Fara í efni

Úthlutun styrkja úr Sóley 2022

Úthlutun styrkja úr Sóley 2022

Eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins hefur það að markmiði að hvetja til þátttöku atvinnulífsins í nýsköpunarverkefnum á sviði velferðar-og samfélagsmála annars vegar og umhverfis- og samgöngumála hins vegar ásamt því að efla samstarf atvinnulífs og sveitarfélaga innan beggja málaflokkanna. Hinn 12. desember 2022 fór fram úthlutun styrkja úr Sóleyju, styrktarsjóði SSH, til nýsköpunarverkefna á ofangreindum sviðum.

Úthlutunarnefnd vegna verkefna á sviði umhverfis og samgangna var skipuð Jóni Kjartani Ágústssyni, tilnefndum af SSH, Einari Olavi Mantyla tilnefndum af Auðnu tæknitorgi og Þorsteini R. Hermannssyni tilnefndum af Betri samgöngum ohf.

Úthlutunarnefnd vegna verkefna á sviði velferðar og samfélags var skipuð Svanhildi Þengilsdóttur tilnefndri af SSH, Kolfinnu Kristínardóttur tilnefndri af Klaki-Icelandic startups og Steinunni Hrafnsdóttur tilnefndri af Félagsvísindasviði Háskóla Íslands.

Við mat á umsóknum litu úthlutunarnefndir einkum til eftirfarandi þátta:
- Er umsókn til samræmis við áskilnað í starfsreglum/auglýsingum?
- Er um nýsköpun að ræða?
- Tengir verkefnið saman sveitarfélög og atvinnulíf?
- Fellur verkefnið að áherslum sóknaráætlunar?


Eftirtalin verkefni hlutu styrk, hvert um sig að fjárhæð 1.000.000 kr., úr sjóðnum:

Á sviði umhverfis og samgangna:

2022 12 12 SSH Soley DSCF4438
Verkefni VSB verkfræðistofu: ?Hjólapróf í grunnskólum?: Verkefnið felst í því að búa til bóklegt og verklegt hjólapróf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára með það að markmiði að auka færni þeirra og draga úr slysahættu með það langtíma markmið að auka hlutdeild hjólreiða í samgöngum.
Thijs Kreukels veitti styrknum viðtöku fyrir hönd VSB.

2022 12 12 SSH Soley IMG 0464
Verkefni EFLU-verkfræðistofu: ?Snjallari almenningssamgöngur?: Verkefnið felst í greiningu á því með hvaða hætti megi efla pöntunarþjónustu Strætó bs. Verður t.a.m. horft til þess hvort og hvar væri mögulegt og skynsamlegt að setja akstursleiðir í pöntunarþjónustu og verður m.a. framkvæmd viðhorfskönnun meðal íbúa í þeim tilgangi að greina það. Afurð verkefnisins verður skýrsla sem ætla megi að nýtist sveitarfélögunum við greiningu á því hvernig rétt sé t.a.m. að þjónusta hverfi sem eru í uppbyggingu, og leiðir sem hafa litla nýtingu t.d. utan annatíma.
Daði Baldur Ottósson veitti styrknum viðtöku fyrir hönd EFLU.

2022 12 12 SSH Soley IMG 0471
Verkefni Bambahúsa ehf.: ?Barn sem ræktar kál borðar kál?: Styrkurinn verður nýttur að koma á samstarfi við innflutningsaðila bamba um að nýta bamba, sem eru 1000 lítra IBC tankar sem vökvi er fluttur í og væri ella fargað. Bambarnir eru svo nýttir til framleiðslu gróðurhúsa sem m.a. nýtast til umhverfiskennslu í leik- og grunnskólum. Vonast er til þess að í vor verði komið á samstarf um ráðstöfun á bömbum og niðurgreiðslu Bambahúsa til leikskóla.
Jón Hafþór Marteinsson veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Bambahúsa.


Á sviði velferðar og samfélags:

2022 12 12 SSH Soley IMG 0475
Verkefni Týndu stelpnanna ehf: ?Sara ? stelpa með ADHD?: Sótt er um styrk til að skrifa og gefa út barnabók um stelpu með ADHD, til að auka skilning á ADHD og vekja athygli á mismunandi birtingarmyndum ADHD eftir kynjum.
Katla Margrét Aradóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Týndu stelpnanna.

2022 12 12 SSH Soley IMG 0485
Verkefni Ofbeldisforvarnarskólans ehf: ?Geltu ? Forvarnarmynd um hatursorðræðu?: Verkefnið felst í vinnslu stuttmyndar um hatursorðræðu þar sem tekið er á útlendingahatri og kynbundnu ofbeldi. Markmiðið er m.a. að varpa ljósi á hvað leiðir til hatursorðræðu og að styrkja sjálfsmynd ungra innflytjenda og hinsegin unglinga.
Benedikta Sörensen veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Ofbeldisforvaranrskólans.

2022 12 12 SSH Soley IMG 0493
Verkefni Knattspyrnufélags Reykjavíkur í samstarfi við Samfélagshúsið Aflagranda 40 um heilsueflingu eldri borgara: ?Kraftur í KR?: Um er að ræða samstarfsverkefni Samfélagshússins á Aflagranda og KR er snýr að hreyfingu fyrir eldra fólk. Styrknum verður varið til eflingar starfsins, til að auka fjölbreytni hreyfingar og koma á fót gönguhópi og til að styrkja frístundaakstur, þ.e. rútu sem sækir einstaklinga í hverfinu og kemur þeim á staðinn.
Pálmi Rafn Pálmason veitti styrknum viðtöku fyrir hönd KR.

2022 12 12 SSH Soley DSCF4486
Verkefni Fjölmiðlanefndar og Tengslanets um upplýsinga- og miðlalæsi: ?Upplýsinga- og miðlalæsisvika?: Verkefnið felst í að byggja upp fræðslu og þjálfun fyrir kennara og frístundaleiðbeinendur til að auka miðlalæsi yngri kynslóðarinnar. Um verður að ræða þýðingar á erlendu efni og fræðslumyndbönd. Gert er ráð fyrir umfjöllun um samfélagsmiðla, fréttir og falsfréttir, hatur og áreiti, foreldra og öryggi.
Elfa Ýr Gylfadóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Fjölmiðlanefndar ogTengslanets um upplýsinga- og miðlalæsi.

 

2022 12 12 SSH Soley uthutun DSCF4493 m
Á meðfylgjandi ljósmynd eru, frá vinstri til hægri, Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH, Benedikta Sörensen, Katla Margrét Aradóttir, Elfa Ýr Gylfadóttir, Daði Baldur Ottósson, Thijs Kreukels, Pálmi Rafn Pálmason, Jón Hafþór Marteinsson og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar og formaður stjórnar SSH.