarnesbæ verður lögð áhersla á fræðslu og vitundarvakningu í innra starfi bæjarins og þá fara fram sértæk námskeið á vegum barnaverndarþjónustu.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Geðheilsumiðstöð barna, býður upp á hádegiserindi á TEAMS alla vikuna þar sem fjallað verður um börn og skjánotkun, tengsl og samskipti, kvíða, málþroska og streitu í foreldrahlutverkinu. Erindin eru opin öllum og er nánari upplýsingar að finna á þeirra miðlum.

Íþróttafélög á svæðinu minna þjálfara á mikilvægt hlutverk sitt þegar kemur að farsæld barna og fræða þá um hvernig þeir geta brugðist við hafi þeir áhyggjur. Tengiliðir framhaldsskóla vekja athygli nemenda, foreldra og starfsfólks á sínu hlutverki og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á hlutverk lögreglu í að styðja við börn og fjölskyldur í viðkvæmum aðstæðum.

Sameiginlegt markmið

Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu á svæðinu. Þegar ólík kerfi tala saman, deila ábyrgð og vinna samkvæmt sameiginlegu verklagi er betur hægt að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.

Markmiðið er að allt starfsfólk sem vinnur með börnum verði enn öflugra í að nýta verklag farsældar og að foreldrar og börn viti að hvert einasta barn hefur  tengilið  sem getur komið á samræmdum stuðningi þegar þörf er á.

Nánari upplýsingar um farsæld barna má nálgast á www.farsaeldbarna.is