Fara í efni

Evrópsk samgönguvika 16.-22. september 2016

Evrópsk samgönguvika 16.-22. september 2016


EvrpskSAMGONGUvika 2016

Dagskrá á höfuðborgarsvæðinu

16. - 22. september 2016

Hafnarfjörður

  • Hafnfirðingar grænka bílastæði fyrir framan verslunarmiðstöðina Fjörð og með því beina sjónum að því að græn borgarrými eru fegurri en grá bílastæði.  Settir verða upp bekkir og fallegt haustlyng í potta auk þess sem hjólagrind verður sett upp á græna stæðið.  
  • Fánar settir upp á vistgötur til að minna á 15 kílómetra hraðann.

Föstudagur 16. september 

  • 9:00 - 16:00 Hjólafærni og Landssamtök Hjólreiðamanna efna til ráðstefnunnar Hjólum til framtíðar - Hjólið og náttúran í Hlégarði í Mosfellsbæ í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og fleiri aðila. Ráðstefnan í ár er tileinkuð hjólreiðum og náttúrunni í tilefni þess að hún er haldin á Degi íslenskrar náttúru, sem er um leið upphafsdagur Evrópskrar samgönguviku. Dagskrá ráðstefnunnar.  Nánari upplýsingar.

Hafnarfjörður

  • Sett verða upp fræðsluskilti á fimm friðlýstum svæðum í Hafnarfirði í tengslum við Dag íslenskrar náttúru í því skyni að hvetja til þess að fólk taki sér göngutúra á svæðunum um leið og það getur lesið sér til um þau. Skiltin eru líka á ensku. 

Laugardagur 17. september

Reykjavík 

  • 10:30 Fyrsta laugardagshjólaferð vetrarins á vegum Hjólafærni á Íslandi og Landssamtaka hjólreiðamanna. Lagt af stað frá Hlemmi. Léttar hjólaleiðir valdar og hentar vel hinum "venjulega" hjólandi vegfarenda. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald.

Kópavogur

  • 11:00 - 12:30 Síðsumarsganga umhverfis- og samgöngunefndar og Sögufélags Kópavogs. Í tilefni evrópsks menningarminjadags og evrópskrar samgönguviku er farin síðsumarsganga frá Kópavogsbænum undir leiðsögn staðkunnugra. Fjölbreytt fræðsla og grill að göngu lokinni. Sjá dagskrá.

Mosfellsbær

  • Opnun nýrrar hjólahreystibrautar á miðbæjartorgi Í samvinnu við LexGames mun Mosfellsbær setja upp nýja hjólahreystibraut, Pump track braut, á miðbæjartorginu. Brautin hentar jafnt BMX hjólum, reiðhjólum, hlaupahjólum, hjólabrettum og línuskautum. Að samgönguvikunni lokinni verður brautin flutt á sinn varanalega stað við litla gervigrasvöllinn við íþróttamiðstöðina við Varmá. Sjá dagskrá.

Sunnudagur 18. september

Mosfellsbær

  • Hjólaleiðastígar í Mosfellsbæ Hjólareiðakort með hjólaleiðum í Mosfellsbæ gert aðgengilegt á íþróttamiðstöðvum og á heimasíðu bæjarins. Íbúar í Mosfellsbæ hvattir til að nýta sér fjölbreytt úrval hjólastíga í Mosfellsbæ til útivistar.Vakin athygli á korterskortinu sem sýnir 15 mínútna gönguradíus út frá miðbæ Mosfellsbæjar, til að hvetja fólk til að ganga eða hjóla innanbæjar. Sjá dagskrá.

Mánudagur 19. september 

Mosfellsbær

  • Leiðarvísar hjólreiðastíga Nýir leiðarvísar, vegvísar og leiðarmerkingar fyrir hjólreiðastíga í Mosfellsbæ teknar í notkun frá samgöngustíg við Úlfarsfell að Þingvallaafleggjara. Sjá dagskrá.

Reykjavík 

  • 10:00 Slökkvistöðin í Skógarhlíð Forgangsstýring umferðarljósa formlega gangsett. Borgarstjóri og slökkviliðsstjóri prufukeyra forgangsbúnað fyrir slökkviliðið.
  • 14:00 Bústaðavegur Formleg opnun hjólastígs á Bústaðavegi. Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs opnar stíginn.

Þriðjudagur 20. september

Garðabær

  • 12:00 Nýr samgöngustígur yfir Arnarnesháls formlega opnaður við enda Hegraness við Arnarneslæk. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar afhjúpar við það tilefni skilti sem merkja stíginn sem rauða lykilleið á höfuðborgarsvæðinu. Stígurinn yfir Arnarnesháls, sem var samstarfsverkefni Garðabæjar og Vegagerðarinnar, er hluti af rauðu lykilleiðinni sem nær allt frá Hafnarfirði upp í Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar. 

Mosfellsbær

  • 17:00 - 19:  BMX-dagur á miðbæjartorgi Mosfellsbæjar Hjólaþrautir og BMX sýning á miðbæjartorginu við Þverholt. BMX kappar sýna listir sínar á nýju pump track brautinni. Sjá dagskrá.

Reykjavík 

  • 15.00 - 16.30 Ráðhús Reykjavíkur Opinn kynningarfundur um mikilvæg reiðhjólamál. Kynning á Hjólaborginni, hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar, kynning á hjólum.is - samfélagsverkefni um eflda reiðhjólamenningu og afhending fyrstu viðurkenninganna í Hjólavænni vottun fyrirtækja. Nánari upplýsingar 

Miðvikudagur 21. september

Mosfellsbær

  • 15:00 - 17:00 Reiðhjólaviðgerðir á miðbæjartorgi Dr. Bæk aðstoðar við hjólastillingar og minniháttar lagfæringar hjóla á miðbæjartorginu. Sjá dagskrá.

Reykjavík 

  • 16:00 Ráðhús Reykjavíkur Samgönguviðurkenning Reykjavíkur afhent.

Fimmtudagur 22. september

  • - Frítt í Strætó á öllu höfuðborgarsvæðinu á ?frídegi bílsins" - 

 Upplýngar af vef umhverfis- og auðlindaráðuneytinu