Samspil og virkni velferðarþjónustu

Við undirritun samnings hinn 26. maí 2025: Arnar Haraldsson frá HLH ráðgjöf og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.
Markmið verkefnisins er að greina nánar umfang velferðarþjónustu og þróun þess á undangengnum árum. Verður ábyrgð og verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga sérstaklega skoðuð og nánari greining framkvæmd á því hvort og þá í hvaða tilvikum, notendur upplifi sig „á milli kerfa“ en gagnvart notandum er mikilvægt að ábyrgðarskipting sé skýr og boðleiðir og samskipti einföld.
Gengið hefur verið til samninga við HLH ráðgjöf um verkefnastýringu og gert er ráð fyrir að samantekt sem greinir verkaskiptingu milli þjónustukerfa og dregur sérstaklega fram hvað hefur breyst, s.s. þegar kemur að þjónustuþörf, liggi fyrir í lok árs.