Nýting gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga

Við undirritun rafræns samnings hinn 24. maí 2025: Brynjólfur Borgar Jónsson framkvæmdastjóri DataLab og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.
SSH og fyrirtækið DataLab hafa gert samning um vinnu við kortlagningu tækifæra er varða gervigreind hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
DataLab hefur aðstoðað íslensk fyrirtæki og stofnanir við að hagnýta sín eigin gögn til að skapa snjallar lausnir sem bæta rekstur og samkeppnishæfni.
Með gervigreind er hægt að greina gögn hraðar, spá fyrir um þörf á þjónustu og taka upplýstari ákvarðanir, til dæmis í skipulagsmálum. Sjálfvirk svörun spurninga getur sparað tíma og auðveldað samskipti við íbúa.
Verkefnið gengur út á að skoða hvernig sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt sér tækni gervigreindar á sameiginlegum vettvangi til að auka skilvirkni og bæta þjónustu við íbúa.