Eins árs afmæli Út um allt
Útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins, Út um allt, fagnar eins árs afmæli um þessar mundir. Markmið hans er að safna á einum stað upplýsingum um gönguleiðir, hjólaleiðir og útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu, bæði á íslensku og ensku. Við opnun voru 30 göngu- og hjólaleiðir á vefnum, en þær eru nú 64 talsins og ná yfir allt höfuðborgarsvæðið. Hverri leið fylgja gagnlegar upplýsingar, svo sem um erfiðleikastig, lengd og áætlaðan göngu- eða hjólatíma, auk þess sem notendur geta séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leiðinni í rauntíma. Á vefnum er öflug leitarvél þar sem hægt er að sía eftir sveitarfélagi, aðstöðu, þjónustu og aðgengi. Einnig er að finna á vefnum lýsingar á 36 útivistarsvæðum, staðsetningu þeirra og möguleikum. Stefnt er að aukinni þróun og kynningu á vefnum á árinu 2026.
Gerð vefsins var eitt áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins og styður við markmið hennar um heilnæmt umhverfi og heilbrigðan lífsstíl. Með Út um allt er ætlunin að gera útivistarmöguleika svæðisins sýnilegri og hvetja þannig til aukinnar hreyfingar, ánægju íbúa og betri nýtingar á grænum svæðum.
Út um allt er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.