Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins stofnað
Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað. Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem fram fór í Garðaholti í Garðabæ.
Farsældarráðið er vettvangur sameiginlegrar stefnumótunar og samráðs í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Stofnun ráðsins festir í sessi markvisst samtal og aukna samvinnu milli þjónustuaðila ríkis og sveitarfélaga. Markmið ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn á höfuðborgarsvæðinu með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun.
„Mikilvægum áfanga var náð í dag þegar Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað, hið fimmta á landsvísu. Farsældarráðið hjúpar helsta þéttbýliskjarna landsins og færumst við skrefi nær í að veita börnum samþætta þjónustu án hindrana um allt land,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
Þjónustuveitendur eiga aðild að ráðinu
Aðilar að ráðinu eru sveitarfélögin sex – Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes – en sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í þjónustu við börn þar sem þau bera ábyrgð á skólaþjónustu, leik- og frístundastarfi, félagsþjónustu og barnavernd. Auk sveitarfélaganna eiga aðild að ráðinu Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu og íþróttahreyfingin á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðið mun forgangsraða aðgerðum og móta fjögurra ára aðgerðaáætlun sem allir aðilar samþykkja. Aðgerðirnar byggja á samvinnu þjónustuveitenda og tengjast öllum helstu þáttum farsældar: menntun, heilsu og vellíðan, félagslegri stöðu og lífsgæðum, öryggi og vernd, þátttöku og félagslegum tengslum. Sérstök áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og samfélagslegar forvarnir.
„Þegar þjónustuaðilar vinna saman að sameiginlegum markmiðum eykst getan til að styðja börn og fjölskyldur á réttum tíma,“ segir Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. „Samstarfið sem nú hefst byggir á traustri fagþekkingu og þeirri sannfæringu að farsæld barna sé sameiginlegt verkefni okkar allra.“
Vinna ráðsins byggir á gögnum og samráði
Ráðið mun nýta fyrirliggjandi gögn og m.a. byggja á víðtæku samráði sem þegar hefur átt sér stað. Þar má nefna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, sem verða notaðar sem áttaviti í forgangsröðun og árangursmælingum. Þá nýtast ráðinu vel niðurstöður úr vinnustofum sem lögreglan hefur staðið fyrir í sveitarfélögunum þar sem starfsfólk lögreglu, heilsugæslu, sveitarfélaga, framhaldsskóla og íþróttafélaga hefur unnið saman að lausnum fyrir börn í viðkvæmri stöðu.
Einnig verður horft til aðgerðaáætlunar svæðisstöðvar íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var í samstarfi við öll íþróttafélög á svæðinu og miðar að því að auka íþróttaþátttöku barna og ungmenna. Þá mun ráðið nýta greiningar frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) varðandi forvarnir, geðrækt og úrræði í grunnskólum. Samvinna innleiðingastjóra farsældar á höfuðborgarsvæðinu verður jafnframt mikilvæg í vinnunni, en þeir hafa greint helstu áskoranir sem tengjast samþættingu þjónustu við börn og ungmenni.
Farsældarráð í öllum landshlutum
Farsældarráðin á landinu byggja á samningi mennta- og barnamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga sem undirritaður var í október 2024. Með samningnum skuldbundu öll sveitarfélög landsins sig til að hefja innleiðingu 5. greinar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi, án hindrana og stofnun ráðanna markar mikilvægan áfanga í þeirri innleiðingu.

Mynd tekin við undirritun stofnsamninga í Garðaholti, Garðabæ, talið frá vinstri: Hansína Þóra Gunnarsdóttir fulltrúi íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Hanna Borg Jónsdóttir verkefnisstjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri Kjósarhrepps, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Helga Sigríður Þórsdóttir rektor MS og fulltrúi framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu og María Káradóttir staðgengill lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
/ljósm. Hallur Karlsson